Sveitarstjórnarmál


Sveitarstjórnarmál - 01.06.1995, Side 18

Sveitarstjórnarmál - 01.06.1995, Side 18
AFMÆLI náðist sá árangur að Skarphéðinsskjöldurinn hékk árum saman á salveggnum í Brautarholti. Dansskemmtanir voru haldnar og leikrit sýnd. Þorra- blót og hjónaböll urðu árlegur viðburður. Brautarholt varð vinsæll skemmtistaður - og miðaldra menn og eldri lifna við þegar minnst er á böllin í Braut- arholti. En réttarböllin þóttu sukksöm, og út af skemmt- anahaldinu risu deilur sem ekki verða raktar hér. Öll aðstaða í húsinu og rekstur þess stórbatnaði þegar heita vatnið fékkst með jarðborun árið 1950 - og má líkja því við happdrættisvinning. Þá opnaði heita vatnið nýja möguleika á Brautarholtssvæðinu sem leiddu síðan til sundlaugarbyggingarinnar og uppbyggingar þar. Kalda vatnið frá vatnsveitu úr Vörðufelli 1962 bætti enn haginn, enda vandræði með vatn áður. Nýjar stoöir reistar til styrktar skóla- starfi Þótt Brautarholtsskóli þætti gott og glæsilegt hús á sinni tíð komu fljótt í ljós ágallar. T.d. var þar aðeins eitt salemi. Ur því var bætt árið 1955 og þeim fjölgað upp í þrjú - en sameiginlega fyrir bæði kynin. Þar var því oft þröngt á þingi á samkomum. A þessum tíma voru glæsileg félagsheimili að rísa í nágrannasveitum og gengi Brautarholts fór að falla sem skemmtistaðar. Börn voru mörg í skólanum og þröngt um þau. Upp úr 1960 urðu mikil fundarhöld í sveitinni um skóla- og félagsmál. Hreppurinn hafði safnað nokkru fé og framfarahugur var í mönnum. Árið 1962 boðaði hreppsnefnd til hreppsfundar um byggingu félagsheimil- is. Málið fékk ekki stuðning, en samþykkt var að leggja fé í sérstakan framkvæmdasjóð. Það er eftirtektarvert nú á dögum umræðna um sam- einingu sveitarfélaga að á árunum 1964/1965 beittu Skeiðamenn sér fyrir viðræðum við nágrannasveitarfé- lögin um að sameina Skeiða-, Hraungerðis- og Gnúp- verjahreppa um unglingafræðslu - og jafnvel alla bama- fræðslu í Brautarholti og byggja þar upp öflugan skóla. Eftir nokkrar viðræður höfnuðu nágrannasveitarfélög- in þessari hugmynd. Skólamir væru fræðslu- og menn- ingarstofnanir sem þau vildu ekki missa. Hreppsnefnd og skólanefnd fóm nú að athuga mögu- leika á því að byggja við húsið til að bæta aðstöðu til skóla- og skemmtanahalds og verða við auknum kröfum sem húsið uppfyllti ekki lengur, enda orðið þrjátíu ára gamalt. Vom margar leiðir ræddar og niðurstaðan varð að fá arkitektana Skarphéðin Jóhannsson og Guðmund Kr. Guðmundsson til að gera uppdrætti. Lögðu þeir fram teikningar þar sem gert er ráð fyrir viðbyggingu í suð- vesturhom hússins og austan við salinn, alls 176 m: á tveimur hæðum. Fjárveiting fékkst úr ríkissjóði og almennur hrepps- fundur samþykkti 6. nóvember 1966 að hefjast handa með byggingar á gmndvelli tillagna arkitektanna þegar leyfi menntamálaráðuneytisins fengist. En nú tóku málin nýja stefnu, svo að viðbygging við Brautarholt dróst í 18 ár. Skólaskyldan var lækkuð í 7 ára aldur veturinn 1966/1967 og unglingadeild var komið á í Brautarholti með Gnúpverjum. En þá vantaði kennaraíbúð og vom heimamenn sam- mála um að það væri forgangsverkefni. Samþykki skóla- yfirvalda og fé fékkst til að flytja inn tilbúið hús frá Dan- mörku. Var það sett niður haustið 1967 og er nú bústað- ur skólastjóra. I annan stað voru skiptar skoðanir um þær tillögur sem fyrir lágu um viðbyggingu við húsið - og málið þannig í sjálfheldu. Menn voru sammála um að styrkja stöðu skólans og hreppurinn átti orðið allmikið fé í framkvæmdasjóði. Því var ákveðið að byggja skólasundlaug og fékkst til þess samþykki skólayfirvalda og fé úr ríkissjóði. Ungmennafélagið lagði einnig fé til byggingarinnar. Skeiðalaug var svo byggð á 4 árum eða frá 1972-1975, og þá tekin í notkun, en endanlega lokið árið 1984 þegar baðstofan var innréttuð. Sundlaugarbyggingin styrkti skólastarfið og opnaði hreppsbúum, yngri og eldri, nýja möguleika í sundiðkun og hollum lífsvenjum. Fjárhagslega kom hreppurinn vel frá þessari byggingu - þótt sundlaugin reyndist dýr. Allvel gekk að fá ríkis- framlag og lán þau sem tekin voru rýmuðu ört í verð- bólgu þess tíma. En nú fóm menn að horfa til fyrri átta um viðbyggingu við Brautarholt. Endurbygging Brautarholts Árið 1981, hinn 5. febrúar, var haldinn sameiginlegur fundur hreppsnefndar, skólanefndar, skólastjóra og stjóma ungmennafélags, kvenfélags og lestrarfélags og þar samþykkt einróma tillaga um „að næsta stórverkefni hreppsins verði bygging við skólann til að fá fram góða skólabyggingu, bætta aðstöðu til félagslífs og pláss fyrir starfsemi hreppsins og félagssamtaka sveitarinnar fyrst um sinn, enda verði stefnt að félagsheimilisbyggingu síðar.“ Jafnframt var kosin 7 manna undirbúningsnefnd frá þessum aðilum en síðan fjölgað í 9. Nefndin starfaði í 3 ár, hélt 11 fundi og kvaddi á sinn fund húsameistara rík- isins, arkitekt, forstöðumann byggingardeildar mennta- málaráðuneytisins, byggingarfróða menn til að taka út húsið og ýmsa fleiri. Jafnframt lét nefndin vinna áfram að teikningum og gera kostnaðaráætlanir um hina ýmsu valkosti. Þá var sótt um fjárveitingu úr ríkissjóði. Ekki var ein- hugur í nefndinni og vildu tveir nefndarmenn frekar byggja nýjan skóla en byggja við þann gamla. Á síðasta fundi nefndarinnar 14. nóvember 1983 var 80

x

Sveitarstjórnarmál

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sveitarstjórnarmál
https://timarit.is/publication/1063

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.