Vera


Vera - 01.12.1994, Page 46

Vera - 01.12.1994, Page 46
blómastelpa g ballerína En hvað gera pabbar? Blómastelpa: „Þeir fara aö vinna. Og sumirtaka rnyndir." Ballerína: „Sumir reykja pípu." Blómastelpa: „Sumir faðma börnin sín og það finnst börnunum notalegt. Pabbi minn gleymir líka alltaf aö búa um rúmið sitt svo að ég geri það alltaf." Ballerina: „Pabbar kaupa í matinn." Blómastelpa: „Sumir pabbar eru bara fóstur-pabbar. Veistu? Ég sá bara fyrsta pabba minn þegar ég var lítil og núna á ég pabba sem er fóstur-pabbi minn.“ Ballerína: „Ég á bara einn pabba." Ef þið mættuð ráöa hvort þið væruð stelpur eöa strákar hvort vilduð þið frekar vera? „Stelpur!" Af hverju? „Af því að þær geta vérið í kjólum og pils- um með blómum," segir blómastelpan. Ballerina: „Líka af því stelpur geta átt börn." Blómastelpa: „Strákar ganga í jakkaföt- um og ekki myndi ég vilja það.“ Hvaða leikurfinnstykkur skemmtilegastur? „Spítalaleikur", segir blómastelpan. „Barbí", segir hin. „Já barbí er rosalega skemmtilegt," segir blómastelpan. Leika strákarnir með ykkur? „Nei,“ segja þær báðar. „Ég leik mér aldrei meö kærustunum mínum," segir ballerínan. „Ég á svo marga kærasta, það er hann Páll Óskar, Viktor og hann Andrés úr Borgarfirði eystra og líka hundurinn rninn." Blómastelpa: „Ég átti kærasta en ég er hætt með honum. Ég nennti ekki að vera með honum. Ég held samt að ég eigi nýjan kærasta núna." Vijið þið ekki leika með strákunum? Blómastelpa: „Nei. Þeir eru alltaf með svo mikil læti. Þeir skemma leikina okkar. Þeir leika sér bara í byssuleik og í turtles- leik." Ballerína: „Stelpur vilja bara hafa það ró- legt, vera búðakonur eða ballerínur og svo- leiðis." Blómastelpa: „Nei, ballerfnur eru alltof æstar. Stelpur vilja bara vera prinsessur." Ballerína: „Já, eða leikfimiskennarar, eru þær nokkuð æstar?" Blómastelpa: „Leik- fimiskennarar eru ágæt- ar. Ég held að stelpur vilji líka vera mömmur með dúkkurí dúkkuleik." Ballerína: „Já, það er rosalega gaman að passa litlar stelpur en ekki stráka því þeir eru með svo mikil læti." „Heyrðu ég vildi að þú værir systir mín þá gætum við alltaf leik- ið okkur saman," segir önnur við hina. „Já og þá gætir þú kynnst mömmu minni," seg- ir hin. „Þá gætum við líka leikið okkur sam- an á kvöldin og ..." í þessum þælingum um draumaheim, líklegast án stráka, kvaddi ég stelpurnar. Á heimleiðinni hugsaði ég til þess tíma þegar ég var lítil stelpa. Ég man ekki bet- ur en að hugarheimur minn á þeim tíma hafi verið ósköp svipaður. Kannski hefur ekki mikið breyst þrátt fyrir allt. Kannski alltof lítið. í bókunum má finna sömu fyr- irmyndirnar og vinsældir þeirra hafa ekk- ert dvínað. í þeim draumaheimi er prinsessum bjargað af prinsum. Það er hins vegar aldrei að vita nema að prinsinn hafi allan tímann verið stelpa. En það er nú önnur saga. Ragnhildur Helgadóttir Ijeilsufœði í?úðarinmr Sérverslun með heilsuvörur og fleira Líttu við! ræna Laugavegi 46 Sími: 622820 línan Olíublettimir hurfu með Ariel Flest lökin, sem ég nota á nuddstofunni eru mistit, svo olíublcttir sjást mjög vel. Eg hef prófað að nota margar tegundir af þvottaefnum, en lökin litu oft út fyrir að vera óhrein, þó þau væru nýþvegin. Eftir að ég byrjaði að nota Ariel er þetta vandamál úr sögunni. Olíublettirnir hverfa alveg og ég er stolt yfír lökunum, sem nuddþegar sjá á bekknum. Auk þess veit ég að Ariel skaðar ekki umhverfíð og umbúðirnar eru úr endurunnum pappír. Það skiptir máli fyrir mig. Að mínu mati er Ariel það besta í dag. / Nuddstofan AKASIA

x

Vera

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vera
https://timarit.is/publication/858

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.