Dagblaðið Vísir - DV - 15.11.2004, Blaðsíða 14

Dagblaðið Vísir - DV - 15.11.2004, Blaðsíða 14
74 MÁNUDAGUR 15. NÓVEMBER 2004 Fréttir T3V Fullnægingartæki fyrír konur I # Læknar hafa fundið upp fyrir slysni tæki sem veitir konum raðfullnægingar. Dr. Stuart Meloy hefur ver- ið að vinna að nýju tæki sem dregur á verkjum t hrygg og öxlum. Litlum rafskautum er komið fyrir á hryggnum og straumi hleypt á sem örvar miðtauga- kerfið og dregur þannig úr spennu og sársauka. Dr. Meloy var að prófa tækið á einum af kvenkyns sjúk- lingum sínum þegar hún byrjaði að stynja og skjálfa og stífnaði öll upp. Læknirinn hélt hann væri að kvelja sjúklingin og flýtti sér að slökkva á rafskaut- unum. Þegar konan náði andanum aftur sagði hún undrandi lækninum að hún hefði fengið óvænta og afara kröftuga fullnægingu. Dr. Meloy hyggst þróa tækið áfram og vonast til að með því sé hægt að hjálpa konum sem eiga i erfiðleikum með að fá full- nægingu. Hettusótt- artilfellum Sölearí reuandi Hettusóttartilfellum hjá unglingum og ungu fólki í Bretlandi fjölgarmeð árunum. Llklegasta skýringin ersú umræða sem verið hefur þar í landi um tengsl hettusóttarbóluefnisins við einhverfu. Þegar umræðan kom upp hætti fólk að þiggja bólusetn- ingu við sjúkdómum. Hettusótt get- ur valdið alvarlegum fylgikvillum eins og heilabólu, heyrnarskerðingu og bólgu i eistum sem getur valdið ófrjósemi. Vítamín og bætiefni eru seld undir ýmsum formerkjum; sögð virka á þennan eða hinn kviUann. Steinar Aðalbjörnsson næringarfræðingur segir fólk oft kaupa köttinn í sekknum og hér að neðan svarar hann ýmsum fullyrðingum um þessi efni. Satt & logiöjim heilsuvörun Ginseng gerir þlg gáfaðri: Ekkert er í vísind- unum um það hvort ginseng geri mann gáf- aðri. Hitt er annað mál að flestar tegundir af ginseng hafa einhver örvandi áhrif og við örvun miðtaukerfis, þ.m.t. heilans, má vel vera að fólki finnist það vera gáfaðra. A-vftamín bætir sjónina: Ef um er að ræða skort á A-vftamíni, sem er tilfellið hjá fæstum (slending- um, þá getur viðbót af A-vítamíni bætt sjónina. Töfralyf gegn tóbaksfíkn og offitu Bretar biða nú spenntir eftir nýju töfralyfi sem væntanlegt er á mark- að á næsta ári. Lyfið er sannkallað töfralyf ef marka má lýsingar fram- leiðenda á virkni þess. Ekki einasta slærþaö á tóbaksfikn fólks heldur dregur það úr matarlystinni. Lyfið gengur undir nafninu Rimonabant og hafa þrjú þúsund sjálfboðaliðar tekið það inn i tilraunaskyni.„Þetta er einstakt meöal og niðurstöðurnar eru hreint ótrúiegar," segir dr. David Haslam, formaður Offitusamtaka Breta. Haslam telur engan vafa leika á að lyfið muni bjarga mannsiifum auk þess sem það muni hafa þau áhrifað kostnaður vegna heilbrigð- isþjónustu minnki. Steinar segir mikilvægt að neytendur geri sér grein fyrir því að margt sem er til sölu hérá landi sé gagnslaust þó svo að neysl- an skapi enga hættu sé fariö eftir ráðleggingum um magn.„Sem neytendur verðum við að vera gagnrýnin á þær upplýsingar sem okkur eru veittar og spyrja hvaðan þessar upplýsingar koma. Efgreinilegt er að upplýsingarnar eru ekki studdar með vísindalegum gögnum og viðskiptasjónarmið ráða hvernig upplýsingarnar eru framsettar, þá er æskilegt að þeim sé tekið með varúð. Við val á fæðubótarefnum, fæðuauka, plöntu- extröktum og öðrum slikum efnum er oft gott að hafa eftirfar- andi að leiðarljósi: Efauglýstir eiginleikar vörunnar eru ofgóðir til að geta verið sannir, þá eru þeir liklega ósannir!" C vítamfn dregur úr skaða af völdum reykinga: Best er fyrir likamann ef fólk reykir ekki. C vítamfn er andoxari og get- ur því dregið úr skaðlegum áhrifum, t.d. súrefnis, á frumu- himnur Ifkamans. Skaðleg áhrif vegna oxunar eru meiri hjá reykingamönnum en hjá þeim sem ekki reykja. Það virðist sem neysla á C vftamfni geti komið að gagni við að draga úr oxunarskaðsemi reykinga. Kreatfn gerir þlg sterkari: Talið er að við getum bætt ákefð f stuttum, snörpum átökum ef við neytum fæðubótarefna sem innihalda kreatfn. Niðurstöður rannsókna, sem nær eingöngu hafa verið gerðar á karlmönnum 18-35 ára, benda til þess að neyslan sé án óæskilegra hliðarverkana fyrir þann hóp. Kofffn er fitubrennsluefni: Koffín hefur á óbeinan hátt örvandi áhrif á miðtauga- kerfið, þ.m.t. heila. Við örvun miðtauga- kerfis erum við Ifklegri til að hreyfa okkur og sú hreyfing er í raun ástæða þess að við brennum meiri orku og þar með meiri fitu frekar en bein fitubrennsluáhrif kofffns. Þess ber þó að geta að neikvæðar hliðar- verkanir geta fylgt neyslu á koffínrfkum matvælum og er ófrfskum konum, konum með börn á brjósti, börnum og þeim sem eru viðkvæmir fyrir kofffni ráðið frá þvf að neyta kofffns í miklu magni. B-12 vítamfn læknar þynnku: Það er Ijóst að það gengur á B-vftamínforð- ann við langvarandi drykkju. Aftur á móti er ekkert í vfsindunum um já- kvæð áhrif af stærri skömmtum B- 12 vftamfns á þynnku sem kemur f kjölfar eins kvölds ofdrykkju. Króm dregur úr sykurlöngun: Króm er mikilvægur hlekkur í insúlfnviðbrögð- um Ifkamans. Hjá þeim sem eru með sykursýki geta insúlfnviðbrögðin verið skert og þvf er talið að króm geti hjálpað þeim við blóðsykurstjórnun. Aukin neysla á krómi er ekki talin stuðla að betri blóðsykurstjórnun hjá þeim sem ekki þjást af sykurýki. Sólhattur læknar flensu: Sólhattur læknar ekki fiensu. Mjög mismunandi er þó hvort niðurstöður rannsókna styðja að sólhatt- ur geti dregið úr áhrifum flensu, Ifkt og haldið hefur verið fram með C vftamfn. Sólhattur gerir sennilega ekki ógagn - spurningin er hvort hann gerir gagn. Kalfum er vöðvaslakandi: Kalíum (K) gegnir mikilvægu hlutverki í starfsemi taugakerfis og vöðva. Kalíum hef- ur m.a. hlutverki að gegna í taugaboðum til vöðva um að slaka skuli á herptum vöðva. Styrk kalíum er mjög vel stjórnað f Ifkamanum og fyrir heilbrigt fólk er alger óþarfi, og reyndar óæskilegt, að neyta mikils magns kalíums sem fæðubótarefnis í þeirri trú að það hafi vöðvaslakandi áhrif. Steinar Aðalbjörnsson næringarráðgjafi Svar- ar hér nokkrum fullyrð- ingum um heilsuvörur og | hvað er I raun satt íþeim. D vftamfn styrkir bein: D- vftamín hefur m.a. áhrif á það hversu vel við nýtum kalk úr fæðunni. Kaik er mikilvægt í uppbyggingu og viðhaldi beina og þvf eru það gömul og ný sannindi að D vftamfn og kalk eru nauðsynleg f hæfilegu magni til að móta og viðhalda sterkum bein- um. Hreyfing eykur einnig styrk beina. D-LINK Þráðlaus netbúnaður Innifalið í verði: ( 12.900,- • ADSI mnrlem ----------—---------- ADSL módem Þráðlaus 54 Mbps sendir 4 porta skiptir (switch) Beinir (router) og eldveggur Innifalið í verði: • Þráðlaus 108 Mbps sendir • Þráðlaust 108 Mbps netkort f/ferðavélar

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.