Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga - 01.06.1925, Page 53

Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga - 01.06.1925, Page 53
FRÁ ÞJÓRSÁRDAL 51 alls ekki tímasett atburðinn ná- kvæmlega. Þar segir svo í 41. kap.: “Það skeði og hér hjá oss á fyrri tímum mjög snemma ég þenki í tíð þessara hiskupa, að eld- ur kom upp í Rauðakömbum, þ. e. fyrir framan Forsá, en fyrir norð- an Skriðufell. Þá var Hagi í miðri sveit og þeirra þingstaður. Sá eld- ur brendi allan Forsárdal, bæði skóga og bæi; það voru alls XI bæ- ir; til þeirra sér enn merki og hétu á Beigaldastöðum, Stöng, Steina- staðir, Sámsstaðir, þar hafði Hjalti á Núpi bú og var þá kristni lögtek- in í landi, því hefir sá eldur seinna upp komið, en hvenær það skeði sérlega veit eg ekki datum”. Þessa skýrslu hafa síðan yngri sagna- menn tekið upp í rit sín eftir Bisk- upa-annálum. Espólín lætur gos- ið vera 1343. Hinir eldri íslenzku annálar geta alls ekki um gos þetta, segir Þorv. Thor. Hins vegar telur Halldór Jakobsson það hafa orðið 1311, sbr. bók hans: Fuld- stændige Efterretninger om de ude i Island ildsprudende Bjerge, bls. 26. En þá heimild telur Þorv. Thor. illa og ómerka; heri hún m.a. víða vott um staka vanþekkingu á landafræði íslands. Frásögn Jóns Egilssonar er mjög óákveðin, og verða naumast dregnar af henni öruggar ályktanir um gos þetta. Þá bendir hún og á ókunnugleik hans á Þjórsárdal. Hvað mun um þá er fjar bjuggu og hermdu þessa frásögu hugsunarlítið eftir Bisk- upa-annálum, án þess að hafa nokkurntíma skoðað Rauðukamba. — Og sjón er sögu ríkari. Þorv. Thoroddsen rannsakar Þjórsárdal og umhverfi hans árið 1888, og kemst þá að þeirri niðurstöðu, að Rauðukambar hafi aldrei gosið. Það eru líparíthryggir mjög gaml- ir, segir hann, og enginn vottur fyrir eldsumbrotum. Ekki getur hann heldur séð þess nein merki, að gosið hafi í dalnum síðan á landnámstíð. Hvaðan er þá hraun- ið í Þjórsárdal neðanverðum kom- ið og hvenær hefir það runnið? Þorvaldur telur víst, að mikill hluti þess hafi runnið upp um sprungur í dalnum sjálfum, og færir sönnur fyrir því í Ferðabók II. bls. 166. Hann telur hraun þetta hafa runn- ið löngu fyrir landnámstíð, því að er dalurinn bygðist, hafi það alt verið hulið jarðvegi. “Bæirnir sum- ir hefðu ekki getað verið þar, sem rústir þeirra eru, ef hraunið hefði ekki verið til áður en þar bygðist,” segir hann. Því er þá enn ósvarað, hversu hin blómlega bygð Þjórsárdals hafi eyðst, en það telur Þorvaldur vafa- laust, að þar hafi verið graslendi og skógar, enda óhugsandi, að jafn- margir bæir hefðu staðið í ófrjóu dalverpi eins og rústirnar þar benda til. Þorvaldur telur dalinn hafa eyðst af vikurfalli, eða það hafi a. m. k. orðið tilefni þess, að hann fór að blása upp. Vikur- hrannirnar svörtu í dalnum, segir hann að stafi frá Heklugosum, en hinar hvítu vikurbreiður, sem séu eldri en landnámstíð, telur hann vera úr gosborg á Landmanna- afrétt, sbr. rannsóknir hans 1889 (Ferðahók II. bls. 170). Ógæfu- valdurinn Hekla á þá að hafa eytt dalinn, að hyggju Þorvalds. Þetta ætti sízt að koma á óvart, því að hún er aðeins rúmar tvær mílur í suðaustur frá Þjórsárdal. Nú vill svo til, að eitt hið mesta Heklugos,
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162
Page 163
Page 164
Page 165
Page 166
Page 167
Page 168
Page 169
Page 170
Page 171
Page 172
Page 173
Page 174
Page 175
Page 176
Page 177
Page 178
Page 179
Page 180
Page 181
Page 182
Page 183
Page 184
Page 185
Page 186

x

Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga
https://timarit.is/publication/895

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.