Svanir - 01.05.1939, Blaðsíða 12
10
holtshrepps, er engin svör höfðu sent formanni. Á fundi
þessum gjörðist þetta m. a.:
1. Ræddar og samþykktar ýmsar lagabreytingar, og
sumar, er síðartj höfðu í för með sér breytingar á
lögum Ungmennasambands fslands.
2. Lagðir fram endurskoðaðir reikningar, er sýndu
tekjur kr. 24,00. Útgjöld kr. 10,00 (fundarhald),
tekj uafgangur kr. 14,00.
3. Lagðar fram tillögur íþróttanefndarinnar frá Hvít-
árbakkafundinum, og þær samþykktar. I þeim var
m.a. það nýmæli, að viðhöfð skyldi flokkakeppni milli
félaga í glímu og sundi.
Nokkur ágreiningur varð um það á fundinum,
hvort almenningi skyldi vera leyfður aðgangur að
mótum þessum eða aðeins ungmennafélögum. Varð
það ofan á, að- heimila öllum aðgang að þeim, en
engir nema félagar tækju þátt í íþróttunum. Sam-
þykkt var að gefa verðlaunagripi, tvo skildi, er gengju
til þeirra félaga, er ynnu í flokkakeppninni í sundi
og glímu, og auk þess verðlaunapeninga (fjóra) til
annarra verðlauna í íþróttum. — Fjárframlaga til
þessa var aflað með samskotum. Samþykkt var að
lokum að halda fyrsta íþróttamót sambandsins á
næsta sumri, og kosin sérstök nefnd til þess að ann-
ast um það. í nefndina voru kosnir: Bjarni Ásgeirs-
son, formaður, Jón Hannesson, Andrés Eyjólfsson,
Árni Böðvarsson og Páll Zóphóníasson. Til vara:
Guðrún Hannesdóttir og Björn Lárusson.
4. Umræður hófust um breytt skipulag Ungmennasam-
bands Islands, og voru um það mál allskiptar skoð-
anir. Að lokum var samþykkt í einu hljóði svofelld
tillaga (frá Bjarna Ásgeirssyni) : „Fulltrúarnir á-
kveða að fela fundarmönnum að sjá um það, að þetta
mál (fjórðungaskiptin) verði ýtarlega rætt innan
hinna einstöku félaga sambandsins á næsta ári, og
að fulltrúar þeir, er kosnir verða á næsta aðalfund
U. M. S. B., og fjórðungsþing 1914, verði aðallega