Ritmennt - 01.01.2001, Blaðsíða 98

Ritmennt - 01.01.2001, Blaðsíða 98
ÁSGEIR GUÐMUNDSSON RITMENNT ritari og vararæðismaður við norsku aðal- ræðismannsskrifstofuna í Reykjavík. Þá var hann nýkvæntur bandarískri konu sem hét Alice King Gade.1 Eins og að líkum lætur kynntist Holm- boe mörgum Reykvílcingum og var tíður gestur á heimilum þeirra sem hann um- gekkst. Meðal annars vandi hann komur sínar á heimili landa síns, L.H. Múllers kaupmanns. Holmboe varð syni Mullers, Leifi Muller, mjög minnisstæður, enda áttu þeir eftir að hittast í Noregi á stríðsárunum. Að sögn Leifs var Holmboe mjög sérstæður maður: Hann var liðlega fertugur, stór og myndarlegur með dökkt stuttklippt hár sem eilítið var tekið að grána. Þetta var hámenntaður maður sem tal- aði fjölda tungumála og var einstaklega mælsk- ur. Framkoma hans var svo fáguð að ég veitti henni sérstaka eftirtekt og var ég þó ýmsu vanur í þeim efnum. Kona Holmboes var komin af am- erískum milljónamæringum og stórrík. Þau hjón voru tíðir gestir á heimili okkar og komu stund- um uppí Falkheim þegar veður var gott. Þá var gjarnan setið úti í lundi og drukkið kaffi með líkjör. Þrátt fyrir sína fáguðu framkomu var Holm- boe frekur og sýndi konu sinni ekkert of mikla virðingu. Eg þóttist skynja að á hörpu þessa manns væru ekki allir strengir jafn hljómfagrir. Undir yfirborðinu var einhver kuldi, einhver harka sem ég kunni ekki að meta. Gagnvart mér kom hann þó alltaf kurteislega fram, jafnvel þótt við ættum eftir að mætast augliti til auglitis í réttarhöldum eftir stríð.2 Þó að Holmboe kæmi fram af fyllstu kurt- eisi við þá sem hann taldi standa sér jafn- fætis var annað uppi á teningnum þegar af- greiðslufólk í verslunum átti í hlut. Þetta kom í ljós í marslok 1938 þegar hann lagði leið sína í tvær verslanir í Reykjavík ásamt konu sinni þeirra erinda að kaupa sokka handa henni. I versluninni Gullfossi í Aust- urstræti 1 hafði Holmboe allt á hornum sér og fleygði sokkum sem afgreiðslustúlkan sýndi honum jafnharðan í hana. Hann sagði bestu sokkana sem fengust í versluninni lé- lega vöru, en þeir voru framleiddir á Ítalíu og voru einnig á boðstólum í verslunarhús- inu Harrod's í London. Þegar dóttur verslun- areigandans sem var óvön afgreiðslu varð það á að afhenda Holmboe til skoðunar sokka sem voru ekki af réttri stærð brást hann hinn versti við og sakaði stúlkuna um að reyna að troða upp á sig stærð sem ekki væri hægt að losna við. Að sögn verslunar- eigandans var Holmboe mjög ókurteis allan tímann sem hann var í versluninni, og þá sem voru að versla setti hljóða af undrun yfir framkomu hans. Á sömu lund fór í Verslun Lárusar G. Lúðvíkssonar. Holmboe sýndi þar reiging og frekju að sögn af- greiðslustúlku og lét í ljós þá skoðun með mikilli fyrirlitningu að vörurnar væru léleg- ar og verðið hátt. Að endingu keypti frú Holmboe sokka, en Holmboe hrifsaði þá úr tösku hennar og sagði að hann gæti fengið alveg jafngóða solcka í næstu búð. Jafnframt hélt Holmboe því fram að kona hans hefði ekki beðið um sokkana, afgreiðslustúlkan hefði misskilið hana.3 1 Utenriksdepartementets Kalender for 1939, bls. 169. Utenriksdepartementet: Holmbojej, Egil Anker Morgenstierne. Personregisterkort. Riks- arkivet: Sak nr. 225. Eidsivating lagstol, lands- svikavdelingen. Rettsbok i lagmannsrettssak nr. 26 for 1947. 2 Garðar Sverrisson. Býr íslendingur hérí, bls. 32. 3 Þjóðskjalasafn íslands: Utanríkisráðuneytið. 1967- B/31. Helga Sigurðsson til Stjórnarráðsins, 11.5. 1938. Ingibjörg Vilhjálmsdóttir til Stjórnarráðsins, 12.5. 1938. 94
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116
Blaðsíða 117
Blaðsíða 118
Blaðsíða 119
Blaðsíða 120
Blaðsíða 121
Blaðsíða 122
Blaðsíða 123
Blaðsíða 124
Blaðsíða 125
Blaðsíða 126
Blaðsíða 127
Blaðsíða 128
Blaðsíða 129
Blaðsíða 130
Blaðsíða 131
Blaðsíða 132
Blaðsíða 133
Blaðsíða 134
Blaðsíða 135
Blaðsíða 136
Blaðsíða 137
Blaðsíða 138
Blaðsíða 139
Blaðsíða 140
Blaðsíða 141
Blaðsíða 142
Blaðsíða 143
Blaðsíða 144
Blaðsíða 145
Blaðsíða 146
Blaðsíða 147
Blaðsíða 148
Blaðsíða 149
Blaðsíða 150
Blaðsíða 151
Blaðsíða 152
Blaðsíða 153
Blaðsíða 154
Blaðsíða 155
Blaðsíða 156
Blaðsíða 157
Blaðsíða 158
Blaðsíða 159
Blaðsíða 160
Blaðsíða 161
Blaðsíða 162
Blaðsíða 163
Blaðsíða 164
Blaðsíða 165
Blaðsíða 166
Blaðsíða 167
Blaðsíða 168

x

Ritmennt

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ritmennt
https://timarit.is/publication/859

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.