Dagblaðið Vísir - DV - 15.11.2004, Blaðsíða 20

Dagblaðið Vísir - DV - 15.11.2004, Blaðsíða 20
20 MÁNUDAGUR 15. NÓVEMBER 2004 Sport DV Keflvíkingar I rappinu Nokkrir af leikmönnum körfuknattleiksliðs Keflavikur hafa tekið sig til og tekið upp stuðningsmannalag fyrir félagið. í laginu má heyra Arnar Frey Jónsson og Nick Bradford rappa frumsamda texta en það er Gunnar Stefánsson sem syngur viðlagið. Lagið er í þekktari kant- inum og heitir Walk This Way og var gert ífægt af hijómsveitun- um Run DMC og Aerosmith. Keflvíkingar eru ekki einu íþróttamennirnir sem fást við tónlist í frítíma sfnum því hafn- firski handknattleikskappinn Logi Geirsson, sem leikur með Lemgo í þýsku úrvalsdeildinni, var fenginn til að semja lag fyrir lið sitt. Á heimasíðu kappans, www.logi-geirsson.de, má einnig finna frumsamið lag eftir kapp- ann sem hefur vakið mikið lof hjá íþróttaáhuga- mönnum og er honumgreini- ^ iega 7^1 margt y til lista lagt. Jón Arnór Þetta er ekki í fyrsta sinn sem lið- ið virðist beinlínis kafna þegar líða fer á leikinn og mótherjinn er af betri endanum. Haukar stóðu sig einnig vel til að byrja með gegn Kiel heima og heiman en lyktir þeirra leikja eru ekkert sem Haukar kæra sig um að rifja mikið upp. Að sama skapi var tap þeirra í leiknum gegn Savehof of stórt miðað við að í leik liðanna hér heima voru Haukamir með undirtökin allan leikinn og ein- tómur klaufaskapur sem varð til þess að Svíamir jöfnuðu þann leik og náðu þar með mikilvægu stigi. Aldrei vom Haukamir samt lfk- legir til að komast yfir gegn Savehof. Meðalmennskan virtist allsráðandi eins og leikmenn sjálfir trúðu því ekki að þangað væri hægt að sækja stig eins og Páll Ólafsson, þjálfari, vildi meina. Enda sat karlinn á sér mestallan leikinn og starði opin- mynntur á það sem fram fór. Þetta er ekki í fyrsta sinn sem liðið virðist beinlínis kafna þegar líða fer á leikinn og mótherjinn er afbetri endanum. í upphafi var ekki að sjá að Hauk- ar væm lakara liðið enda var jafnt á öllum tölum fyrstu 20 mínútur leiks- ins. Undir lok fyrri hálfleiks fór þó að bera á slæmum mistökum hjá Haukum og Svíarnir gripu tækifærin um leið og þau gáfúst. í seinni hálfleik hélt Savehof áfram að auka það forskot sem þeir höfðu náð og Haukar virtust lítinn áhuga hafa á að komast aftur inn í leikinn fyrr en í blálokin þegar þeim tókst með harðfylgi að minnka muninn í þrjú mörk, 32-29. En það er alltaf erfitt að elta og Haukar eyddu of miklu púðri of seint í leikn- um til að eiga raunhæfa möguleika á að jafna eða komast yfir. Leikmerm Savehof gengu á lagið og klámðu leikinn auðveldlega með sex marka mun 38-32. Birkir fvar Guðmundsson, mark- vörður, stóð sig ágætlega og varði ein fimmtán skot í leiknum en litlum sögum fer af framlagi annara leik- manna. Einna helst var baráttuhug- ur í harðjaxlinum Halldóri Ingólfs- syni en aðrar skyttur og stjörnur Haukanna vom vart sjáanlegar. Þrátt fyrir tapið er lið Hauka komið í EHF keppnina þar sem liðið lenti í þriðja sæti í riðlinum á undan Halldór markahæstur gegn Savehof Gamla brýnið Halldór Ingólfsson var US Creteil sem tapaði á heimavelli markahæstur Haukamanna gegn Savehofá laugardaginn ásamt Þóri Ólafssyni með sjö sínum fyrir Kiel. aibermdv.is mörk' Valencia og Deportivo eru enn ekki komin í toppbaráttuna traustur Dynamo St. Petersburg sigr- aði Lokotmotiv Novosibirsk á útivelli, 103-86, í rússnesku úr- valsdeildinni í körfuknattleik á laugardaginn. Dynamo byrjaði leikinn sterkt og hafði 14 stiga forystu eftir fyrsta fjórðung, 35- 21. Jón Amór Stefánsson stóð sig vel að vanda. Hann skoraði 12 stig, tók 4 fráköst, gaf 4 stoðsendingar og var með fjórar fiskaðar villur. Jón spilar lykilhlutverk í iiði Dynamo og virðist alltaf skila 0 l^, W því sem ætlast M m ertilaf J honum. lifisins í rúss- MaJ , nesku deildinni hefur verið von- ' um framar og hefur Dynamo ’’ —; • aðeins tapað eínum leik af . fyrstu sex það * sem af er. Jakob stiga- hæstur Jakob Sigurðarson, körfu- knattleiksmaður, stendur sig vel með Birmingham Southem í há- skólaboltanum í Bandaríkjun- um. Liðið mætti Alabama A&M í síðustu viku og vann 79-68. Jak- ob var stigahæstur með 24 stig, tók tvö fráköst, gaf tvær stoðsendingar og stal tveimur boltum. Skotnýting Jakobs var góð, 50% í tveggja stiga skotum og nýtti Jakob sjö af tíu vítaskot- um sínurn. Birmingham hafði góða forystu í hálfleik, 47-30 en leikmenn Alabama bitu frá sér svo urn munaði í seinni hálfleik en náðu Jakob og félagar hans engu að síður að halda fengnum hlut. Leikurinn var liður í Coaches Vs. Canver Classi sem er boðsmót sem haldið er til styrktar góðu málefni. Claudio Ranieri, þjálfari meistaraliðs Valencia, er í skotíínu að- dáenda liðsins eftir enn einq dapran leik liðsins um helgina. Lið hans gat aðeins slefað aumt jafntefli gegn Zaragoza á ein- um erfiðasta heima- velli í landinu þrátt fyrir að Ranieri hafi lagt áherslu á sóknarleikinn frá upphafi. Hefur karlinum alls ekki tekist vel upp með liðið hingað til og er komin í sömu spor og hann var hjá Chelsea áður en Mourinho var ráðinn. Hefur Valencia leikið af- leitlega undanfarnar vikur eins og reyndar annað stórlið, Deportivo, en venjan hefur verið að bæði lið séu í toppslagnum ár eftir ár en ekki um miðja deild eins og raunin er nú. Lið Depor hafði þó sigur um helgina á Levante á heimavelli 1- 0 en þrátt fyrir að hafa marga skothelda sóknarmenn í sínum röðum þurfti markið að koma úr vítaspyrnu. Lið Levante heldur þó áfram að koma á óvart enda liðið með- al þeirra efstu í spænsku deild- inni. Þjálfari þess er hinn þýski Bernd Schuster sem margir knattspyrnuáhugamenn þekkja vel enda sjálfur stjarna á sínum tíma. Hann virðist hafa það sem þarf til að þjálfa með góðum ár- angri því áður en hann tók við taumum hjá Levante þjálfaði hann smáliðið Xerez og var ekki langt frá því að koma þeim pilt- um upp fyrir fáeinum árum. Annað félag sem hefur komið á óvart á leiktíðinni er lið Espanyol en leikmenn þess eru vanari að standa í botnbaráttu en að vera nálægt toppnum. Þeir unnu lið Racing Santander um helgina 2-1. alben@dv.is SAVEHOF-HAUKAR 38-32 Mörk Savehof: Jonas Larholm 9, Jan Lennartsson 8, Kim Andersson 7, Erik Fritzon 6, Robert Johansson 5m Tommy Atterháll 2, Joakim Stenqvist 1. Varin skot Savehof: Robert Bladh 3, Per Sandström 15. Mörk Hauka: Halldór ingólfsson 7, Þórir Ólafsson 7, Asgeir Örn Hall- grímsson 5, Vignir Svavarsson 4, Andri Stefan Guörúnarson 3, Freyr Brynjarsson 3, Jón Karl Björnsson 1, Gísli Jón Þórisson 1, Gunnar Ingi Jóhannsson 1. Varin skot Hauka: Birkir fvar Guð- mundsson 15. Þriöja sætið varð hlutskipti Hauka í F-riðli meistaradeildarinnar í handbolta þrátt fyrir slakan leik liðsins gegn Savehof í Svíþjóð á laugardaginn. Það dugir liðinu til að öðlast þátttökurétt í EHF keppnina en miðað við leik liðsins gegn Svíunum þurfa leikmennirnir gott spark í rassinn til að ná árangri þar. IIamIimm / meistaradeildinni Handknattleikslið Hauka reið ekki feitum hesti frá síðustu viðureign sinni í F-riðli meistaradeildarinnar í handbolta þegar liðið mætti Savehof frá Svíþjdð í fyrradag en liðið beið lægri hlut fyrir Svíunum, 38-32. Fyrstu 20 mínútur leiksins tókst Haukum að halda í horfinu en því miður fyrir strákana úr Firðinum er handboltaleikur lengri en það.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.