Læknablaðið - 01.08.1950, Qupperneq 14
72
LÆKNABLAÐIÐ
Dæmi voru til þess aö hitavott-
ur hélzt vikum saman, en raun
ar var þá oft grunur um aðrar
orsakir til hans. Eins og áður
er sagt voru seiðingsverkir oft
mjög þrálátir, ennfremur
þreyta og magnleysi, Gat þetta
staðið vikum og jafnvel mán-
uðum saman þótt lamanir
væru batnaðar, en öllu meira
áberandi voru þó e. t. v. kvart-
anir um viðbrigðni, taugaó-
styrk, hjartsláttarköst, svita
og svefnleysi.,
Undir lok faraldursins og síð-
ar (jan.—marz) voru nokkrir
sjúklingar sendir í Farsóttar-
húsið í Reykjavík. Voru þeir 24
alls og höfðu allir lamazt að
einhverju leyti. Margir þeirra
kvörtuðu nú um höfuðverk,
stöðugan eða í köstum, en yfir-
leitt hafði ekki kveðið neitt að
höfuðverk fyrr í faraldrinum.
Höfuðverknum fylgdi oft
„þreyta í augum“ einkum við
lestur og sumir töldu að sjón
hefði dofnað. Objektiv ein-
kenni fundust þó ekki við
augnskoðun nema merki um
retrobulbaer neuritis, er einn
sjúklinganna hafði. Margir
voru órólegir og taugaóstyrkir
og áttu erfitt um svefn, Einn
þeirra fékk psychosis depres-
siva, 6 þessara 24 sjúklinga
höfðu, eða fengu meðan þeir
voru á sjúkrahúsinu, einkenni
um arthritis subacuta í limum
þeim, sem lamazt höfðu.
Mænustunga var gerð á 5
sjúklingum á Akureyri í janú-
ar. Voru það allt væg tilfelli án
lamana (annara var ekki völ
Tafla 5.
Mænuvökva-rannsóknir.
*« U
U C C3 .0, 3 ö ■ « b ll d ® .C c U T-< V S c 3 C
£-2 ^ — S C "sfl > u C. s Pro mg, ml. 1 c c .. — >. <*’o
Sjúklingar
á Akureyri
E. J. 9 .... 15 37.8 37.3 3 50±5
A.Á. $ .... 4 37.7 37.0 0 80±5
I. S. $ .... 10 38.0 37.5 80 59±5
B. H. $ ... 3 38.0 37.1 10- 75±5
H. H 5 37.6 37.5 0 ' 4- 4
Sjúklingar
í Reykjavík
G Þ 3 38.2 38.0 50
G. G 4 37.9 37.4 35 -L.
K. K 6 38.3 37.5 18 4