Kirkjuritið


Kirkjuritið - 01.02.1969, Blaðsíða 22

Kirkjuritið - 01.02.1969, Blaðsíða 22
68 KIRKJURITIÐ þeim mun meira sem okkur finnst til um eigin mikilleik, vaxi okkur sá, sem okkur liefur skapað enn meira í augum- Svo fer líka um marga vísindamenn að þeir gerast þeim mun liógværari sem þeir kafa dýpra í leyndardóm tilverunnar og sjá hærra til lofts. Einn af samverkamönnum Alberts Einstein, Banesli Hoff- mann, hefur ritað um liann grein, sem nefna mætti: MaSiU'- inn, sem er mér ógleymanlegastur. Þar segir: „Þótt Einstein fyndist lvelgisiðir sig engu skipta, og teldist ekki til neins ákveðins trúfélags, var hann tniaðasti maður, sem ég hef kynnst. Hann sagði einu sinni við mig: „Hugsjónir stafa frá Guði,“ og lotningarþunginn, sem hann lagði á orðin, leyndi því ekki að síðasta orðið var með stórum staf. Þýzka yfirskriftin á marmarabríkinni yfir aminum í stærðfræðistol- unni í Princetonliáskóla, er hans vísindalega trnarjátning: „Guð er hátignar liár, en liann er ekki meinbæginn“. Einstein skildi þetta á þá lund, að þótt menn kæmust ekki erfiðislaust að einu eða neinu, gætu þeir verið bjartsýnir: alheimurinn væri lögbundinn og Guð villti ekki um fyrir okkur með duttlunga- fullum fjarstæðum og mótsögnum.“ „Gu8sma8iir“ Mér fljúga í bug önnur ummæli. Kunnur sænskur læknisfræði- prófessor Quensel, skrifaði á sínum tíma í eftirmælum uni Nathan Söderblom, erkibiskup: „Hvaðan spratt þessi ómælanlegi innri kraftur, sem var leyndardómsfyllstur af öllu í eðli hans? Uppsprettulind lians var sú örugga og lifandi guðstrú, sem Söderblom bar í brjósti- Iíann bar henni vitni með lífi sínu og ritverkum. Hann ræðir á vissum stað um „heimagestinn“ sem sé alráður og friðflytj' andi máttur í innstu hugarfylgsnunum. Kynnin við þennan „heimagest“ þ. e. Guð, leiða manninn til þess sálarsigurs, sein mesta auðgi liefur í för með sér. Allt líf lians var boðskapnr til manna um að leita sálarstyrks og friðar á þessum leiðum . • • Hann var maður þannig vaxinn, að hjartalag lians og lífern* opinberaði öðrum mátt og eðli, sem bauð forgengileikaniim byrginn en fól í sér eilífðina.“ Því má bæta hér við, að þingskörungur í flokki sænskrR

x

Kirkjuritið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.