Dagblaðið Vísir - DV - 02.12.2004, Blaðsíða 18

Dagblaðið Vísir - DV - 02.12.2004, Blaðsíða 18
18 FIMMTUDAGUR 2. DESEMBER 2004 Sport DV Stórliðin skoðuð Internazionale frá Ítalíu m Það virðist seint ætla að ren tækar breytingar á liðinu fr* útna fresti en síðustu árin h; þjálfara þetta árið hefur liðii 7900 Tímabilið hjá Internazionale á Ítalíu hófst eins og endranær með flóðbylgju af nýjum leikmönnum og varla þarf að taka fram að nýr þjálfari var ennfremur ráðirm til að hamra hópinn saman. Tvennum sögum fer af þeim kappa, Roberto Mancini, sem áður þjálfaði Lazio og var fyrrum seigur fyrir framan mark andstæð- inga sem sóknarmaður. Færri eru sáttir við þær breytingar sem orðið hafa á leikmannahópnum í sumar . Átján leikmenn hafa annaðhvort verið seldir eða lánaðir og aðrir níu fengnir inn í staðinn. Breytingar af þessu tagi eru árlegt brauð hjá liðinu þrátt fyrir að sagan sýni og sanni að liðið stendur yfirleitt alltaf uppi með tvær hendur tómar að móti loknu. Það er engin tilviljun að Inter hefur um árabil verið þekkt í knattspyrnuheiminum sem sofandi risinn. Á pappír eru nýju leikmennirnir óneitanlega flottur hópur; Zé Maria, Esteban Cambiasso, Edgar Davids, Guiseppe Favaili, Sebastian Verón og Fábian Carini. Allt gæðaleikmenn sem sóma sér vel í hvaða liði sem er. Þeir súrna þó aðeins þegar tillit er tekið til hverjir fóru í þeirra stað. Er þar fyrstan að nefna Fabio nokkum Cannavaro sem einna helst hefur það sér til ágætis að vera einn besti vamarmaður sem ítalir eiga og þó víðar væri leitað. Verra er að Inter lét hann fara til Juventus sem er eitt stærsta liðið sem stendur milli Inter og ítalska meistaratitilsins. Minni nöfn en engu að síður mikilvæg em leik- menn á borð við Matias Almeyda, Sabre Lamouchi, Stephane Dalmat, Okan Buruk og Nicola Ventola. Þó ekki fari þeir í neinn klassahóp er um að ræða trausta leikmenn með mikla reynslu sem veita f það minnsta heil- brigða samkeppni um stöður innan liðsins. Ellefu jafntefli í 13 leiUjum 13tí«ÍSrþessastaðreyndem Ssas-gg"5 sSSgsS meðjafntefliogsíðastisi^ urinn kom gegn udmfcepIÍ TÍAher en Udinese er sem 0 af,r % sæti deildarinnar stendurí3^sænu o{antater fjórum 15 stigum ^Snnafþessumleflqum hefur Inter jafnað leikinnogtryggts stitdð, nú síðast meö tveimur mörkum á síðustu iimínútumgegn juventus. í hinum liðsins Enginn efast um að innan liðs Inter séu leikmenn sem séu síst verri en helstu samkeppnisaðila. Heims- klassaleikmenn á borð við mark- vörðinn Toldo, bakverðina Javier Zanetti og Francesco Coco, miðverð- ina Emre, Stankovic og Karagounis. Þá em ónefndir sóknarmenn liðsins sem hafa margsannað sig í gegnum tíðina. Christian Vieri, Alvaro Rec- oba, Kily Gonzales, Andy Van der Mayde og brasilfumaðurinn Adriano sem margir telja arftaka Ronaldos í landsliði Brasih'u. Það þarf enga geimvísindamenn til að átta sig á að mánuði eða jafnvel ár getur tekið að koma saman sam- stilltum leikmannahópi. Stórliðið Real Madrid er besta dæmið um þetta. Því fleiri stjörnur sem keyptar vom því verr gekk þeim á vellinum. En heilbrigð skynsemi virðist lúta öðrum lögmálum hjá forseta og stjóm Inter en annars staðar. Gangi liðinu illa er þjálfaranum skipt út, fjöldi nýrra leikmanna keyptur til liðsins og byrjað upp á nýtt. Þessi mikla pressa hefúr einnig orðið til þess að horft er aðeins eitt tímabil fram á veginn í einu. Það hefur í för með sér að allt unglinga- starf liðsins, sem er á heims- mælikvarða, fer fyrir h'tið. Eng- inn leikmaður hðsins í dag kemur þaðan. Ennfremur hefur þetta valdið því að færir leikmenn fá ekki að sýna sitt besta em seldir áður en þeir geta blikkað auga Landsliðsmenn á borð við Adrian Mutu, Andrea Pirlo, Ciro Ferrari og Sebastian Frey hófu sinn feril hjá Inter en komu lítið við sögu. Meðal enn stærri stjama sem ekki þóttu hafa nóg ffam að færa á sínum tíma en gerðu það í staðinn annars staðar má nefna Crespo, Kanu, Roberto Car- los, Djorkaeff og Seedorf. Næstum tveir þjálfarar aö meöaltali hvert ár Fyrr á árinu sagði eigandi Inter Milan, Massimo Moratti, sem erfði hðið frá föð- ur sínum, að hann ætlaði sér að draga sig í hlé frá liðinu. Aðdá- endur liðsins sem hafa undan farin ár ekki haft neina ástæðu til fagnaðar héldu beint í ís- skápinn og opnuðu kampa- vínið enda Moratti talirm hafa staðið velgengni liðs- ins fyrir þrifum með sífelldum inngripum í starf þjálfara og leikmanna liðsins frá því hann tók við stjórn hðsins árið 1995. Sterkur (loftinu Christian Vieri er orðinn sóknarmaður númer Um 40 ítalskar vefsíður á net- inu vom á tímabili ein- göngu settar upp til að hvetja karhnn til að snúa sér að öðm. Moratti hafði ein- falda sýn á fótboltann. Ef enginn titih var í skáp hans eftir leik- tíð gat viðkom- andi þjálfari farið beint á at- Einu gilti þá hversu þekktir eða frægir þeir vom. Babb kom hins vegar í bátinn fyr- ir leik Inter gegn Parma fyrir skömmu þegar Moratti skehti sér aftur í sviðsljósið eftir sex mánaða sjálfsskipaða einangrun og fór fram á að Mancini þjálfari leyfði öðmm sóknarmönnum hðsins að spreyta sig í stað Christian Vieri. Mancini brást reiður við og breytti engu fyrr en á 70. mínútu þegar hann tók Víeri útaf þegar Parma leiddi 2-0. Níger- íumaðurinn Oba Martins kom inn á og jafnaði leikinn fyrir Inter. Risinn gæti rumskað Þrátt fyrir að hugmynd Moratti hafi verið góðra gjalda verð hefur hann nú greinilega hætt við að hætta afskiptum sínum af hðinu og aðdá- endur famir að troða korktappanum aftur á kampavfnsflöskurnar. Tahð er víst að Mancini muni líkt og for- verar sínir í starfi ekki láta bjóða sér upp á að hafa Moratti horfandi yfir öxl sína 24 tíma á sólarhring. En heilbrigð skynsemi virðist lúta öðrum lögmálum hjá forseta og stjórn Inter en annars staðar. Gangi liðinu illa er þjálfaran- um skipt út, fjöldi nýrra leikmanna keyptur til liðsins og byrjað upp á nýtt. Lítih vafi leikur á að Inter hefur aha burði til að vera með í baráttunni tun lo Scudetto, ítalska meistaratitil- inn. Juan Sebastian Verón hefur ver- ið að leika eins og hann á að sér að vera. Argentínumaðurinn fann sig aldrei í enska boltanum þar sem hann var að mestu notaður í öðmm stöð-j um en hann er vanur að leika. Þakka má Hohend- ingnum Edgar Davids að gengi Barcelona á síðustu leiktí'ð snarbatn- aði og engin spuming er að hann verður hði Inter afar verðmætur. Þeir tveir eiga eftir að hafa mikið að segja um gengi hðsins í vetur en fuhyrða má að miðja Inter er afar vel mönn- uð. Brotalamir liðsins Brotalamir koma hins vegar í ljós þegar vörn og sókn em skoðaðar. Marco Materazzi er ætlað að fyha skarðið sem Cannavaro skhdi eftir í vörn Inter. Kappinn er góður til síns brúks en með eindæmum köflóttur og ekki er hægt að treysta því að hann skili góðu dagsverki leik eftir leik. Carlos Gamarra, Giuseppe Favalli og Ivan Cordoba em reynslu- boltar sem enn geta sett mark sitt á vöm hðsins svo lengi sem sóknar- menn andstæðinganna hlaupa ekki ýkja hratt. Tími Sinisa Mihajlovic,

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.