Dagblaðið Vísir - DV - 15.11.2004, Blaðsíða 12

Dagblaðið Vísir - DV - 15.11.2004, Blaðsíða 12
12 MÁNUDACUR 15. NÓVEMBER 2004 Fréttir T3V Rótarýmenn fækkafötum Félagar í Rótary í NewYorkkoma fram naktir á alman- aki sem kemur út um áramótin. Karl- amir eru orðnir leiðir á hefðbundnum fjár- öflunarleiðum. Þeir fengu hugmyndina úr myndinni Calendar Girls sem fjallar um miðaldra breskar konur sem pósuðu naktar á almanaki. Karlarnir em miðaldra og í misjöfnu formi. Almanakið hefúr mætt mótstöðu annarra Rótarýklúbba og þá kváðu sumar eiginkonumar rauðar af reiði. Ellibelgir tekn- ir meðkókaín Lögreglan í Austurrlki hefúr í nógu að snúast þegar eldri borgarar em annars vegar. Um helgina var hópur eldri borgara handtekinn fyrir eiturlyfjasölu. Um er að ræða glæpaklíku eldri borg- ara sem hafði lifibrauð af því að sjá vændiskonum í Vin fyrir nægu kókaíni. Gömlu mennimir sóttu eiturlyfin til Belgíu og fóm jafnan ak- andi. Málið hefúr vakið at- hygli en stutt er síðan þýskir lögreglumenn handtóku hóp ellilífeyrisþega - þeir höfðu stundað bankarán. DóttirPino- chets iðrast Elsta dóttir Augustos Pinochet, fyrrum einræðis- herra í Chile, viður- kenndi um helgina að hún væri gjör- samlega miður sín yfir 17 stjómarárum föður síns þar í landi. Pyntingar á föngum sem þá hafi viðgengist hafi verið óréttlætanleg villimennska. Opinber skýrsla um pynt- ingamar er í smíðum, byggð á viðtölum við 35 þúsund fyrrverandi fanga. Dóttir Pinochet telur ólíklegt að faðir sinn hafi fyrirkipað pyntingamar sjálfur. „Maður mætir sífellt fleiri brott- fluttum Austfirðingum á götum Reykjavíkur. Samfelldur brott- flutningur var afsvæöinu meö stuttu hléi þegar framsóknar- áratugurinn gekkyfírmeð til- heyrandi skuttogaravæöingu. Um árabil stjórnaði ég þætti í Ríkisútvarpinu sem hét ÚrAust- fjarðaþokunni. Ég byrjað yfír- leitt á sama inngangi:„Sýnt hefur Landsíminn framá ..... að tíundi hluti þjóðarinnar bjó á Austurlandi allt frá land- námstíð og fram undirmiðja 20 öld. Nú búa þar um 4 prós- ent þjóðarinnar. Hvað veldur?“ Það hlýtur að gleðja mitt aust- fírska hjarta að skynja þá bjart- sýni og sjá þá margþættu upp- byggingu sem hafín er á Mið- Austurlandi," segir Vilhjálmur Einarsson, fyrrverandi skóla- meistari á Egilsstööum. Svo virðist sem Jóni Þorra Jónssyni, sem játað hefur rán í Búnaðarbankanum við Vesturgötu fyrir ári, hafi snúist hugur um frásögn sína af ástæðu ránsins. Hann sagðist upphaflega hafa rænt bankann til að greiða skuld við handrukkara. Síðan sagði hann við DV að sagan væri uppspuni. Nú er hann aftur með handrukkara- söguna fyrir dómi. Meintur vitorðsmaður hans neitar að hafa vitað hvað stóð til. Búnaðanbankaræningi vildi friða handrukkara Munur á vasahníf og verkfæri og fræðigrein umdeilds hæstarétt- ardómara voru meðal viðfangsefna í lokaræðum lögmanna í bankaránsmáli sem dómari fékk til umfjöllunar fyrir helgi. Tveir karlmenn á þrítugsaldri, Jón Þorri Jónsson og Helgi Sævar Helga- son, bíða nú dóms vegna ráns sem sá fyrrnefndi hefur viðurkennt að hafa framið í Búnaðarbankanum við Vesturgötu fyrir sléttu ári. Helgi Sævar neitar að hafa átt nokkurn þátt í ráninu. Jón Þorri veitti DV viðtal þegar mál hans og Helga Sævars var þingfest í sumar. Þá sagði hann, spurður um þá frásögn sína við skýrslutöku hjá lög- reglu að handrukkarar hefðu hvatt hann til bankaránsins vegna skulda: „Ég sagði það bara af því að ég vissi að sú skýring yrði auðveld. Auðvitað var það ekki rétt.“ Jóni Þorra virðist þó hafa snúist hugur því við aðalmeðferð málsins nú í október hélt hann sig við hand- rukkarasöguna og þá skýringu að stærstur hluti ránsfjárins, sem var rúmar 400 þúsund krónur, hafi farið í að greiða fíkniefnaskuld. Hvenær er hnífur verkfæri? Jón Þorri rændi Búnaðarbankann við Vesturgötu þann 18. nóvember fyrir ári. Ránið vakti feikna at- hygli enda áttunda bankaránið á árinu, j og í raun það átt- unda á sjö mánuð- ! um. Helgi Sævar beið hans fyrir . utan bankann , og ók á brott | með í héraðsdómi fyrir helgi Jón Þorri bar sig nokkuð vel fyrir dómi en gjaidkerinn sem afhenti honum peningana óskaði eftir þviað Jón viki úrsalnum meðan hún bæri vitni.Jón varð viö þvi. „Þessi hnífur, sem sækjandi kýs að kalla svo, er í raun miklu frekar verkfæri." „Það vill nú svo til að ég á sjálfsvona hníf og veit hversu viðsjár- verðir þeir geta verið." þýfið og Jón innanborðs. Myndavél við umferðarljós varð til þess að Jón var handtekinn strax þá um kvöldið, í hassvímu að spila tölvuleik. Helgi segist ekkert hafa vitað hvað til stóð og Jón Þorri hefur tekið á sig alla sök. Það gerði hann raunar líka í eina dómsmálinu sem hann hefur á sakaskrá og snýst um stuld og misnotkun á Visa-korti í félagi við annanmann. Aðalmeðferð í málinu lauk í gær. Helst bar þar til tíðinda rökræður miili Sigríðar Frið- jónsdóttur sækjanda og verjanda Jóns Þorra, Jóns Höskuldssonar. Fyrst var rifist um hníf sem Jón Þorri hélt á meðan á rán- inu stóð. „Þessi hnífur, sem sækj- andi kýs að kalla svo, er í raun miklu frekar verkfæri," sagði Jón í ræðu sinni og Sigríður var ekki sammála og sagði: „Það viil nú svo til að ég á sjáif svona hmf og veit hversu viðsjárverðir þeir geta verið." Peningar gjaldkera freisting Svipað var uppi á teningnum þegar verj- andi Jóns Þorra reyndi að færa sönnur fyrir því að Jón hefði hvorki haft uppi ógnandi tilburði né heldur hafi hann í raun rænt peningunum, í þeim skiln- ingi orðsins. Vildi verjandinn þá meina að þar sem Jón hefði ekld beitt hnífnum eða beint í átt gjaldkerans og einungis beðið um peninga í poka að þá hefði í raun ekki verið um rán að ræða heldur miklu fremur grip- deild, sem samkvæmt lögum kallar á mun vægari refsingu þar sem ofbeldi er ekki beitt. Máli sínu til stuðnings vimaði hann í fræðigrein Ólafs Barkar Þorvaldssonar hæstaréttardómara sem skrifuð var í afmælisrit Gunnars heitins Schram lögmanns. Breyttir menn „Eg er bara búinn að vera á sjón- um meira og minna síðan þetta gerð- ist fyrir ári,“ sagði Jón Þorri við blaða- mann að loknu þinghaldi í héraðs- dómi í gær. „Ég vona að þessu fari að ljúka enda er ár sfðan ránið var framið. Ég vill fara að taka út minn dóm, hver sem hann verður," sagði hann en Helgi Sævar var ekki við- staddur aðalmeðferðina í gær. Báðir hafa þeir snúið við blaðinu frá því ránið var framið. Það verður verkefni Símonar Sig- valdasonar héraðsdómara að skera úr um hvort hnífurinn sé í raun verkfæri, hvort Jón Þorri hafi tekið eða rænt peningunum og hvort Helgi Sævar hafi í raun verið virkur þátttakandi í ráninu. Það kemur í ljós 2. desember þegar Simon gerir upp málið með dómi. heigi@dv.is Rapparinn OrDirty Bastard allur - skilur eftir sig 13 börn Fékk hjartaáfall í hljóðveri Rapparinn Ol’Dirty Bastard, sem var einn af stofnendum hip-hop stórsveitarinnar Wu-Tang Clan, lést í hljóðstúdíói í New York um helg- ina. Tónlistarmaðurinn, sem hét í raun Russel Jones, hafði kvartað undan verk fyrir brjósti áður en hann datt niður. Sjúkraliðar voru kvaddir á vettvang en tókst ekki að bjarga lífi hans. Dánarorsök hefur ekki verið staðfest en talið er að um hjartaáfall hafi verið að ræða. Dirty Bastard átti sér langan feril sem einkenndist af mikilli eitur- lyfjaneyslu og lögbrotum henni tengdri. Hann var dæmdur í fang- elsi árið 2000 fyrir fíkniefriabrot og sat inni í nær þrjú ár og naut meðal annars meðferðar við geðsjúkdóm- um. Áður hafði hann meðal annars verið handtekinn fyrir hryðjuverka- hótanir, fyrir að vera í skotheldu vesti og vegna gruns um þátttöku í skotbardaga við lögreglu. Talsmaður Dirty Bastard segir dauða hans ekki vegna eiturlyfja- notkunar. Hann hafi ekki neytt eit- urlyfja undanfarið og staðist tilskil- inn eiturlyfjapróf hjá yfirvöldum. „Heimurinn hefur misst mikinn listamann og við sem þekktum hann syrgjum góðan vin," sagði talsmaðurinn. Dirty Bastard lætur eftir sig þrettán böm. OI'Dirty Bastard Látinn aðeins 35 ára gamall.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.