Jazzblaðið - 01.04.1950, Side 16
★ Hazy Ostervald, svissneskur jazz-
leikari, hefur verið með sex manna
hljómsveit sína undanfarna mánuði á
National Scala í Kaupmannahöfn otr
hefur leikur hljómsveitarinnar líkað vel
þar í borg.
vinsældir þær, er það hefur náð í öðr-
um löndum heims eru aðallega vegna
,,effects“ þess, er fæst við að það er leik-
ið á zítar, en hann er ekki til hér á landi
(þ. e. a. s. zítarleikari). Annars er þetta
allgott danslag.
★ Jazz information heitir jazzblað,
sem byrjað var gefa út í Danmörku fyr-
ir nokkru. Blað þetta hefur komið út
áður en útgáfa þess lagðist niður. Ósk-
andi er að Dönum, sem eiga góða jazz-
leikara, takizt að halda þessu jazzblaði
áfram.
★ Harry Lime Theme heitir lag, sem
fyrst var leikið í enskri kvikmynd að
nafni The Third Man. Anton Karas,
tékkneskur zítarleikari, lék alla „back-
ground“ músíkina í myndinni. Seinni
hluta síðasta árs náði Harry Lime
Theme miklum vinsældum í Englandi og
varð það m. a. til þess að Karas ferð-
aðist um alla Evrópu og hélt hljómleika.
Lagið fékk nafnið Harry Lim’s Melody
á Skandinavíu og er um þessar mundir
vinsælasta lagið þar. Karas hefur ný-
lega verið í Bandaríkjunum og er lagið
á leið með að verða það vinsælasta þar.
I-Iér hefur lagið verið leikið m. a. af
hljómsveit Carls Billich, en vafi leikur
á að það ná vinsældum, vegna þses, að
★ Duke Ellington er um þessar mund-
ir með hljómsveit sína í París. Hljóm-
sveitin mun leika í fleiri löndum Evrópu
(nánar í næsta blaði).
★ Benny fíoodman kom með tólf
manna hljómsveit til Evrópu um mán-
aðarmótin. Þeir sem m. a. eru í hljóm-
sveitinni eru Roy Eldridge trompetleik-
ari, tenór-saxófónleikarinn Zoot Sims úr
hljómsveit Woody Herman, trommuleik-
arinn Ed Shaughnessy úr hljómsveit
Charlie Ventura, Dick Hyman píanóleik-
ari, enski bassaleikarinn Charlie Short
og sennilega belgiski guitar- og munn-
hörpuleikarinn Jean Thielemans.
★ CháHie Ventura hefur nú lagt nið-
ur hl.jómsveit sína, og fór það sem okk-
ur grunaði, eins og skýrt var frá á fyrra
ári, að vinsældir hljómsveitarinnar
voru ekki hvað minnstar vegna þeirra
Roy Kral píanóleikara og Jackie Cain
söngkonu, enda var hljómsyeitin varla
svipur hjá sjón eftir að þau mættu hjá
Charlie.
16 $az,UaSiÍ