Menntamál - 01.01.1933, Blaðsíða 18

Menntamál - 01.01.1933, Blaðsíða 18
i8 MENNTAMÁL Gcturðu hugsað til þess aÖ verja þig með því að segja: Þetta er allt saman fólkinu a'ð kenna? Breyttu eftir l>estu vitund. Meira getur hvorki maður né þjóð af þér heimtað. Vertu vakandi og mundu: Þegar þeir, sem þú fylgir áleiðis út í lifið, eru vaxnir menn, þá, en ekki fyr, má segja, að dómsdagnr þinn sc korninn. Stefán Hanncsson. Matgjafir í skólum. Víða erlendis íá börnin í skólunum matarbita, í stærri eða minni stíl. Er það nú orðið áberandi alls staðar, hve mjög er hugs- að um að auka líkamsþrótt barnanna jafnframt andlegu fóðr- uninni, og er það að vonurn. Allir vita, að svo er ástatt um fjölda barna, að þau njóta sín ekki við nám vegna likamlegrar veilu. Kirtlaveikin, blóðleysið o. fl. kvillar draga úr þeim allan mátt og varpa þeim ef til vill áður en varir á sjúkrabeð, og bregst þá einatt til beggja vona með framtíðina. Sum þessara barna skortir sennilega stundum gott og hollt fæði. Önnur eru svo lystarlaus t. d. á morgnana, að ógerning- ur er að koma í þau mat, þó til sé nægur og góður. Þetta munu flestir kannast við. Það hefir ]>ví verið reynt að taka upp matgjafir í skólunum. Víðast er gefin mjólk, og sumstaðar lýsis-skeið til viðhótar. En Norðmenn gera meira. í Osló starfar við háskólann merkur líffræðingur, dr. Carl Schiötz, er um margra ára skeið hefir haft til rannsóknar þessi mál. Hann heldur ]>ví fram, að börnum sé mjög hollt að fá morgunmat er þau koma í skólann á morgnana, og fullyrðir. að þau börn, sem enga lyst hafi nývöknuð heima, fái hana nokkra við fyrstu hreyfingu á morgnana, og sé þá um að gera að koma i þau fæðu sem sé fjörefnarik. Hitt sé gagnslítið, eða

x

Menntamál

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Menntamál
https://timarit.is/publication/376

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.