Dagblaðið Vísir - DV - 15.11.2004, Blaðsíða 8

Dagblaðið Vísir - DV - 15.11.2004, Blaðsíða 8
8 MÁNUDAGUR 15. NÓVEMBER 2004 Fréttir DV hermann „ Við stöndum á bak við Scott. Leikmenn liðsins hitt- ust á laugardaginn og fóru yfir málið. Þetta er gríðar- legt áfall fyrir alla." Þegar sjúkraflutningamenn bar að var púlsinn tekinn að veikjast á Flemming Tolstrup. Hann var fluttur á Heilsugæslustöð Suður- nesja þar sem hann var úrskurðað- ur látinn. „Við erum með mjög góða dyra- verði og öflugt eftirlitsmyndavéla- kerfi," segir Páll. „Okkar menn brugðust hárrétt við. Hringdu strax á lögregluna og voru að undirbúa lífgunartilraunir þegar sjúkraflutn- ingamennina bar að. Þetta er mik- ið sjokk fyrir okkur sem rekum staðinn." Flemming Tolstrup var 33 ára þegar hann lést. Viðbrögð danska hersins DV hafði samband við Lone Traehol, offursta í danska flug- hernum. Hún segir að Flemming hafi verið reyndur flugmaður sem hafi dáið við skyldustörf. „Við höfum látið fjölskyldu Flemmings vita,“ segir Lone. „Danski herinn hefur enga lögsögu yfir rannsókninni. Hún er í hönd- um íslensku lögreglunnar. Um leið og rannsókn á líki Flemmings er lokið munum við sækja hann á herflugvél og flytja til Danmerkur. Þar mun fjölskyldan halda minn- ingarathöfn og félagar hans í hern- um votta honum virðingu sína.“ Æfði hnefaleika og drap mann með einu höggi Scott Ramsay er mikill áhugamaður um hnefaleika. _____ Guðjón Vilhelm Sigurðsson, hnefaleikaþjálfari í Keflavík, segir að Scott hafi ætlað að byrja að / \ æfa með hnefaleikafélagi Keflavíkur B.A.G. i / vetur. Hann hafi þó ekki verið byrjaður á / reglulegum æfingum með félaginu. I „Hann hefur mikinn áhuga á hnefaleik- I um, “ segir Guðjón Vilhelm. „Þetta er prýð- \ isdrengur, afbragðsrólegur og ætlaði að \ vera með okkur i vetur. Hann á engan feril \ jÆKSB/ sem boxari þó hann hafi eitthvað æft og hef- \. ur aldrei verið orðaður við ofbeldi." Guðjón Vilhelm segir að í hnefaleikabransanum sé það ekki óþekkt að menn hafi dáið í hringnum við aðeins eitt högg. Stundum myndist eins konar gúlþur í heila manna sem geti sprungið við eitt högg og valdið alvarlegum afleiðingum. „Það er alltafeinn og einn sem er veikur fyrir," segir Guðjón.„Þetta gæti eins hafa gerst við fótboltaskalla og hnefahögg." Knattspyrnumaðurinn Scott Ramsay sló danska hermann- inn Flemming Tolstrup þungu hnefahöggi á skemmtistaðn- um Traffic í Keflavík á aðfaranótt laugardags. Flemming Tolstrup rotaðist og lést skömmu síðar. Málið telst upplýst. Eftirlitsmyndavélar á Traffic tóku árásina upp og fyrir ligg- ur skýlaus játning Scotts Ramsay sem sleppt var úr gæslu- varðhaldi í gær. Danski herinn segir Flemming Tolstrup hafa verið drepinn með skyldustörf. Hús Scotts f Keflavík Fórþangað beint eftir varðhaldið í gær. Á aðfaranótt laugardags réðst Scott Ramsay, leikmaður meistara- flokks Keflavíkur í fótbolta, á Flemming Tolstrup, danskan her- mann. Scott sló hann í höfuðið og Flemming lést skömmu síðar. Vitni á staðnum segja danska hermann- inn hafa verið að daðra við kær- ustu Scotts. Eftirlitsmyndavélar tóku árásina upp og því telst málið upplýst. Scott var sleppt úr gæslu- varðhaldi í gær en vill ekki tjá sig um málið. „Við stöndum á bak við Scott. Leikmenn liðsins hittust á laugar- daginn og fóru yfir málið. Þetta er gríðarlegt áfall fyrir alla,“ segir Rúnar Arnarson formaður knatt- spyrnudeildar Keflavíkur. Hann segir liðið hafa fengið aðstoð prests. Leikmenn reyni að styðja hvorn annan. Átökin milli Scotts og Flemm- ings blossuðu upp á skemmti- staðnum Traffic í Keflavík á aðfara- nótt laugardags. Scott sló danska hermanninn einu hnefahöggi í andlitið og hvarf svo á brott. Lög- reglan handtók Scott á heimili sínu. Að sögn lögreglunnar var hann ofurölvi. Átök á eftirlitsmyndavél Starfsmenn Traffic huguðu að Flemming eftir að hann var sleginn í andlitið. Pálmi Þórarinsson, einn af eigendum staðarins, segir að hermaðurinn hafi verið sleginn í rot. Dyraverðir hafi flutt hann í sér- stakt starfsmannaherbergi og hringt á sjúkrabíl. Barinn á Traffic Fyrir framan þennan bar var danski hermaðurinn Flemming Tolstrup sleginn til bana. Flemming var yfirliðþjálfi í danska flughernum. Hann var feng- inn til að fljúga með sex öðrum her- mönnum sem siglingarfræðingur. í frétt Ekstrablaðsins af málinu kem- ur fram að hermennirnir sex sem voru hér á landi með Flemming hafi hlotið sálfræðiaðstoð og muni snúa aftur til Danmerkur þegar rannsókn málsins er lokið. Scott Ramsay á að baki farsælan feril sem knattspyrnumaður hér á landi. Hann er skoskur, 29 ára gam- all. danski hermaðurinn vera að reyna við unnustu sína. Scott hafi á ákveðnum tímapunkti farið út og þá hafi Flemming fært sig upp á skaftið. Þegar Scott sneri aftur hafi runnið á hann æði og hann slegið Danann. Lögreglan í Keflavík handtók Scott Ramsay seint á aðfaranótt laugardags. Hann var á laugardag- inn úrskurðaður í gæsluvarðhald Scott sloppinn Lögreglan í Keflavík vildi sem minnst gefa upp um atburðarásina sem varð til þess að Flemming Tolstrup lét lífið. DV ræddi við vitni á staðnum sem sagði að Scott hefði verið af- brýðisamur. Honum hefði þótt

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.