Læknablaðið - 01.08.1950, Blaðsíða 15
LÆKKABLAÐIÐ
Tafla 6.
Flokkun hvítu blóðkornanna.
Samanburður á 12 sjúklingum á Akureyri og heilbrigðu fólki.
73
á þeim tíma). Lítils háttar
frumuaukning fannst í mænu-
vökva frá tveimur og nokkur
eggjahvítuaukning í öllum
nema einum. í mænuvökva frá
3 sjúkl. í Reykjavík með sams
konar einkennum (sjúkl. í Far-
sóttarhúsinu) fannst og frum-
aukning (tafla 5).
Tafla 6 sýnir flokkun hvítu
blóðkornanna í blóðstrokum
frá 12 sjúklingum á Akureyri,
voru þær teknar í janúar 2—14
d. eftir byrjun veikinnar (7 á
2.—5. degi). 300 blóðkorn voru
talin hverju sinni þvert yfir
blóðstrokuna, Ni ðurstöðurnar,
eru innan þeirra marka, sem
fundizt hafa með sömu aðferð
hjá heilbrigðu fólki (1).
Eftirgrennslanir
haustið 1949.
Fram á sumar og haust 1949
kvörtuðu enn margir um eftir-
stöðvar veikinnar. Voru nú 57
manns á Akureyri skoðaðir all
ítarlega í september og gefa
töflur 7 og 8 yfirlit yfir árang-
urinn. 42 af þessum 57 eða 74%
höfðu um eitt skeið fengið lam
anir.
Flest þetta fólk hafði að vísu
hafið vinnu á ný, en aðeins 6
(11%) töldu sig hafa náð full-
um bata, 11 (19%) töldu sig
enn lamaða að einhverju leyti
þó ekki ylli það verulegri ör-
orku,
Algengustu kvartanirnar nú
voru um taugaóstyrk eða við-
brigðni, þreytu og verki (tafla
7). Sjö (12%) kvörtuðu um
minnisleysi og 9 (16%) um
svefnleysi. Eftirtektarvert er
hve þrálátir verkirnir höfðu
verið, ,,þreytuverkir“ í baki og/