Sveitarstjórnarmál


Sveitarstjórnarmál - 01.06.1995, Qupperneq 16

Sveitarstjórnarmál - 01.06.1995, Qupperneq 16
AFMÆLI Pálmar Guðjónsson, fv. skólastjóri, gengur aö veisluboröi en Þorsteinn Hjart- arson skólastjóri bi'öur átekta. Á hreppsfundinum 15. apríl kom fram vilji fyrir því að byggja húsið „austur á holti“, eins og það er orðað - og gekk það eftir. Bændumir á Húsatóftum, þeir Eyjólf- ur Gestsson og Vigfús Þorsteinsson, létu land undir hús- ið, gáfu 1 ha., og seldu annan á 100 krónur, en landið var þá óskipt milli jarðanna. Hafist var handa við bygginguna föstudaginn 2. júní með því að 20 menn fóm að grafa fyrir skólahúsinu og leggja veg heim af þjóðvegi. Fyrst var skólahúsið steypt upp en síðan farið að byggja leikfimisalinn. Unnu við þetta 20-30 manns óslitið allan júnímánuð, 6 daga vik- unnar - og var lokið að steypa húsið upp 1. júlí eða á tæpum mánuði. Öll steypumöl var sótt á Mumeyri á hestvögnum og einn daginn var ekið 160 vögnum af möl. Ég tók þátt í því ævintýri, þá 11 ára gamall sem kúskur í 2 daga. Man ég langa vagnalest sem silaðist áfram, hver strákur teymdi á eftir sér tvo hesta - og var mikið kapp í okkur strák- unum að dragast ekki aftur úr. Auðvitað vorum við gangandi en munum hafa setið í tómu vögnunum til baka og keyrt klárana áfram. Á byggingarstaðnum var mikill manngrúi og ys og þys. Hópur vaskra manna hrærði steypu á mörgum pöllum, sumir möl en aðrir vikur. Skólahúsið sjálft var einangrað með vikri þannig að blöndumar vom settar sam- hliða í mótin en járnplata höfð á milli og dregin upp jafnóðum. Hópur smiða vann við mótauppslátt og við að taka á móti steypunni sem rétt var að í föt- um og síðan lyft af pöllum. Það var kapp í mönnum og áhugi á að drífa húsið upp. Þegar húsið hafði verið steypt upp fóru flestir til síns heima til að sinna slætti og öðmm búverk- um, en smiðir fóm að gera yfir húsið. Sunnudagurinn 16. júlí var stór dagur í sveitinni og líf og fjör í gamla skólahúsinu heima á Húsatóftum. Það vom alþingiskosningar, kvenfélagið hélt upp á 25 ára af- mæli sitt - og haldið var reisugilli nýja skólahússins. Það var dmkkið kaffi, sungið og dansað fram á nótt. Að loknu votviðrasömu sumri sem endaði með úrfelli og árflóði í september - og hey urðu úti á engjum - og að loknum haustönnum hófust heimamenn aftur handa við húsbygginguna. Byggingarmeistarinn, múrarinn og einhverjir úr sveitinni höfðu unnið við bygginguna allt sumarið og var henni langt komið. En nú var smíðað, múrað og málað - og laugardaginn 16. desember var nýja skólahúsið vígt. Hátíðina sóttu um 350 manns, heimamenn og gestir. Það var drukkið kaffi, sungið og sex ræður voru haldnar. Vitað er um þrjá ræðumenn, Eirík Jónsson, formann bygging- arnefndar, Helga Elíasson fræðslumálastjóra og Egil Thorarensen, forstjóra Kaupfélags Ámesinga. Og Egill afhenti skólanum klukku frá kaupfélaginu sem lengi hékk uppi í skóla- stofunni. Og húsinu var gefið nafnið Brautarholt. Það ríkti almenn ánægja með húsið og gleði yfir glæsilegu skóla- og samkomuhúsi sem risið var frá grunni. Það var sungið og dansað fram undir morgun. Til eru reikningar yfir byggingarkostnað, allar vinnuskýrslur og fylgiskjöl - og er bygg- ingarkostnaður í árslok 1935 krónur 46.011,74 samkvæmt skýrslu Eiriks Jónsson- ar, oddvita og formanns byggingamefndar, til Séö yfir sallnn í afmællshóflnu. 7 8
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Sveitarstjórnarmál

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sveitarstjórnarmál
https://timarit.is/publication/1063

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.