Vera


Vera - 01.12.1994, Síða 23

Vera - 01.12.1994, Síða 23
fleiri atvinnutækifæ Um miöjan september sl. var Hansína B. Einarsdóttir ráðin í stöðu atvinnuráðgjafa Reykjavíkurborgar, en hjá borginni starfa nú 3 atvinnuráðgjafar. „Markmiðið er fyrst og fremst að hrinda 1 framkvæmd atvinnumálastefnu meirihlut- ans í borgarstjórn Reykjavíkur," segir Hans- ína. „Við erum nú að skoða ýmsar leiðir sem eru færar í atvinnuuppbyggingu borgarinnar og munum leggja fram tillögur við mótun pr- hagsáætlunar borgarinnar. Hér hafa t.d. aldrei fyrr verið starfandi atvinnuráðgjafar þannig að við þurfum að byrja á þvl að safna saman upþlýsingum um alla styrki og sjóði sem lána eða styrkja nýsköpun í atvinnulífi. Hér hefur heldur ekki verið hægt að fá niður- greidda atvinnu- og viðskiptaráðgjöf. Það er sérstaklega mikilvægt fyrir alla sem hafa góðar hugmyndir, en vita ekki hvernig á að hrinda þeim I fram- kvæmd, að fá slíka ráð- gjöf. Á síðustu árum hef- ur fyrirtækjum kvenna fjölgað verulega hér á landi. Konur hafa yfir- leitt mjög góðar við- skiptahugmyndir en þær vantar ráðgjöf og annan stuðning. Iðn- tæknistofnun og Félags- málaráðuneytið buðu landsbyggðarkonum upp á ráðgjöf með námskeiðahaldi, en Reykvískar konur áttu ekki aðgang að þeim námskeiðum. Samkvæmt áætlun ætlar Reykjavíkurborg að bjóða upp á þessa þjón- ustu fljótlega eftir áramót. Síðast en ekki síst er mjög mikilvægt að skapa atvinnumálum Reykvíkinga einhvern samræmdan vettvang, þar sem unnið er markvisst að uppbyggingu og eflingu at- vinnutækifæra í borginni." NÝ JAFNRÉmSÁÆIUUN Reykjavíkurborg eignaðist jafnréttisfulltrúa á þessu ári og má segja að það hafi ekki mátt bíða öllu lengur. Sú sem ráðin vartil starfans heitir Jóhanna Magnúsdóttir og vinnur hún nú að endurskoðun á þeirri jafnréttisáætlun sem verið hefur í gildi frá árinu 1990. íslenskar íþróttakonur hafa látið talsvert til sín taka á árinu, rétt eins og svo margar aðrar konur fijálsíþróttakom Martha Ernstdóttir er ein þeirra íþrótta- kvenna sem náð hafa langt á árinu. Hún setti Íslandsmetí 5000 og 10.000 m hlaupi og í hálfu maraþoni og maraþonhlaupi. Hún varð fjórða í 10.000 m hlaupinu í Evrópu- keppni landsliöa í Dublin á nýju íslandsmeti, í 18. sæti á Heimsmeistaramótinu t hálfu maraþoni og í 19. sæti í Heimsbikarkeppni kvenna í víðavangshlaupum. Martha varð í sjöunda sæti I Frankfurt maraþoni og loks var hún kosin frjálsíþróttakona ársins 1994 á ársþingi Frjálsíþróttasambandsins í októ- ber síðast liðnum. h'iVi 'IOKIAI Islandsmeistari i 6. sinn Karen Sævarsdóttir er ein þeirra kvenna sem hafa átt góðu gengi að fagna á ár- inu. i sumar vann hún sinn sjötta íslands- meistaratitil á jafn- mörgum árum og varð einnig íslandsmeistari í holukeppni á Hellu í sumar. Karen er óumdeilanlega sterkust meðal kvenkylfinga en konur sækja nú mjög í sig veörið í golfinu og fjölgar þeim stöðugt sem taka þátt í golfkeppnunum. stöndum með Kvennalandsliðið í knattspyrnu hefur verið áberandi á árinu enda náði það þeim frábæra árangri að komast I átta liða úrslit í Evrópukeppninni. Konurnar unnu alla sína leiki á árinu nema þá sem þær spiluðu gegn Englendingum en það voru einmitt þeir sem komu T veg fyrir að þær kæmust áfram í Evrópukeppninni. Vanda Sigurgeirsdóttir fyrirliði liðsins hefur látið hafa það eftir sér að konurnar í landsliðinu berjist uns þær Sigrún Huld Hrafnsdóttir hélt áfram sigur- göngu sinni í sundinu á þessu ári og setti hún hvert íslands- og heimsmetið af öðru, bæði hér heima og á Malmö Open mótinu í febrúar, Sænska Opna mótinu í apríl og Heimsmeist- aramótinu á Möltu í nóvember sl. heimsmeistarar í sundi Bám Bergmann Erlingsdóttur gekk líka vel í sundinu og setti hún heimsmet á Malmö Open mótinu og íslandsmet í 50 m flugsundi á Heimsmeistaramótinu á Möltu. skríði út af vellinum. Við getum þvl átt von á enn betri árangri á næstu árum og vonandi fær kvenþjóðin nú meiri stuðning og hvatningu en verið hefur, jafnt innan sem utan íþróttahreyf- ingarinnar. Stöndum með stelpunum!

x

Vera

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vera
https://timarit.is/publication/858

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.