Menntamál - 01.01.1933, Blaðsíða 3

Menntamál - 01.01.1933, Blaðsíða 3
MENNTAMÁL 3 eins og víSa er nú orÖi'S og verÖur alls staÖar innan skannns. ÞaÖ stendur nú svo á, að mestur hlutinn af nýtilegum kennslu- bóknm, sem nú eru til, eru hentugar fyrir sveitabörn og smá- þorpaskóla, en alls ekki fyrir kaupstaÖaskólana. Er þetta mjög eðlilegt; flestir höfundarnir eru uþpaldir í sveit, og þaÖ var líka mest þörfin á að sjá sveitabörnunum fyrir hentugum kennslubókum, þar sem þau eru svo stuttan tíma undir kenn- ara hendi. Þar viÖ bætist, aÖ kaupstaÖirnir okkar eru svo ung- ir, og þó einkum það skólafyrirkomulag og námsskipun, sem nú ríkir, að tæplega er viÖ því að bviast, að búið sé aÖ semja kennslubækur, er hæfi því, enda langt frá að svo sé. Kennslubækurnar handa kaupstaðaskólunum þurfa að vera tvennskonar. Önnur tegundin fyrir sæmilega geíin börn og þar yfir, og hin fyrir miÖur gefnu börnin. Einhver hin mesta mis- þyrming, sem eg hefi kynnst í skólum, er það að ætla miður gefnum börnum sömu bækur og sömu verkefni eins og þeim, sem vel eru gefin. Þessi börn verða blátt áfram allt önnur og betri börn, þegar þau fá bækur og verkefni við sitt hæfi. Kennslubækur kaupstaðaskólanna þurfa, að mínu áliti, að vera fáorðar og gagnorðar og þó á lipru og auðveldu máli, miðaðar við lítinn heimalestur. Hins vegar þurfum við sem allra fyrst að fá íslenskar handbækur, sem Ivörn geti notað við úrlausn verkefna utan kennslustunda eða i þeim. Á eg þar fyrst og fremst við handhæga alfræðiorðabók handa skólum. Það er, hvort sem er, höfuðskömm að því, að við ísleridingar skulum ekki fyrir löngu vera búnir að eignast slíka bók, jafn fróðleiksfús og alþýða manna er hér á landi. Þá komum við að því atriðinu, sem skoðanirnar verða e. t. v. skiftastar um, en það er fyrirkomulagið á útgáfu skólabóka. Mjög er kvartað yfir því, að kennslubækur séu dýrar, þrátt fyrir það, að sala á þeim er öruggari en á flestum öðrum bók- um. Veit eg það, að bókaútgefendur þykjast ekki of vel haldnir og eru það ekki, en það stafar mest af því, hve margt þeir gefa út, sem langt er frá að svari kostnaði. En ekki verður það þolað til lengdar, að þeir foreldrar, sem flest eiga börnin, séu

x

Menntamál

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Menntamál
https://timarit.is/publication/376

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.