Eimreiðin


Eimreiðin - 01.10.1946, Side 81

Eimreiðin - 01.10.1946, Side 81
eimreiðin ÖRLÖG MANNSBARNSINS 305 að ekki varS komizt bæja á milli dögum saman. Og þá kom góða konan engri mjólk í kotið á nesinu, og allt annað var þar af skornum skammti. Gömlu hjónin voru orðin skortinum vön. Þau höfðu staðið í skugga hans og barizt við hann alla sína ævi. En nýgræðingurinn getur ekki lifað í frostum og liarðviðrum. Það gekk báglega að halda kotinu heitu, það var ekki skjóllegt lnis. Það snjóaði inn um rifur, og súðina hrímaði, svellkúlur voru á moldargólfinu. Og litla telpan liætti að þroskast, hún lagði stöðugt af og fölnaði eins og blómin á haustin. Húshændur liennar gáfu því ekki mikinn gaum. Þau voru orðin sljó og hirðulítil. Þeim fannst allt getað draslað eins og það var. Og þau áttuðu sig ekki fyrr en barnið var orðið fárveikt einn dag á útmánuðum, þegar skammt var að bíða vorsins. En vorið vildi ekki koma, kafsnjór var yfir öllu, kotið nærri fennt, sjórinn svarblár og ógnandi, og brimið þrumaði við nesið, henti steinum og möl inn á túnskækilinn. Og gömlu lijónin áttuðu sig lieldur ekki á því, live mikið veikt barnið var. Þau sögðu sín á milli, að þetta væri hitavella og ekkert annað við henni að gera en að liggja liana úr sér. En rúniið litlu telpunnar var eins skjóllaust og allt annað í kotinu, því úti þrumaði stormurinn í sífellu, leitaði uppi hverja snuigu °g blés þar inn næðingi. Einn morguninn var litla telpan dáin. Hún dó eins og liún lifði, án þess að verða nokkrum til armæðu og ama. Hún var aldrei neinsstaðar fyrir, nema lielzt áður en hún fæddist og um það bil. Það þurfti að vísu að smíða lienni kistustokk og taka lienni gröf, en það var fúslega gert, því mennirnir bera miklu meiri virðingu fyrir dauðanmn en lífinu. Það er alltaf talað um alla, þegar þeir deyja, en þó hafði verið rætt meira um litlu telpuna þegar lmn fæddist, sem er óvenju- ^egt. Þegar fregnin um lát liennar harst út, var henni tekið tóm- lega, nema af þeim, sem fannst þar byrði létt af sveitarfélaginu. Svo gleymdist það fyrr en varði, að hún liafði nokkurn tíma verið til. ^ólin, blærinn og hlómin dvelja enn á litla nesinu, þegar sum- arið hefur lialdið innreið sína. Og enginn veit, nema þau sakni 20

x

Eimreiðin

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.