Menntamál - 01.01.1933, Blaðsíða 30

Menntamál - 01.01.1933, Blaðsíða 30
30 MENNTAMÁl þar mikiÖ og nauÖsynlegt fyrir höndum, þvi aÖ þekkingarleysi fólks á skólastarfinu veldur oft röngum dómum og jafnvel illum- hug til skólanna. Björn H. Jónsson, skólastjóri, ritar glöggar og góÖar greinar í blöð þessi um: Skipting barna í bekki, jæknisskoðun, og loks er ágrip af skýrslu skólastjóra um barnaskóla Isafjarðar 1930—'32. Skólastjórinn kemst m. a. svo að orði í skýrslu þeirri: „Isafjörður muu nú standa í fremstu röð íslenskra bæja uin skólasókn og áhuga fyrir skólamálum. Má meðal annars geta. þess til sönnunar því, að s.l. vetur sóttu um 22% bæjarbúa skóla.“' Á öðrum stað: „Ritvélin og fjölritarinn eru ein hin gagnleg- ustu áhöld, sem skólinn hefir eignast, hafa þau hjálpað mjög til að skapa tilbreytni í kennslunni og óspart verið notuð til þess. að fjölrita ýms verkefni. Yildum við kennarar einna síst án þeirra vera allra áhalda skólans. — Að láta kennara kenna áhalda- litla nú á dögum er nokkuð svi]>að því að taka kaupamann upp á fullt kaup og fá honum svo í hendurnar einjárnung bundinn við orfið með ól, eins og gerðist í gamla daga.“ Gunnar Andrew ritar skýrslu um suðurför skólabarna 1932, en eins og kunnugt er, hefir fsafjarðarbær styrkt fullnaðarprófs- börn sín til ferðalaga síðastl. tvö ár. Ferðast hefir verið unt Suðurland, til mikillar ánægju fyrir alla þátttakendur. Gunnar Andrew hefir verið fararstjóri. i'lað kennara á ísafirði er líklegt til þess að vinna mikið gagn.. Það er þann veg ritað og í þeim anda, að foreldrar hljóta að taka slíku feginshendi. En þegar skyggnst er um af öðrurn sjón- arhóli, til foreldra almennt í landinu, sést enginn slíkur gestur á leiðinni til þeirra. Málgagn fsafjarðarkennara ætti að vekja kennarastéttina til rækilegrar hugsunar og öflugrar framkvæmdar um að eignast málgagn, sem foreldrar vilja og þurfa að lesa. Kennarar eru á flæðiskeri staddir í Jiessu efni. Þeir eiga ekkert málgagn, sem tengir saman þessa höfuðaðila uppeldisins, heimili og skóla. Síðan þetta var ritað, hefi eg frétt, að kennarar í Elafnar- firði séu einnig byrjaðir á útgáfu fjölritaðs blaðs, er stefnir í sörnu átt, og sömuleiðis á Akureyri. Augljós er því þörf kenn- ara að kynna foreldrum skólastarfið. Eg beini því spurningu til kennara: Hvað vilja kennarar og hvað geta þeir gert, til þess að eign- ast málgagn, sem nær til foreldra og alls almennings til sam- vinnu um uppeldismál og skilningsauka á skólastarfinu ? í janúar 1933. Gunnar M. Magnúss.

x

Menntamál

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Menntamál
https://timarit.is/publication/376

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.