Fjölnir - 30.10.1997, Blaðsíða 73

Fjölnir - 30.10.1997, Blaðsíða 73
Gunnar Smári Egilsson Sovét ísland við að flýja syndina, þannig missum við af lífinu í tilraunum okkar við að halda okkur á lífi. Þessi blessuð skyrauglýsing segir okkur ákveðinn sannleik um sam- félagið. Uppsöfhun strjálla þekkingarbrota og krafan um einkarétt þeirra á sannleikanum hefur getið af sér tvenns konar hind- urvimi. Annars vegar trú á upphafið inntak þessara brota, sá lidi sannleikur sem við getum mælt og endurmælt þenst út og kaffærir þau sannindi eða reynslu sem við getum ekki mælt aftur. Heimsmynd okkar verður því smátt og smátt sýndarveruleiki, samansettur úr þeim fýrirbrigðum sem við getum mælt og vegið. Allt annað — veröldin svo til öll — verður óekta, óskiljanleg, ópen, næstum barbarísk. Hins vegar hefúr þessi oftrú á mælanlegan sannleik hægt og bítandi dregið kjark úr mönnum til að reyna að skilja veröldina í stómm dráttum, en það er ein- mitt sá skilningur sem mannkynið hefúr reynt að öðlast frá upphafi vega. Maðurinn hefúr alltaf verið svo skynugur að hann hefúr vitað innst inni að honum entist ekki aldur til að raða saman smæstu þekkingarbrotum í von um að á endan- um gæfú þau honum heilsteypta mynd. Það er, þar til nú. Nú þykja svona tilraunir barnalegar, eitthvað úr bernsku mannkyns. Þar sem æ færri gefa nokkuð af sér í þessa veru þá hefúr þessi hugsun lítið þroskast. Og þar sem maðurinn get- ur í raun ekki lifað án skilnings á tilvist sinni, stöðu sinni í veröldinni og tilgangs með lífi sínu, þá hafa gamlar hugmyndir um þessi mál lifað langt um aldur fram. Krafa vísindanna um einka- rétt á sannleikanum hefúr því einnig orðið til þess að þær hugmyndir sem þau vildu helst ráð- ast gegn hafa lifað lengur en ella. Og þá kem ég aftur að sögu íslenska sam- félagsins. Hinn ríkjandi þjóðernislegi söguskiln- ingur hefúr fengið að hjara áfram þótt hann sé fýrir löngu hættur að vera gefandi fýrir samfélag- ið. Með góðum vilja mætti segja að hann hefði verið frjór um miðja síðustu öld og síðan afútr á þriðja og jafúvel ffam á fjórða áramg þessarar ald- ar. Menn virðast þá alla vega hafa getað spunnið úr honum hugsun sem eitthvert líf er enn í. En lengst af hefúr þessi sögu- og samfélagsskilningur verið lamandi. Hann hefúr getið af sér eintóna samfélag, hægt á umræðu innan þess, hindrað eðlilegan þroska. Við höfúm lullað þetta áfram með handónýtan söguskilning að leiðarljósi. 5. Hwað ber nð gem?______________________ EINSKONAR NIÐURSTAÐA Snemma í haust sat ég við eldhúsborðið heima og velti fýrir mér hvað ég ætti af mér að gera. Þetta er minn daglegi vandi. Ég vakna ætíð veg- laus og áttavillmr. Fyrsm tvo tímana eftir að ég vakna leita ég að þræði til að spinna mig eftir. Spyr sjálfán mig: Ef þú værir ég, hvað myndirðu gera? En ég virði mig ekki svars. Smndum em vandamál manns svo stór að maður hefur ekkert aflögu handa öðmm. Þá heyri ég úr útvarpinu að 10 prósent skóla- barna eigi við hegðunarvandamál að stríða. Er það hegðunarvandamál að sitja við borð og finna ekki næsta leik? Röddin í útvarpinu heldur áffam að segja frá óþekku börnunum. Hún segir að það sem einkenni þennan hóp helst sé að þetta em flest börn ómenntaðra foreldra. Útvarpsmaður- inn spjallar við sérffæðing sem uppgötvaði þessi sannindi og saman komast þeir að því að börnin fái ekki nægan smðning á heimilum sínum, séu tilfmningalega svelt, finni sig ekki í hópi félag- anna í skólunum og beiti því árásargirni, óþekkt og uppreisnaranda til að tryggja stöðu sína í hópnum. Hvað er til ráða? spyrja þeir hver ann- an. Tja, þetta er erfitt mál, meinið liggur hjá for- eldrunum og er því utan valdssviðs skólans. Ég kveiki mér í Camel. Það em mín standard „Bera ajrek hennar á heimsmarkaði tónlistar vott um sterka stöðu popptónlistar á Islandi? Sýnir frami hennar að hér séþroskað tónlistarlíf sem bjóði efnilegum listamönnum upp á kjörskilyrði til þroska? Var eitthvað í viðtökum okkar við tónlist hennar á meðan hún starfaði hér heima sem ýtti undir gáfur hennar í tónlist? Bjuggum við þennan listamann til? Oggetum við séð það á viðtökum okkar við ungum popptónlistarmönnum í dag að við séum enn að? Að Björk sé aðeins toppurinn á borgarísjakanum, að undir búi kynslóðir aflista- mönnum sem ruerist á hvatningu og aðhaldsgagnrýni samborgara sinna?u mótmæli við tilraunum samfélagsins til að þrýsta öllum í sama mót. Bæði pabbi og mamma reyktu Camel, nú em þau líka hætt. Þau em ómenntuð en þar sem ég hef alltaf verið tregur til alls þroska lærði ég seint að vera ódæll í skóla. Bræður mínir voru sneggri upp á lagið. Þegar ég loks rankaði við mér vantaði mig undirstöðuna svo mín upp- reisn var mest fýla og óskilgreindur leiði. Ég hætti ekki í skóla með hvelli eins og þeir, heldur geispa. Eftir snubbótta skólagöngu fóm tveir bræður mínir á sjó. Það var einhvern veginn eðlilegasti leikurinn í stöðunni. Ég lenti hins vegar í nokk- urs konar biðskák sem ædar aldrei að enda. Ég sit við eldhúsborðið heima og bíð eftir að fá biðleik- inn sendan í pósti. Kannski liggur hann undir mottunni við þakherbergið sem ég leigði á Hverfisgötunni sumarið ‘79. Þó það séu ekki nema fimm ár á milli mín og bróðursins sem er næsmr fýrir ofan mig þá held ég að eitthvað hafi breyst milli þess sem við flosnuðum upp úr skóla. Hann fór á sjóinn, það var sjálfsagt mál. Hann er enn á sjónum. Mér fannst oft eins og hann þráði einhvers konar annað líf, en ég hef minna orðið var við það undanfarið. Þegar ég heyri þannig tón í honum velti ég fýrir mér hvort allir beri ekki einhvern trega. Sumir geyma það með sér ævilangt að hafa ekki elt einhverja stelpa ausmr á firði. Mér datt aldrei í hug að fara á sjóinn. Ég fór reyndar tvær vertíðir, en það var ekki vegna þess að mér dyrti það í hug. Það gerðist bara eins og annað í lífi mínu. En það hvarflaði aldrei að mér að verða það sem eitt sinn hét heiðarlegur verkamaður. Milli okkar bræðranna hafði eitthvað breyst. Ég hafði spillst af tíðarandanum. Mér fannst eins og ég væri borinn til annarra kjara en foreldrar mínir. Ég hugsa að börnunum með hegðunarvanda- málið finnist það sama. Ég trúi að þau drekki það í sig þegar forsetinn okkar, forsætisráðherra og öll okkar yfirvöld segja að mennmn sé lykillinn að framu'ðinni. Þau heyra að menntun skilji á milli ríkra þjóða og fátækra. Þegar þau fara til skólastjórans skynja þau vonleysið, vandi þeirra er utan valdsviðs hans. Þau eru önnur eða þriðja kynslóð í skammarkróknum, genísk keis, negrar. Samt finnst þeim þau borin til annarra kjara en foreldrarnir, að þau muni eignast hlut birtunni í bjartri framrið. Þegar ég sit við eldhús- borðið mitt og reyki Camel finnst mér ég geti rakið það eina sem er einhvers virði í mér til stolts sem mamma mín innrætti mér. Og þegar ég heýri af börnunum með hegðunarvandamál veit ég að þetta stolt er arfúr sem liggur eitthvað aftur í aldir, verka- manna- og vinnumannastolt. ^ Eitthvað sem hvíslar að mér að ég sé sá sem ég er, það sem ekki verður tekið af mér. Þannig fer fólk að því að lifa við bág kjör og fábreytilegt líf. Og ég trúi því að án þess öðlist ég ekkert líf þótt lukkan elti mig á röndum. Afhverju er ég að skrifa þetta hér? Æi, ég veit það ekki. Kannski er ég að telja mér trú um að eitthvað sem tilheyri mér sé að glatast, að kra'tk- arnir með hegðunarvandamálin muni ef til vill aldrei átta sig á að þeirra sök er engin. Að það sé ekki þeim að kenna þótt skólakerfið starfi ekki eðlilega nema nemendurnir séu allir svo til eins, í það minnsta með keimlíkan bakgrunn. Krakk- arnir bera enga ábyrgð á tilhneigingu samfélags- ins til að skilgreina öll frávik sem meinsemd. Þau hafa hins vegar fúllan rétt á að krefjast þess að einhvers staðar í samfélaginu heyrist mótvægi við þessar tilhneigingar. Þau eiga rétt á að heyra að það sé ekki óyfirstíganlegt vandamál þótt þeim lyndi ekki í skóla. Það er ekki einu sinni vanda- mál frá sjónarhóli stofúananna. Þær þurfa alltaf á einhverjum að halda til að vinna skítverkin. Þegar þær einn daginn treysta sér ekki til að leyfa ómennmðum krökkunum að tæma ruslaföturnar, munu þær neyðast til að kosta þau á námskeið. lr að er ákaflega útbreiddur misskilningur að líf nútímamannsins sé flókið, að tíminn líði hraðar í dag en í gær, að við sem nú erum uppi höfúm fengið á einhvern hátt illleysanlegra verkefúi en fýrri tíðar menn. Þetta er einskonar sammannleg sjálfsvorkunn. Einhvern tímann í ffamtíðinni munu félagslegir faraldursfræðingar átta sig á upptökunum og á blaðsíðu 32 í símaskránni verða leiðbeiningar um til hvaða viðbragða al- menningur má grípa ef þessi upphafseinkenni skjóta aftur upp kollinum. Lífsverkefni okkar í dag er náttúrlega það sama og ætíð fýrr, að lifa til að deyja. Okkur er ædað að lifa lífinu þannig að við gemm sætt okkur við dauðann þegar hann kemur. Hvernig við fömm að þessu er okkar mál, reyndar eina málið á dagskrá okkar. Og þar sem þetta er mál hvers okkar um sig má orða eðli verkefúisins með öðrum hætti en ég hef gert hér, í raun verður hver að orða það fýrir sjálfan sig. Þótt samanlögð þekking mannkyns myndi trilljónfaldast á morg- un þá losnum við ekki undan þessu prófi. Tilfinning manna fýrir því að tíminn líði hraðar í dag en á síðustu öld — eða jafnvel bara fýrir tuttugu, þrjáriu árum — markast ekki af því að það sé svo gaman í dag að tíminn fljúgi frá okkur. Þvert á móti kvartar fólk yfir að það hafi svo mikið að gera að það komist ekki til þess sem einmitt veitir því mesta gleði. Einhverjir Bandaríkjamenn birtu í fýrra niður- stöður úr könnun sem þeir gerðu til að kanna hvað væri hæft í þessu. í stutm máli þá verja allir þjóðfélagshópar nú — allar stéttir, bæði kyn og allir ald- urshópar — um átta tímum skemur á viku til vinnu, heim- ilisstarfa, uppeldis barna og hvers þess sem hægt er að flokka sem skyldur, en sömu hópar gerðu fýrir þrjátíu árum. ^ Það eina sem gemr skýrt tilfinningu fólks fýrir að tíminn fljúgi frá því er að allir þessir sömu hópar horfa tíu tímum lengur á sjónvarp í hverri viku en fýrir þrjátíu ámm. Pramfarir í atvinnu- og þjóðfélagsháttum hafa því gefið fólki átta tíma á viku til frjálsrar ráðstöfúnar en fólk hefúr kosið að verja þeim í sjónvarpið. Og tveimur tímum betur. Það er ástæðan fýrir að fólki finnst það ekki komast yfir allt sem það þarf að gera og aldrei hafa tíma fýrir sjálft sig. >■ Fjölnir haust '97 73
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100

x

Fjölnir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fjölnir
https://timarit.is/publication/985

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.