Dagblaðið Vísir - DV - 02.12.2004, Blaðsíða 14

Dagblaðið Vísir - DV - 02.12.2004, Blaðsíða 14
1 14 FIMMTUDAGUR 2. DESEMBER 2004 Fréttir DV • Á tilboðsdögum í verslunum Hagkaups þessa dagana kosta pits- ur frá Freschetta, pepperoni, royal og með osti 293 kr í stað 489 kr. Mackin- tosh dolla með 3 kg. af sælgætismolum kostar 2.999 kr. og kílóið af Óðals ham- borgarhrygg með beini er á 839 kr. í stað 1.398 kr. áður. Ö sérstöku jólaverði og kostar 10.900 kr. Vélin hnoðar, hrær- ir, þeytir, blandar, brytjar, rífur, raspar, tætir og sker í 3,9 h'tra skál. Handþeytari frá sama fyrirtæki kostar 3.500 kr. og mínútugrill er á 7.900 kr. Blandari frá Bosch kostar 5.900 kr. og kaffivél frá Siemens 3.500 kr. • f verslun Smith og Norland í • Fíálft kQó af piparkökum kostar 199 ... ., . T, , _ . , ,, , kr. íverlunumBónussþessadaganaí Nóatuni er Bosch matvmnsluvél á ö stað 259 kr. áður. KQóið af Goða beikoni og Goða skinku er á 499 kr. í stað 998 kr. og kílóið af kofareyktu úrbeinuðu hangilæri er á 1.599 kr. en kostaði áður 1.999 kr. Kílóverð á skagfirsku hangilæri með beini er 999 kr. í stað 1.399 kr. • í verslunni Bílkó í Kópavogi eru bfldekk á tilboðsverði. 155/80R13 kosta frá 4.335 kr. 185/65R14 kosta frá 5.300 kr. og 195/65R15 kosta frá Jóliníárogfyrra Ætla að vinna minna núna Á JÓLUNUM f FYRRA: ,Ég varmiklO bundin viö vinnu I á jólun- um I fyrra og fékk enga rjúpu." A JÓLUNUM f ÁR: „Núna um jólin vinn ég ekki eins mikiO og fæ því meiri tíma til aö njóta þeirra. Svo er ég aö leita aö einhverjum sem getur reddaö mér rjúpu. “ Hip hopdjamm í Exódus Hip hopdjamm veröur haldiö í versluninni Exódus á Hverfisgötunni f kvöld. Þar veröur einnig tísku- sýning þar sem alls kyns fatnaöur sem þarerfáan- legur verður sýndur. Fjöldi listamanna treöur upp,t.d. AntLew/ Maximum sem einnig heldur útgáfutónleika sína í kvöld á Gauki á Stöng, Dóri DNA og félagar mæta á svæöiö, Stríösmenn, Hinir dæmalausu og hljómsveitin Textavarp veröa þarna sömuieiöis og svo DJ Slaughter frá Jamaíku. Tónleikarnir byrja kl. 19.30 og munu standa eitthvað fram á kvöld. Þaö er ókeypis inn og allir velkomnir svo framarlega sem þeir hafí náö 15 ára aldri. Uppáhalds- jolagjöfin mín Plata frá bróður mínum „Ein afmínum uppáhaldsjóla- gjöfum er platan Kiss in the Dreamhouse með hljámsveitinni Suzie and the Banchees sem bróðir minn gaf mér jólin 1982, “ segir Árni Daníel Júlíusson sagn- fræðingur.„Ég á plötuna ennþá og hlustra meira að segja reglu- lega á hana." Leikskólabörn frá Sjónarhóli kíktu í heimsókn á hjúkrunarheimilið Eir í gær og sungu jólalög og þjóðlög í tilefni fullveldisdagsins. Börnin stóðu sig vel og vöktu lukku meðal gamla fólksins. Það var gleðileg stemning á hjúkrunarheimilinu Eir í Grafar- vogi í gær, 1. desember, þegar leikskólabörn frá Sjónarhóli kíktu í heimsókn og sungu jólalög fyrir heimilsfólkið. Krakkarnir streymdu inn, með jólasveina- húfur og litla íslenska fána, og voru einstaklega prúð og stillt. Þrátt fyrir að vera 27 talsins komust þau öll fyrir í lyftunni í húsinu og skemmtu sér ljómandi vel á leiðinni upp í stofu þar sem gamla fólkið beið þeirra. Þau stilltu sér upp og sungu jólalög sem þau hafa æft af kappi undan- farna daga. Tærar barnsraddirnar náðu að skila fegurð og boðskap jólalaganna vel og uppskar hóp- urinn mikið lófaklapp fyrir frammistöðuna. í tilefni fuilveld- isdagsins sungu þau Öxar við ána og sveifluðu fánunum í takt. Undir lokin stóð gamla fólkið upp og söng með börnunum Bráðum koma blessuð jólin. Börnin voru pínu feimin fyrst en það fór fljótt af þeim og tóku þau hraustlega undir. Söngurinn var sérstaklega fallegur og greinilegt að ungir sem aldnir hlakka jafnt til jólanna. Allir hlakka til Á eftir spjölluðu krakkar og eldri borgarar saman. Mátti sjá á krökkunum að tölverð virðing var borin fyrir aldurhnignu fólkinu sem var hlýlegt og vinalegt í fram- komu. „Ég þekki hana langömmu þína“ sagði gamall maður við litla stúlku í bleikum kjól. „Átt þú heima hér með öllu hinu fólkinu?" spurði opinmynntur strákur ! granna konu með rúllur í hárinu. Þrátt fyrir að áratugir skildu hóp- inn að £ aldri var glatt á hjalla. Börn og eldra fólk nær sérstaklega vel saman, enda skilja þau sitt og það betur en aðrir. Þess vegna erum við með fána! Eftir spjallið kvöddu börnin vini sína og fóru í taumi á eftir fóstrunum út, veifuðu bless og Jólin eru sérlega vond fyrir vinnandi fólk þetta árið. Jólin verða þó verri á næsta ári og hagur hinna vinnandi stétta fer ekki að vænkast fyrr en árið 2006. Öhagstæð jól fyrir vinnandi fólk en góð fyrir vinnuveitendur Margir hafa tekið eftir því að jólin í ár em ekki hagstæð vinnandi fólki. Aðfangadag ber upp á föstudag, jóla- dagur er laugardagur og annar í jól- um sunnudagur. Gamlársdag ber upp á föstudag og nýrársdag upp á laugardag og þá eiga flestir frí. Jól af þessu tagi hajfa oft verið kölluð at- vinnurekendajól og er það réttnefni. Jólin nú em þó ekki þau verstu fyrir vinnandi fólk því um næstu jól fækk- ar frídögunum um einn. Þá ber aðfangadag og gamlársdag upp á laugardag - sem þýðir að nýárshelgin er bara eins og venjuleg helgi. Árið 2006 ber aðfangadag upp á sunnudag og em þá brandajól sam- kvæmt gamalli skilgreiningu. Talað er um brandajól þegar fjórir frídagar fást í röð. Árið 2007 fer hagur vinnandi fólks loks að vænkast svo einhverju nemur en þá ber aðfangadag upp á mánudag og fólk fær fimm frídaga í röð. Árið 2008 er hiaupár og jólin það árið best að mati margra sem vinna reglubundinn vinnudag. Aðfanga- dagur er á miðvikudegi þetta árið sem þýðir að fólk getur fagnað jólunum sleitulaust í fimm daga. Á móti kemur stakur vinnudagur á eftir nýársdegi og verður vafalaust vinsæll til frítöku og fólk fær þá aftur fimm daga frí. 12.des. sunnudagur Þriðji sunnudagur í aðventu. Stekkjastaur kemur. 13. des. mánudagur Giljagaur kemur til byggða. 14. des. þriðjudagur Stúfur kemur til byggða. 15. des. 16. des. miðvikudagut fimmtudagur Þvörusleikir kemur til byggða. Pottaskefill kemur til byggða. 17. des. föstudagur Askasleikir kemur til byggða. 18. des. laugardagur Hurðaskellir kemur til byggða. 19.des. sunnudagur Fjórði sunnudagur í aðventu. Skyrgámur kemur. 20. des. mánudagur Bjúgnakrækir kemur til byggða. 21. des. 22. des. þriðjudagur miðvikudagur Jafndægri á vetri. Gluggagægir kemur til byggða. Gáttaþefur kemur til byggða. 23. des. 24. des. fimmtudagur föstudagur Þorláksmessa. Ketkrókur kemur til byggða. Aðfangadagur. Kertasníkir kemur til byggða. 25. des. laugardagur Jóladagur. 26. des. sunnudagur Annaríjólum. 31.des. föstudagur Gamlársdagur. V I

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.