Svanir - 01.05.1939, Blaðsíða 61
55
Guðmundssonar frá Hraunsnefi. Oddný var gift Einari
Bjarnasyni, Einarssonar, sem bjó á Skarðshömrum og fyrr
getur. Einar dó 1936. Börn Oddnýjar og Einars eru: Árni,
Jóhannes og Laufey heima og Bjarni á Hraunsnefi. Tvö
börn misstu þau hjón uppkomin, Ingibjörgu og Sigurð.
Á Uppsölum býr síðan 1938 Friðjón Jónsson, Jónsson-
ar bónda á Gunnlaugsstöðum í Stafholtstungum, og kona
hans, Lovísa Guðjónsdóttir úr Reykjavík. Annað heimilis-
fólk er: Helga Teitsdóttir, eigandi jarðarinnar; bjó hún
á Uppsölum frá 1920—1938. Helga var gift Þorsteini Þórð-
arsyni frá Glitsstöðum; dó hann haustið 1921. Fósturson-
ur Helgu er Friðrik Hjartarson.
Á Glitsstöðum býr síðan 1928 Eiríkur Þorsteinsson, Sig-
urðssonar bónda á Hamri, sem fyrr getur, og kona hans,
Katrín Jónsdóttir, Einarssonar og konu hans, Þórunnar
Björnsdóttur. Bjuggu þau á Sigmundarstöðum fram til
1928. Börn Katrínar og Eiríks eru: Þórunn, Guðrún, Ás-
laug, Steinunn og Katrín. Annað heimilisfólk er: Jón Ein-
arsson og kona hans, Þórunn Björnsdóttir, og Guðmundur
Kristinn Guðmundsson.
Á Glitsstöðum bjó frá 1887-—1912 Þórður Þorsteinsson.
Þórður var bróðir Sigurðar Þorsteinssonar, sem um skeið
bjó á Dýrastöðum og fyrr getur. Þórður var því afabróðir
Eiríks á Glitsstöðum.
Á Svartagili er bústjóri fyrir Davíð Þorsteinsson, bónda
á Arnbjargarlæk í Þverárhlíð, Guðmundur Gíslason. Kona
Guðmundar er Jónína Davíðsdóttir, Davíðssonar frá Þor-
gautsstöðum; bjó Davíð, faðir Jónínu, um skeið á Háreks-
stöðum. Börn þeirra Jónínu og Guðmundar eru: Ragn-
heiður, Guðlaugur og Guðbjörg.
XVII. Sveitarstjórn. — Framfarir.
Eftirtaldir menn hafa verið oddvitar í dalnum síðan
1875: Bjarni Einarsson, Hóli, til 1882. Jón Jónsson,
Hvassafelli, frá 1882—1883. Sigurður Þorbjarnarson,
Dýrastöðum, frá 1883—1886. Séra Jón Magnússon,
Hvammi, frá 1886—1888. Vigfús Bjarnason, Dalsmynni,