Nýtt Helgafell - 01.10.1956, Page 8
102
NÝTT HELGAFELL
hennar til þessa er setning bráða-
birgðalaga um kaupbindingu og
verðfestingu til áramóta. Vafasamt
er, að fyrri ríkisstjórnin hefði fengið
slíka löggjöf viðurkennda af samtök-
um launþega. En það sem þá var
afturhald og árásir á lífskjör alþýðu
manna er nú skrautfjöður hinnar
vinstri stefnu.
Um þetta er ekki nema gott eitt
að segja, að svo miklu leyti sem
sjálf aðferðin við setning bráða-
birgðalaganna samrýmist þeim
lýðræðishugmyndum, sem almenn-
ingur á íslandi heíur tamið sér.
Mönnum hefur orðið það æ
ljósara á síðustu árum, að efna-
hagsmálum verður trauðlega komið
á réttan kjöl án skynsamlegrar
stefnu í launamálum. Það hefur hins
vegar verið ein af afleiðingum ein-
angrunar kommúnista í íslenzkum
stjórnmálum, að þeir hafa talið sér
óhætt að reka hentistefnu á ýmsum
sviðum. Nú hafa þeir sjálfir tekið á
ný nokkurn hluta ábyrgðarinnar og
fljótt fundið nauðsyn þess að skipta
um stefnu í ýmsum málum. Ábyrgðin
er skóli, sem öllum stjórnmálamönn-
um er hollt að ganga í við og við.
Hitt verður íslenzka þjóðin að gera
upp við sig og leiðtoga sína, hve
mikið er leggjandi í sölurnar fyrir
skólagöngu kommúnista.
r-----------------------------------------^
Mánudagsvísa
í fyrradag unni ég yður,
en átti mig sjálfur í gær.
Ó, hvílíkur helgidagsfriður
heilaga, gleymda mær!
C.
s-----------------------------------------4