Menntamál - 01.01.1933, Blaðsíða 29

Menntamál - 01.01.1933, Blaðsíða 29
MENNTAMÁL 29 fi'æði í 4 bindum, ca. 2600 bls. alls. Auk ]>ess, sem þar er sagt bæði sögulega og vísindalega frá öllu. þá eru þar allar sömu skemmtilegu frásagnirnar og eru i landafræðilesbók barnanna, og eru þær auðkenndar með tilvitnunum. í handbókinni er urmull af verkefnum, sem kennarinn getur bætt við umfram það, sem gefið er í vinnuheftunum. Allmargir íslenskir barnakennarar lesa það mikið þýsku, að þeir gætu hæglega notfært sér bækur H. Harms. Bækurnar eru að vísu ekki fyrirliggjandi hér á landi, en bókaverslanir munu geta útvegað ]rrer með stuttum fyrirvara. H. El, Bækur og blfið. Karlinn í tunglinu. Bók þessi er saman tekin og ætluð til að vera landfræðilesbók fyrir börn á því reki. sem þeim er ljúfast að láta hugann reika á leiðum æfintýranna. Því er efninu komið svo fyrir, að allt er í æfintýrabúningi, en fléttað inn i margvíslegum fróðleik. Lesandinn fylgir karlinum í tunglinu, riðandi á krókstaf, eins og gengur og gerist í íslenskum æfintýrum, úr einni heimsálfu í aðra. Þeir leilca sér með börnum Eskimóa, Indíána, Kirgisa, Araba, Svertinga og Búskmanna, og verða af þeim margs vís- ari um ])essa frumstæðu menn. híbýli þeirra, dagleg störf og Iifnaðarhætti. Heppilegast mun vera að nota bókina til lestrar fyrir 8—10 ára börn. eða áður en byrjað er á reglulegu land- fræðinámi. Það er ætlun útgefenda að gefa út fleiri slíkar les- l)ækur, enda er þeirra mikil þörf, jafnt i þessari lesgrein sem öðrum. Skóli og heiinili heitir málgagn Kennarafélagsins á ísafirði. Hefi eg séð 5. og 6. tbl. I. árg., sem gefin eru út i okt. og nóv. 1932. Blaðið er vélritað, 4 síður, tvídálkaðar, hvert blað. Eins og nafnið bendir á, er blaði þessu ætlað að vera þáttur til samstarfs og skilningsauka milli skóla og heimila. Verkefni er

x

Menntamál

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Menntamál
https://timarit.is/publication/376

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.