Dagblaðið Vísir - DV - 15.11.2004, Blaðsíða 4

Dagblaðið Vísir - DV - 15.11.2004, Blaðsíða 4
4 MÁNUDAGUR 15. NÓVEMBER 2004 Fréttir I>V Styður Vilhjálm til forystu Gísli Marteinn Baldurs- son varaborgarfulltrúi seg- ist styðja Vilhjálm Þ. Vilhjálmsson til forystu í Reykja- vík. Gísli sagði við DV að staðan nú væri þannig að allar líkur væru á að Vilhjálmur myndi leiða lista sjálfstæðismanna í kosn- ingunum 2006. Hann væri enda reynslumikill og öfl- ugur oddviti listans. Gísli hefúr fullan hug á að halda áfram í borgarmálunum og segir líklegt að prófkjör verði haldið innan flokks- ins. „Ég mun taka þátt í prófkjöri og við sjáum auð- vitað ekki hvernig þetta raðast upp fyrr en að því loknu,“ segir Gísli Mart- einn. Sjónarhóll veitir ráðgjöf Ráðgjafamiðstöð Sjónar- hóls, samtaka langveikra og fatlaðra barna, var opnuð um helgina. Sjónar- hóll hefur verið starfræktur í eitt ár eða síðan 60 milljónir króna söfnuðust í landssöfnun. Peningunum hefur m.a. verið varið til að húsnæðiskaupa að Háaleit- isbraut 13 í samstarfl við Styrktarfélag lamaðra og fatlaðra, Þroskahjálp, Um- hyggju og ADHD samtökin. Rekstur ráðgjafamiðstöðv- arinnar hefur verið tryggð- ur til þriggja ára með ffam- lagi félagsmálaráðuneytis, að upphæð 15 milljónir á ári, og styrkjum bakhjarla sem eru níu milljónir á ári. Mannlaus bíll á ferðalagi Lögreglan á Siglufirði fékk tilkynningu um mann- lausa bifreið sem lokaði aðalgötu bæjarins aðfaranótt sunnu- dags. Lögregla brást fljótt við og ýtti bílnum út af götunni í nær- liggjandi bíla- stæði þar sem lögreglu þótti lfk- legt að bíllinn hefði staðið áður en hann hélt í ferða- lagið út á götu. Að sögn lög- reglu er talið að einhver eða einhverjir pörupiltar hafi verið þarna að verki og ýtt bflnum út á götu en lög- regla veit ekki hverjir voru þar að verki. Slflct mun ekki algengt á Siglufirði. Árni Geir Norðdahl Eyþórsson, 31 árs gamall Reykvíkingur, var handtekinn á leið út af hóteli í Reykjavík siðastliðinn föstudag. Hann hafði þá stuttu áður tekið við nokkur hundruð grömmum af kókaini frá 25 ára gamalli hollenskri konu sem hafði fyrr um daginn komið með flugvél frá Amsterdam. Við húsleit á heimili Árna stuttu síðar fundust svo nokkur hundruð grömm til viðbótar en þar var um að ræða hass. Fjölskyldan í sjpkki vegna kokamsmygls Anna Lögregla verst allra frétta af málinu en samkvæmt heimildum DV hefur Ámi verið undir eftirliti lögreglu um nokkurt skeið, en sími hans hefur meðal annars verið hleraður. Fullvíst er talið að hollensk kona sem flutti efnin til landsins í leggöngum sínum hafi ekki átt annan þátt í innflutningnum en að vera í hlutverki svokallaðs burðardýrs. Árni hefur áður komið við sögu lögreglu en ekki vegna svo umfangsmikilla mála. Hollensk kona kom með flugvél frá Amsterdam um hádegisbilið á föstudag. Samkvæmt heimildum DV var henni veitt eftirför að hóteli í Reykjavík þar sem beðið var eftir því að fíkniefni yrðu sótt. Stuttu eftir kvöldmat sama dag mun svo Árni Geir hafa komið til fundar við kon- una en á leið út af hótelinu var hann handtekinn með kókaínið. Hassið fannst svo á heimfli hans stuttu síð- Með kókaín í klofinu Árni Geir og hollenska konan voru í gær úrskurðuð í tveggja vikna gæsluvarðhald meðan á rannsókn málsins stendur. Ásgeir Karlsson, yfirmaður fíkniefnadeildar lögregl- unnar í Reykjavflc, vildi lítið gefa uppi um hversu mikið magn væri að ræða. Aðeins að þetta hefðu verið nokkur hundruð grömm. Að sögn Ásgeirs var konan sem flutti efnin til landsins að koma frá Amsterdam en flug- vélin sem hún kom með millilenti í Kaupmannahöfn. Kókaínið hafði konan innvortis við komu hingað og er talið líklegt að hún hafi komið þeim fyrir í leggöngum sínum eða endaþarmi, hún hafi skilað þeim fljótlega niður af sér við komu hingað sem bendir til að hún hafi ekki gleypt efnin. Ásgeir segir rannsókn málsins nú beinast að því hvort og þá hvemig fleiri tengist máhnu og hvort konan hafi áður komið hingað til lands í svipuðum erindagjörðum. „Við get- um engari frekari upplýsingar gefið eins og stendur enda rannsókn og yfirheyrslum ekki lokið," sagði Ásge- ir Karlsson. Árni var undir eftirliti Samkvæmt heimildum DV er handtaka Árna Geirs nú og hald- lagning efnanna afrakst- ^ . . ur eftirlits sem hann hefur sætt nokkurt skeið þar sem rökstuddur grunur lögreglu lék á því að hann væri viðriðinn fflcniefnainnflutning. Mun lögregla hafa beitt hlerunum og svokölluðum skyggingum, eftir- liti óeinkennisklæddra lögreglu- manna, í þessu skyni sem leiddu til handtökunnar nú. Lögregla vildi lítið gefa uppi um hvort fleiri aðilar, islenskir eða er- lendir, væru viðriðnir máfið né held- ur hvort fleiri yrðu handteknir í tengslum við það. Móðirin í sjokki Móðir Árna Geirs kvaðst í sam- tah við DV vera hissa á því að sonur hennar skuli nú kom- inn í gæsluvarðhald. „Hvað heldur þú? Auðvitað er þetta mikið „Hvað heldurþú? Auðvitað er þetta mikið sjokk. Hann er sonur minn." sjokk. Hann er sonur minn," sagði móðirin þegar DV náði af henni tah síðdegis í gær. Hún var þá í vinn- unni. Hún segir það hafa komið sér á óvart þegar hún fékk fregnir af því að sonur hennar væri viðriðinn inn- flutning á fíkniefnum. „Þetta kemur okkur mikið á óvart," sagði hún og óskaði þess að ræða málið ekki frek- ar. Hálfsystir Áma tók undir með móður sinni og sagði fjölskylduna í sjokki - engan hefði grunað að slflct gæti verið á ferðinni. Árni Geir hefur að sögn lögreglu komið við sögu hennar áður en ekki í eins umfangsmiklu máli og hann sætir gæsluvarðhalds vegna nú. helgi@dv.is ' V - Kókaín Árni Geir Norðdahl situr nú í gæsluvarð- haldi ásamt hollenskri konu vegna smygls á hund- ruðum gramma afkókalni sem Árni var gnpmn með á leið ut afhóteli ÍReykjavlk þaðan sem hann sótti þau til konunnar. Seinheppni Árna virðist hafgyeriö nokkur því áheimili hans fundustsvo hundruð gramma til viðbótar afhassi. Blóð, þvag og tár í bankanum Svarthöfði og stórfjölskylda hans gengu inn í úúbú íslandsbanka í gær og migu á gólfið. Þvínæst létu þau sér blæða í bland. í kjölfarið bað Svart- höfði Gurrý ömmu, Friðbert afa, móður sína, föður og hinn geðþekka Albert ffænda að bera sig og hlaupa nokkra hringi framhjá stúkum þjón- ustufuhtrúa. Undir spilaði Svarthöfði á nikkuna sína lagið Lih Marlene sem blái engillinn Merlene Dietrich gerði frægt á stríðsárunum. Við andnauð ættmenna sinna hrópaði Svarthöfði Halt! og sótú síð- an um hundrað prósent lán fyrir fjög- urra herbergja íbúð í Breiðholú. Svarthöfði er meúnn á þrjár og hálfa milljón króna á ári. Samkvæmt útreikningum bankanna að gefnum bestu heilsufarsupplýsingum á hann 25 ár eftir ólifuð og er því 87,5 mihjón króna virði. Eftir að ríkið tekur sinn skatt lækkar þessi tala niður í 52,5 mflljónir. Svo borgar hann 80 þúsund á mánuði í íbúðinni, en efúr það er hann 27,5 milljóna virði. Hann þarf að eiga bfl til þess að komast í vinn- una á bensínstöðinni en eftir það hefur hann 18,5 mfllur næstu 25 árin. Hvernig hefur þú það? „Ég hefþaö yndislegt. Ég lýk árlegri tónleikaferð minni ISalnum I Kópavogi á föstudaginn og er i óða önn að undirbúa dagskrána, breyta og bæta. Ég hefferðast svona um landið iseptember og októberí34 ár, alltafá sama tíma.“ Hörður Torfason, söngvari og tónskáld. Svo er það annar rekstrarkostnaður Svarthöfða eins og símreikningur, matur, lækniskostnaður og fleira, fyrir utan andlegan rekstrarkostnað eins og bíó, sem heldur í honum geð- heflsunni og gerir hann starfhæfan. Svarthöfða er reyndar sama hvort hann er lífs eða liðinn. Þótt hann drepist fær hann 70 prósent af laun- um sínum. Hann deyr ekki ráðalaus. Svarthöfði Ufir eins og hlutafélag sem íslandsbanki á meirihluta í. Auð- vitað þarf bankinn að vita hvort í þvagi hans leynist bronkíús eða berklar, rétt eins og bankinn þarf að sjá bókhald þeirra fyrirtækja sem hann á. Hluúr eins og Svarthöfði verða að uppfyUa arðsemiskröfu svo það sé réttlætanlegt að reka hann. Einnig er eðlilegt að bankinn kanni þvag og blóð ættingja hans, því hann þarf að vita stöðuna á tengdum félög- um Svarthöfða. SvarthöfDi

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.