Svanir - 01.05.1939, Blaðsíða 52
48
Þórður Ólaísson á Brekku, sem var frá fyrstu tíð góð-
ur stuðningsmaður félagsins, hafði um þessar mundir ekki
fast aðsetur hér í dalnum, enda þótt hann ætti hér heima,
svo var og um þann, er þetta ritar, enda þótt hann ætti
ekki heima nema eitt ár annars staðar, 1911—1912, í Staf-
holti, þá dvaldi hann hér ekki að staðaldri fyrr en 1916.
Hér var því enginn til þess að halda á lofti merki ung-
mennafélagsins, og því fór sem fór.
Ungmennafélag er svo stofnað aftur 1927. Þá koma
til nýir menn, ungir og upprennandi, með nýjar hugsjón-
ir og ný áhugamál. Aðalhvatamenn að stofnun þessa nýja
félags voru Hreðavatnsbræður, Daníel og Gestur, og svo
Finnur á Dýrastöðum. Nokkrir af félögum eldri Baulu
gengu strax í hina nýju Baulu og aðrir komu síðar. Enn
þann dag í dag munu vera tveir félagar frá gamla ung-
mennafélaginu í Ungmennafélaginu Baulu, þeir Þórður á
Brekku og Sverrir í Hvammi.
Eins og áður er sagt, hefir ungmennafélagið stutt og
eflt lestrarfélagið og hjálpað til þess að koma upp skóla-
húsi. — En aðaláhrif ungmennafélagsins eru í þeirri
vakningu, sem fylgir því. Það flytur nýjan sið, nýjan boð-
skap. Það stendur fyrir fundahöldum, þar sem ýms mál
eru rædd. Það skapar unglingunum möguleika, sem þeir
höfðu ekki áður, til þess að koma saman og vinna saman
á félagsbundinn hátt. Hefir ungmennafélagið skapað þann
félagsanda, sem síðar hefir orðið heilladrjúgur. Þá hefir
ungmennafélagið staðið fyrir skemmtisamkomum fyrir alla
dalbúa, einni til tveimur árlega. Ég tel stofnun ungmenna-
félagsins fyr og nú eitt af því allra bezta, sem gert hafi
verið til eflingar manndómi og félagslífi, og að hin óbeinu
áhrif þess hafi komið fram í hverju umbótastarfi hér hin
síðari ár.
XV. Kirkja.
Frá ómunatíð hefir verið kirkja og prestssetur í
Hvammi. Á því verður breyting 1911. Hvammssókn er þá
sameinuð Stafholtsprestakalli, og Hvammur þar með lagð-