Sveitarstjórnarmál


Sveitarstjórnarmál - 01.06.1995, Side 23

Sveitarstjórnarmál - 01.06.1995, Side 23
ÞJÓÐLEGUR FRÓÐLEIKUR Söfnun og varðveisla þjóðsagna og annarra þjóðlegra fræða Enda þótt sýnt væri fyrir um það bil sex áratugum að hin foma menn- ing bænda og útvegsbænda riðaði til falls, reyndist arfur hennar samt drýgri en flestir þorðu að vona, svo að nokkurt tóm gafst til að draga furðumargt saman úr ýmsum meginþáttum hennar. I Stofnun Árna Magnússonar, Islandi, eru varðveittar hljóðritaðar heimildir um frásagnarlist þjóðarinnar í munnmælum, misgömlum að vísu, en margt þeirra hefur mótast öldum saman í furðunáinni sambúð við fjölbreyttar bókmenntir þjóðarinnar. Til þessa safns var farið að efna sumarið 1963 og var fyrst í stað að- eins safnað að sumarlagi, en haustið 1966 var tekin upp söfnun árið um kring á vegum Stofnunar Árna Magnússonar. Ævintýrum var safnað af kappi, einkum þegar í ljós kom að þau voru að hverfa úr munnmælum með elstu kynslóðinni, en eins og við mátti búast hefur mest komið í leit- imar af sögnum af ýmsu tagi. Sjald- gæft hefur verið að sagnamennimir hafi getað greint eitthvað frá huldu- fólki, en minnast má á það að göm- ul kona á Ströndum sagði frá heim- sóknum sínum til tveggja huldu- kvenna í bamsnauð. Sagnir af aftur- göngum vom hins vegar miklu al- gengari - tveir heimildarmenn höfðu flogist á við draug, þó að þeir væm miklu fleiri sem höfðu aðeins séð svipi - og ýmiss konar dulrænar sagnir svo sem sagnir um álaga- bletti. Mikil áhersla hefur verið lögð á byggðasagnir enda er bæði í þeim Hallfreður Örn Eiríksson, cand. mag., Stofhun Arna Magnússonar fólginn mikill fróðleikur um lífsbar- áttu manna áður fyrri og eins sést af þeim hvað talið hefur verið minnis- stæðast. Ekki hefur heldur verið lát- ið hjá líða að safna endurminning- um. Jafnframt sjálfri þjóðsagnasöfn- uninni hefur þess verið freistað að safna sem traustustum og fjölbreyti- legustu heimildum um lífsskilyrði þjóðsagnanna. Allmargar hafa verið hljóðritaðar í hópi áheyrenda, t.d. nokkur ævintýri eftir gömlum kon- um sem sögðu þau börnum um háttumál eins og alsiða var áður fyrri. Þá hefur verið aflað heimilda um frásagnarstíl sagnamanna, en um hann er því miður minna vitað en skyldi vegna þess að engin leið var að skrá nákvæmlega eftir sagna- mönnunum nema bundið mál og einnig er ekki vitað nema frumtext- um hafi verið breytt við hreinritun. Enn sem komið er hafa ekki nema örfáir textar úr þjóðsagnasafni Stofnunar Áma Magnússonar verið birtir. Sumir þeirra eru í safninu frá liðinni tíð, bæði á snældu og fjölrit- uðu kveri ásamt skýringum, en að útgáfunni stóð Námsgagnastofnun í samvinnu við Stofnun Áma Magn- ússonar árið 1984. Aðrir eru í Is- lenskum úrvalsævintýmm sem Mál og menning gaf út 1986. Ástæðan til þess að ekki hefur verið seilst oft- ar í þjóðsagnasafn Stofnunar Áma Magnússonar er sú að brýnna hefur þótt að sinna söfnuninni en tíma- ifekri afritun af segulbandsspólun- um. Ekki verður samt vikist undan því öllu lengur að afrita þetta ein- stæða safn, því að aldrei er að vita hvað koma kann fyrir segulbands- spólumar enda þótt þær séu í góðri geymslu. Þá væri heldur ekki ónýtt fyrir áhugamenn um sagnaskemmt- un að geta fræðst um list sagna- manna fyrri tíma en til þess að text- amir geti gegnt því hlutverki sínu þurfa þeir að vera tiltækir almenn- ingi í vönduðu úrvali. 85

x

Sveitarstjórnarmál

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sveitarstjórnarmál
https://timarit.is/publication/1063

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.