Dagblaðið Vísir - DV - 15.11.2004, Blaðsíða 3

Dagblaðið Vísir - DV - 15.11.2004, Blaðsíða 3
DV Fyrst og fremst MÁNUDAGUR 15. NÓVEMBER 2004 3 A ■É^ i| | :'H | ‘ • p| I (/XI 2 V J é«>uá£ly Sex tollverðir stóðu fyrir utan húsgagnaverslunina Tú Tú á föstudaginn á meðan starfsmenn verslunarinnar affermdu gám fulian af húsgögnum sem voru að koma til landsins alla leið frá Suður-Afríku. „Ég þurfti að fá vörurnar í hús sem fyrst þar sem ég var búin að ákveða að vera með húsgagnasýningu um helg- ...... ina'“ útskýrir Ali Reza Amous- | hahi eigandi Tú Tú. Hann var hálfhissa á umstangi tollsins sem sendi, auk tollvarðanna sex, þrjá bíla þar af stóran flutn- ingabfl með búnaði til gegnumlýsingar. „Þeir hafa sennilega ekkert betra að gera,“ segir Ali sem er þakklátur tollgæslunni fyrir þjónustuna sem hann fékk við þessar óvenjulegu kring- umstæður. „Ég hefði ekki náð vörunum í hús fyrr en eftir helgi ef þeir hefðu ekki veitt mér þessa sérstöku þjónustu. Vanalega skoða þeir í gámana niðri við höfn," segir Ali. Það var lítið um svör frá starfsmönnum tollsins. Þeir sögðu þetta vera hefð- bundið eftirlit við affermingu gáma. „Þetta eru þung húsgögn sem hann er að flytja inn og þess vegna var ákveðið að gefa honum kost á að afferma gáminn hér en ekki niðri á hafnar- bakka eins og tíðkast. Þetta er stundum gert," sagði tollvörður- inn. Aðspurður um umfang aðgerðanna sagði hann þær vera eftir hefðbundnum aðferðum tollgæslunnar við svona kring- umstæður. Þrátt fyrir að húsgögnin hafi verið heldur seint á ferðinni á leið sinni frá Afríku gátu eigendur Tú Tú staðið við áform sín um að halda sýningu á laugardaginn eins og áætlað var, þökk sé þjónustulund íslensku tollgæslunar. Spurning dagsins Ertu búin að kaupa jólafötin? Færsér fallega svuntu „Nei, er ekki heldur snemmt að gera það? Ég er löngu hætt að kaupa mér sérstök jólaföt, fæ mér frekar ára- mótaklæðnað. Talaðu við mig á meðan ég er að hræra í sósuna á aðfangadag, þá ákveð ég þetta. Ég reyni að vera í þægilegum fatnaði, maðurerá fullu allt kvöldið. Þetta verður svona sparilegur vinnubúningur. Kannski helst að ég fái mér ein- hverja fallega svuntu. Ætli það verði ekki jólafötin í ár." Dóra Takafusa, fjölmiðlakona. „Guð, nei, ekkert farin að spá í þetta. Það er náttúrulega al- gjörtmöstað eiga pels til að fara í á brenn- una. Svo ætla ég að vera með fallega skart- gripi, kannski perlur. Ég býst við að vera í kjól, er venjulega í strigaskóm en er að fara að svissa yfírí háhælaða." Sóley Kristjánsdóttir, DJ og sálfræðinemi. „Já,já auðvitað. Ég verð í Bertoni jakka- fötum. Þau eru svargrá með teinum. Verð í skyrtu, ekkert bindi fyrir mig. Ég ætla vera í brúnum mokkasí- num við fötin. Svo þarfmaður góðan frakka." Sölvi Snær Magnússon, versl- unarmaður. „Nei, ég er ekki búin að kaupa þau. Það er svo langt íjólin, mað- ur gerir þetta á síðustu stundu. Það verðurein- hversvartur kjóllog flott stígvél. Gæti verið að ég fengi mér líka gallabuxur til að nota í veislunum." Chloé Ophelía, verslunar- kona. „Nei ég ferkött- in með bros á vör. Ég á nokk- urjakkaföt reyniaðnota þau. Kaupi föt þegarégséföt semmérlíka. Svo læt ég stundum sérsauma á mig föt. Það er rándýrt kostar svona 100 kall. En þau endast lengur." Fjölnir Bragason, tattúmeist- arí. I dag eru 39 dagar til jóla. Sumir eru byrjaðir að skipuleggja þau en aðrir bíða þartil desember skellurá affullum þunga. Flestir í framhaldsskólum Auðvitað er búið að taka sam- an lista yfir þær tíu þjóðir, hvar flestir flykkjast í framhalds- skóla að loknu skyldunámi, hjá Menningarstofnun Sam- einuðu þjóðanna, UNESCO. Þrjár Norðurlandaþjóðir kom- ast á listann, þó ekki íslend- ingar. Miðað er við hlutfallið af hverjum hundrað unglingum sem heldur námi áfram ein- hvern tíma á fímm fyrstu ár- unum eftir að skólaskyldunni lýkur. FLESTIR í FRAMHALDSSKÓLA Land Stúlkur Piltar Alls 1. Finnland 83,79 91,89 76,01 2. Suður-Kórea 51,97 90,28 71,69 3. Bandaríkin 81,45 62,17 71,62 4. Noregur 81,59 55,74 68,40 5. Svfþjóð 79,05 54,17 66,32 6. Nýja Sjáland 80,25 53,04 66,31 7. Rússland 72,99 57,38 65,10 8. Ástralía 69,80 56,51 63,00 9. Kanada 68,82 51,57 59,99 10. Bretland 64,22 51,81 57,84 SPAKMÆLI „BETRAERAÐ KUNNA NOKKRARAF SPURNINGUN- UM EN ÞEKKJA ÖLLSVÖRIN." James Thurber 1894-1961. ÞAÐ ER STAÐREYND ..AÐJÓ- I ' _ JÓIÐ KEM- URFRÁ FIL- IPSEYJUM ÞARSEM ÞAÐ ER VEIÐVOPN. Skákmeistarinn og viðskiptajöfurinn Margeir Pétursson, forstjóri MP verðbréfa og stórmeistari í skák, er kvæntur Sigriði Indriðadóttur kennara, sem er dóttir Ind- riði Pálssonar, fyrrum stjórnarformanns Skeljungs og umsvifamikils fjármála- manns. Margeir og indriði eru því tengda- feðgar. Margeir hefur getið sér gott orð í viðskiptalífmu. Hann tók meðal annars sæti í stjórn Skeljungs árið 1999 á sama fundi og Indriði lét afstörfum sem stjórn- arformaður. Lykill íu) Hótel Örk FRÁBÆRJÓLAGJÖF INNIFALIÐILYKLUM: Gisting fynr 2, morgunverður af hlaðborði og þrírétta kvöldverður hússins. Tilvalin gjöf handa: Starfsmönnum - Eiginkonunni - Eiginmanninum - Kærustunni Kærastanum - Ömmu og afa - Frænku - Frænda - Vinum JÓLALYKLAR AFHENDAST í FALLEGUM GJAFAPOKA Lyklar frá 13.800,- krónum. Nánari upplýsingar á www.hotel-ork.is Gjafalyklar eru til sölu á Hótel Örk í síma 483 4700 og á Hótel Cabin Borgartúni 32 Reykjavík í sími 511 6030. 4) ENN FÁEINIR MIÐAR LAUSIR Á JÓLAHLAÐBORÐ. VEISLUSTJÓRI FLOSI ÓLAFSSON OG DANSLEIKUR MEÐ STUÐHLJÓMSVEITINNI ÞÚSÖLD. HOTBL ORK

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.