Svanir - 01.05.1939, Blaðsíða 34
32
að þar hafi bygð verið, en munnmæli eru eftir gamallri
kellíngu, að faðir hennar hafi þar búið 3 ár. Hún var á
dögum foreldra þeirra, sem nú eru fimtugir; ætla menn
sögn hennar sanna“.
„Kirkjuból, forn eyðijörð á Hellistúngum, í því plátsi,
sem nú er fjárupprekstur brúkaður af sveitinni sem áður
segir. Sýnileg eru hjer bygðamerki og garðaleifar; en eng-
inn minnist hjer hafi bygð verið“.
„Hlijdarkot, öðru nafni Hvassárhlijd, þriðja nafni Hlijd-
arendi. Nýtt hjáleigutetur. Bygt fyrst í Sveinatungu landi
1677 þar sem aldrei hafði fyrri bygð verið; varaði bygðin
í ár alleina, þó ekki fult“.
„Ormastader heitir landspláts í Sanddal fyrir framan
Gestsstaði, og liggur undir beneficium Hvamm í Norður-
árdal að almenníngs sögn. Það ætla sumir, að hjer hafi
bygð verið til forna, og draga það af nafninu og þeim
tóftalíkindum, sem hjer sjást í einum stað“.
„Liósbleikstader heitir annað pláts, enn fremur í daln-
um ogso eignað sama beneficio áðurnefndum Hvammi.
Ómögulegt er hjer aftur að byggja, og engin sjást hjer
byggingamerki, og því til efs hvort nokkurn tíma hafi bygt
verið, en þó nafnið sýnist þar til líklegt".
„Brandakot, fornt eyðiból í Sanddalstúngu landi, hefur
aldrei bygst í manna minni“.
„Melkorkustader nefna menn í Dýrastaða landi, þar sem
tóftaleifar sjást á hól einum í mosamó. Efast menn hvort
þar hafi bygð verið og vita ekkert til þess nema nafnið“.
„Stafholltssel, kallað af sumum Múlasel, er selstaða frá
Stafholti og hefur aldrei bygt verið fyrr nje síðar nema
ein 2 ár fyrir meir en 30 árum“.
Galtarhöfði hefir verið í eyði síðan 1906. Hlíðartún hefir
ekki verið byggt síðan 1885. Nú er það selt undan Sveina-
tungu og lagt til Fornahvamms.
II. Búskapur.
Til þess að gera sér nokkra grein fyrir því, hvernig
fólkinu hefir vegnað hér í sveit á undanförnum árum, er
fe