Fálkinn


Fálkinn - 14.02.1962, Blaðsíða 29

Fálkinn - 14.02.1962, Blaðsíða 29
'Utprjcnut telpnapeijAa ftteð ktítri kú^u Stœrð: 4—6—8 ára. Efni: 275—325—375 g hvitt, 175—175—200 g blátt, 25—25 —50 g rautt 4 þætt sportgarn. Ætla þarf aukalega 100 g af hvítu garni í húfuna. Hingprj. nr. 3V2 = 10 cm. Peysan: Fitjið upp 130—140 —150 með hvítu garni á prj. nr. 3 og prjónið brugðningi (1 sl. 1 br.) 5 cm fram og aftur, sett á hringprj. og prjónið í hring eins og mynztrið segir til. Setið merki við 2 1. í hvorri hlið (umf. byrjar í annarri hliðinni). Aukið út 1 1. beggja vegna við merkið annan hvorn cm 5 sinnum (150—160—170 1. á). Þegar bolurinn er 23— 26—29 cm, eru felldar af 11 —-12—11 miðlykkjurnar á framstykkinu. Fitjið upp 1—2 1 1. yfir þessum niðurfelldu 1. í næstu umf. og haldið áfram að prjóna mynztrið í hring. Fellt af, þegar bolurinn er 39 —42—45 cm. Ermar: Fitjið upp 36 1. með hvítu garni á prj. nr. 3 og prjónið brugðningu 5 cm fram © — BLÁTT X = RAUTT □ == HVÍTT St. = Stærð ár = ára. T D i St 4 6 8 ír A 34 36 Vi 3 8 >/2 cm B 39 42 45 cm C 23 26 29 cm D 15 16 17’Á cm E 32 37 42 cm og aftur, aukið út í seinustu umf., svo 40 1. séu á. Sett á sokkaprjón nr. 3 Vz og mynztr- ið prjónað í hring. Aukið út um 2 1. á undirermi (aukið í aðra 1. á 1. prj. og næstsíðustu 1. á 4. prj.) annan hvern cm 14—16—18 sinnum (68—72— 76 1. á). Þegar ermin er 32— 37—42 cm löng, er 4 umf. prj. með hvítu garni. Fellt af. Frágangur: Pressað á röng- unni. Stingið í vél 2 sinnum kringum miðlykkjuna aðfram- anverðu og klippið upp úr nið- ur að niðurfellingu, einnig er markað fyrir hálsmáli að framanverðu, nál. 3 cm djúpt og 5 cm breitt, mælt frá miðju til beggja handa. Stungið með vél kringum hálsmálið tvisvar, klippt. Mælið fyrir ermagats- sídd, stingið tvisvar kringum markalínuna, klippt niður á milli saumfaranna. Saumið axlasaumana, ermar saumað- ar í á röngunni með aftursting, þannig að 4 síðustu umf. legg- ist yfir trosnurnar, saumaðar niður með klofnu garni. Prjón- ið líninguna og kragann: Fitjið upp 16 1. með hvítu garni á prj. nr. 3V2 á vinstri boðang og prjónið 13 cm bruðningu (1 sl., 1 br.). Lykkjurnar geymdar. Prjónið eins á hægri boðang, búið þar til 2 hnappa- göt, 4 1. frá brún, hafið 4 1. í hnappagatinu. Fyrri hnappa- gatið á að vera 3 crn frá byrj- un og það síðara 8V2 cm-. Þeg- ar hægri líningin er 13 cm, eru fitjaðar upp 62 1. og svo koma 1. frá vinsti líningu. Prjónið 8 cm bruðningu til viðbótar og búið til 2 hnappagöt beint yfir þeim fyrri með 5V2 cm milli- bili. Fellt af með brugðningu. Saumið kragann og líning- arnar við hálsmálið. Leggið' 4 síðustu 1. á líningunum yfir trosurnar á brúnunum og fyrsta cm á kraganum er lagð- ur yfir trosnurnar í hálsinn á röngunni. Allir saumar press- aðir vel. Hnappar saumaðir í. Húfan: Prjónið hana með tvöföldu hvítu garni á prj. nr. 6. Fitjið upp 20 1. og prjónið brugðningu (1 sl., 1 br.) alla leið. Þegar húfan er 12 cm, er 1 1. tekin úr í byrjun hverrar umf., þar til allar lykkjurnar eru búnar. Saumið húfuna saman að aftanverðu, setið dúsk í toppinn.

x

Fálkinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.