Fálkinn


Fálkinn - 18.04.1966, Blaðsíða 23

Fálkinn - 18.04.1966, Blaðsíða 23
AGFA umboðið og Fálkinn efna til Ijósmyndasam- keppni, og hefur hún staðið siðan í sumar. Þátttaka hef- ur ekki verið mikil og af þeim ástæðum var samkeppn- in framlengd. Nú hefur frestur til að skila myndum í keppnina verið ákveðinn til 30. apríl, og verður skýrt frá úrslitum eins fljótt og unnt er eftir þann tíma. f fyrsta flokk hafa verið valdir fimm þekktir ljós- myndarar til að glíma innbyrðis við verkefnið „Frá hinni hliðinni séð.“ Þeir senda inn eina svarthvíta mynd hver um sig, stærð 18X24 eða 24X30 límd á karton. Veitt verða ein VERÐLAUN, KR 5.000,00. f 2. flokki er verkefnavalið frjálst, og þar geta allir aðrir en fimmmcnningarnir í 1. flokki tekið þátt. Senda skal svarthvítar myndir, stærð 18X24 eða 30X40, límd- ar á karton. Veitt verða þrenn verðlaun. KR. 3.000,00 í PENING- UM OG KR. 2.000,00 OG KR. 1.000,00 f VÖRUÚTTEKT hjá ljósmyndavöruverzluninni TÝLI í Austurstræti. f 3. flokki á að senda inn Iitfilmur, sem eingöngu má taka á litfilmuna AGFA COLOR CT 18 (pósitív) og þar er verkefnið hundið við landslagsmyndir eða myndir úr atvinnulifi. AGFA umboðið setur það skilyrði ein- göngu í þessum flokki — í hinum flokkunum ráða menn hvaða Ijósmyndaefni þeir nota. Vinningar eru þeir sömu og í 2. flokki. Allir mega taka þátt í þessum flokki. einnig þeir sem taka þátt i 1. og 2. flokki. 1. flokkur. í honum taka þátt Oddur Ólafsson, Rafn Hafn- fjörð, Guðmundur Vilhjálmsson, Ingimundur Magnússon og Guðmundur Hannesson. Þeir glíma innbyrðis við verkefnið „Frá hinni hliðinni séð“ og senda inn eina mynd hver. Veitt verða ein verðlaun, kr. 5.000,00 í peningum. 2. flokkur. Svarthvítar myndir stærð 18X24 eða 30X40, frjálst verkefnaval. Veitt verða þrenn verðlaun, kr. 3.000,00 í peningum og kr. 2.000,00 og kr. 1.000,00 í vöruúttekt hjá ljósmyndavöruverzlun- inni Týli 3. flokkur. Litfilmur (allar stærðir). Nota skal AGFA Dómnefndin. í dómnefndinni eiga sæti Björn Th. Björnsson, listfræðingur, Hjálmar R. Bárðarson skipaskoð- unarstjóri og Jón Kaldal ljósmyndari. Dómnefnd- COLOR CT (pósitív) og verkefnið er bundið við in mun gera grein fyrir störfum sínum þegar úr- landslags- og atvinnulífsmyndir. Veitt verða sams slitin verða birt og ræða almennt um myndirnar, konar verðlaun og í 2. flokki. sem sendar verða til keppninnar. SKILYRÐI AGFA umboðið setur þau skilyrði að myndirnar hafi ekki verið birtar áður og ennfremur er birtingarréttur eða sýningarréttur áskilinn á öllum myndum sem ber- ast til keppninnar. Þátttakendur eiga að merkja myndir sínar dulnefni, en nafn og heimilisfang skal fylgja með í lokuðu umslagi merktu með sama dulnefni og á mynd- inni. Litfilmurnar skal merkja á sama hátt og skal vel um þær búið, helzt að senda þær í glerrörum Myndirnar skulu sendar til ritstjórnar Fálkans, Grettis götu 8, pósthólf 1411 fyrir apríllok. Starfsfólk Fálk- ans og AGFA umboðsins tekur ekki þátt í keppninni. FÁLKINN

x

Fálkinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.