Vera


Vera - 01.12.1994, Síða 3

Vera - 01.12.1994, Síða 3
nema möðurástin Miðbamið mitt er að breytast úr mömmu- strák í pabbastrák. Eitt kvöldið var ég að segja pabba hans frá sálfræðikenningu sem mér finnst svo skemmtilega skáldleg: Þegar stelpur vaxa úr grasi þurfa þær aö- eins að stíga örfá skref frá mæðrum sínum og inn í kvenhlutverkið sem bíður þeirra. Strákar þurfa hins vegar að yfirgefa mæð- ur sínar og finna brú yfir fljótið sem skilur þá frá feðrum sínum. - Nú er Ásgeir á leiðinni yfir brúna til þín, lagði ég út af kenningunni. Þá gall í Brynju, þriggja ára, sem viö héldum að svæfi: - Má ég fara með Ásgeiri yfir brúna? Brynju líður nú samt ósköp vel í sínum kvennaheimi og hefur takmarkaöan áhuga á að fara yfir brúna til föður síns. - Við erum konur, mamma, hefur hún sagt við mig slðan hún fékk málið. í leik- húsi þriggja ára prímadonna er móðirin langeftirsóttasta kvenhlutverkið. Það er að- alhlutverkið sem keppt er um daglangt I leikskólanum. Þegar ég sæki hana segir hún mér að hún sé mamman og ég sé Lill- an. Ef mér veröur á að kalla hana Brynju segir hún ströng: - Ég heiti Björg Árnadóttir. Svo förum við eitthvað að dunda og hún segir við mig blíðum rómi: - Lillan mín, ég verð að skreppa og taka viðtal! Og bætir viö í skýringartóni: - Það gera mömmur. Mamman sem þetta skrifar tekur stundum viðtöl fyrir Veru. Þegar ég tók að mér að skrifa þennan pistil spurði ég hvaða umfjöll- unarefni væru forboðin um þessar mundir. - Þú mátt skrifa um allt nema móðurást- ina, það eru skilaboö frá lesendum, var svarið. Ég var að koma úr leikhúsi með dóttur minni. Hafði setið með hana, haldið henni þétt upp að mér, skynjaö leikritið með augum hennar og eyrum. Ég var hálf- klökk og hissa á heiminum eftir þessa helgistund okkar. Ég lofaöi aö skrifa ekki um móöurástina þó að mig langaði ekki til að skrifa um neitt annað. Auðvitað á orðiö móðir að vera útlægt úr Veru. Það eru svo margar konur sem ekki eru mæður! Ég hef alltaf talið mig málsvara „öðruvísi- leikans” og predikað frelsi kvenna til að vera einhleypar, barnlausar, fatlaðar, lesb- íur, gyðingar, grænmetisætur... En mér finnst ansi hart ef mæður eru orðnar kúg- aður minnihlutahópur innan kvennahreyf- ingarinnar. í húsum þar sem konur hittast til að ræða kvennamál eru oft leikhorn, en börnin eru litin hornauga. Ég skil vel að konur sem hafa fengið pössun fyrir börn sín þoli ekki truflun af grátandi krökkum annarra kvenna, enda tek ég ekki börnin með nema í neyö. En ég er líka frekar farin að stunda félagsstörf þar sem barnapöss- un er praktískt en ekki hugmyndafræðilegt vandamál, og börnin eru oft virkjuð í þágu málstaöarins. Oft er sagt aö erfitt sé aö virkja ungar konur í kvennabaráttu. Mér finnst það ekkert skrýtið ef litlar stelpur fá þau skilaboö að þær séu ekki velkomnar. Ég held aö kvennahreyfingin ætti að fara að huga betur að nýliðuninni. Björg Árnadóttir Höjundur cr blaðamathir, dagskrárgerðarmaður og kmnari þema Afrekskonur og hvundagshetjur 12-24 Eins og stórt skip 12-13 Frá hvirfli til ilja 14 Ófrjóar eftir botnlangaskurð 15 Sönggleöi 17 Vaknaðu kona! 18-20 fastir liöir Pistill 3 Athafnakonan 4 Frumkvöðullinn 6 Amnesty international 50 Plús og mínus 51 Pistill Auöar Haralds 53 Úr síðu Adams 54 viötöl Eins og nagli I vegg! 7 Stelpur vilja bara vera prinsessur 45 greinar Kvennapólitík til hægri 10 Vangaveltur 11 Launamál - kvennamál 37-39 Kvennabarátta I Bandaríkjunum 40 Stelpur vilja bara vera prinsessur 45 jólin jólin 26-36 fnisyfirlit

x

Vera

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vera
https://timarit.is/publication/858

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.