Fjölnir - 30.10.1997, Blaðsíða 45

Fjölnir - 30.10.1997, Blaðsíða 45
Myndir Þórarinn Leifsson húsið. Þetta er sjúkrabíll Lögreglunnar. Sjúkra- liðarnir hlaupa inn með börur. Þeir koma út skömmu síðar með mann á börunum. Þeir setja hann í bílinn og keyra burt. Dó bíður átekta. Var þetta Engill sem lá á börunum? Rétt í því kemur lögregluþjónn út á tröppurnar. Hann er hávaxinn og þrekinn, svart- klæddur og brynvarinn. Hann er vopnaður. Greinilega sérsveitarmaður. Hann sest upp í bíl- inn og ekur á brott. Þegar allt er orðið kym kem- ur Dó úr fylgsni sínu. Hann lítur vel í kring um sig, svo hraðar hann sér að húsinu. Lyftan býður hann velkominn. — Hvert má bjóða þér að fara? spyr hún. — Tvö, svarar hann. Hann talar hratt. Hann er spenntur og sveittur. Lyftan lokast og opnast á annarri hæð. Hann hringir á bjöllunni hjá Engli. Ekkert svar. Hann hringir aftur og nú lengur. Enn ekkert svar. — Kaða helvítis morbit drulla er að ske? segir hann hátt svo glymur í ganginum. Hvar á hann nú að fá smakk? Hvar á hann nú að fá purpura fyrir Perlu? Ef hún fær ekki pill- urnar sínar væri hún vís til að vera með læti. Hún gæti orðið reið og farið að vekja á sér athygli. Hún gæti jafnvel hlaupið ffam og myndavélarnar gætu séð hana. Hún gæti jafhvel farið að tala við lyftuna og þá væri fjandinn laus. Hún var eftir- lýst. Lyftan mundi tilkynna hana um leið. Hún yrði tekin frá honum. Hann gat ekki ímyndað sér hvað yrði um hann sjálfan. Hann yrði örugg- lega ekki dæmdur af einhverjum sjálfsala eins og gert var í minniháttar málum og almennum aga- og umferðarlagabrotum. Hann vissi ekki hve al- varlegt það væri að hýsa strokubarn en það var örugglega ekki smámál. Hann gæti jafnvel verið sendur til Svalbarða, fangaeyjunnar sem var, af sögunum að dæma, einhver hryllilegasti staður á jarðríki. Hann vissi að þar var ekkert Prógram og engir verðir, bara glæpamenn. Flestir sem fóru þangað komu aldrei aftur. Job slær eiturlyfjasalann með rafmagnskylf- unni. Hann dettur í gólfið með dynk og skelfúr. Höfúðið er reigt aftur, andlitið er afmyndað af þjáningu. Svo slaknar á honum og hann beygir sig í keng. Stynur. Job sparkar í magann á hon- um. — Hélvískastu á djöfúlsins drullulappir! æpir Manús. Svo snýr hann sér að Job. — Við gætum byggt upp ný sólkerfi! Job tekur í hár eiturlyfjasalans og dregur hann á fetur og hendir honum í stól. — En til hvers? Er einhver þörf á því? Eiturlyfjasalinn fylgist undrandi með umræð- unum. Þeir leyfa honum að jafúa sig. Manús hugsar sig um. — Nei, það er kannski ekki nein þörf á því. Þetta er bara hluti af mannlegu eðli að kanna framandi lönd og leggja undir sig meira og meira. Job hristir hausinn og snýr sér að Engli. — Þú ert dópsali, tilkynnir hann hárri raustu. Engill stynur og heldur um magann. — Það er ekki rétt, segir hann. — É e sjötjo- fimm próst örykki... Hann kemst ekki iengra. Manús slær hann með kylfúnni í öxlina og brýmr viðbeinið. Það heyrist smellur. Engill tárast af sársauka og grípur um öxlina. Félagarnir haggast ekki. Þeir em svip- brigðalausir, yfirvegaðir og ákveðnir. — Nú erm öryrki, segir Job. Eigum við að halda þessu áfram eða enu tilbúinn að tala við okkur? Hann snýr sér að Manúsi. — Þetta er bara mgl. Við emm búnir að leggja undir okkur allar plánetur í sólkerfinu og við höfúm ekkert þar að gera. Þetta er bara sóun á auðlindum. — Ka viljiði? E ekkva prop? spyr Engill. Hann horfir til skiptis á þá. Job tekur upp vasatölvu og les af henni. — Þú heitir Engill. Kennitaian þín er 280218 5 4993. Þú ert dópsali. Er það rétt? Engill hugsar sig um og bímr í neðrivörina. — Já, þa e rétt, segir hann lágt. Hann er hræddur. — Hvar geymir þú dópið? spyr Job með sama einræmislega tóninum. Engill hugsar sig um og horfir óttasleginn upp á lögreglumennina. Augun flökta. — Ekki berja mig..., flýtir hann sér að segja. — Ég á ekkert... ég... Manús slær hann í eyrað með krepptum hnefa. Hann detmr í gólfið og æpir. Blóð vædar úr eyranu. Manús snýr sér að Job. Hann er búinn að hugsa sig vel um. Hann talar í tilvitnunartón. — Sko, það fegursta sem hægt er að upplifa er hið leyndardómsfúlla. Sá sem ekki þekkir það og er ófer um að undrast og hrífast, er með nokkmm hætti dáinn og auga hans brostið. Hann brosir stoltur og sparkar framan í Engil sem liggur á gólfinu. Job glottir hæðnislega. — Hvað var nú þetta? — Albert Einstein, svarar Manús og brosir. — Hver er það? spyr Job. Manús hristir höfúðið framan í hann. Hann er orðinn pirraður. — Veistu ekki hver Albert Einstein var? — Nei. — Það vita allir hver Albert Einstein var! — Nú? spyr Job og glennir upp augun. — Ekki veit ég það. Hann lítur snöggt niður á Engil. — Veist þú hver þessi Albert var? Engill fórnar höndum. — Ekki drepa mig! æpir hann. — Það er undir borðplötunni í eldhúsinu. Manús fer inn í eldhúsið. Job hjálpar Engli að setjast. — Aibert Einstein var maðurinn sem fann upp kjarnorkusprengjuna, kallar Manús inn úr eldhúsinu. Svo hlær hann hátt. — Heyrðu, hann er með heilt apótek hérna. Hann kemur fram með lyfjaglös og les á þau. — Kódín. Rítatox. Avaríl og bara allt sem hugurinn girnist. Þú færð minnst tuttugu ára dóm fyrir þetta, jafnvel údegð. Engill er byrjaður að gráta. Hann snöktir og skelfúr og kyngir ört. — Hva viljiði? — Við erum að leita að stúlku, segir Job. Hún er þrettán ára og heitir Katrín Fóstberg. Veist þú hvar hún er? Hann gapir og gjóir augunum á kvalara sína. — É veit ekkert hva... Job dregur upp hníf úr buxunum sínum og handleikur hann. — Hva, hva erta gera? spyr Engill og hallar sér afturábak og ber fyrir sig hendurnar. Job svarar honum engu. — Allt í lagi. Ég get skilið að þú hafir gaman af að fylgjast með þessu, segir hann við Manús. — En þú hlýtur samt að viðurkenna að þetta er algjörlega tilgangslaust. Eldsnöggt sdngur hann Engil í lærið með hnífnum. Hann öskrar og hristist af kvölum. Manús bætir um betur, slær hann aftur á eyrað og öskrar á hann. — Geturðu ekki helvítast til að segja satt, helvítingurinn þinn?! Hann snýr sér að Job. — Mannkynið á eftir að breiðast út um alian alheiminn. Og ef þú skilur ekki hvað það er magnað þá ert þú bara hreinlega heimskur! Job þurrkar blóðið af hnífsblaðinu á bolnum sem Engill er í og setur hann aftur í slíðrið. — Ég nenni ekki að ræða þetta við þig. Þú ert bara fanatík. Þeir bíða átekta, þegja og leyfa Engli að jafna sig. Manús opnar eitt meðalaglasið og hellir inni- haldinu upp í hann. Svo grípur hann um kjálk- ann og lokar á honum munninum. Engill kyngir. Job tekur til máls. — Ef þú hjálpar okkur ekki þá stingum við úr þér augun og skerum af þér eyrun og látum þig svo éta það. Engill veit að honum er alvara. Þessir menn voru til alls líklegir. Hann ræskir sig og skyrpir útúr sér pilium. — Þa er einn gæ sem ún gæti verið hjá..., stynur hann. — Hann er alltaf a vessla ekkva píkudóp en e sjálfúr smakkaus. Ha e eikkva vírd vi ann. — Hvað heitir hann? Engill bröldr á fætur og haltrar að skrifborð- inu sínu og leitar í skúffúm. Lögregluþjónarnir taka vara á sér. >-
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100

x

Fjölnir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fjölnir
https://timarit.is/publication/985

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.