Sveitarstjórnarmál


Sveitarstjórnarmál - 01.06.1995, Síða 24

Sveitarstjórnarmál - 01.06.1995, Síða 24
SÖFN Hugleiðing um safnamál Hallgerður Gísladóttir, sérfræðingur áþjóðháttadeild Þjóðminjasafns Islands, og Sigríður Sigurðardóttir, safnstjóri Byggðasafns Skagfirðinga I allflestum sveitarfélögum á landinu þurfa sveitarstjórnar- menn að hafa afskipti af ein- hvers konar safnastarfi. I þessu greinarkorni verður leitast við að upplýsa nokkur atriði sem snerta vinnu á söfnum og hvað er helst á döfinni í safnamálum, einkum varðandi umræður um svonefnda „söfnunarstefnu". Félag íslenskra safnmanna er rúmlega 100 manna félag sem er opið starfsmönnum á minja-, lista- og náttúrugripa- söfnum. I reynd er þó starfsfólk minjasafna langstærstur hluti virkra félaga. Um helmingur þeirra mætir árlega í svonefndan farskóla, árlegt námskeiðahald safnmanna, þar sem rædd eru mál sem efst eru á baugi og fengnir þarfir fyrirlestrar. I farskólanum í fyrra var t.d. aðalefnið gæðastjómun og í ár bar hæst námskeið um tölvuskrán- ingu, en hún er víða að fara af stað í söfnunum. Bæði í fyrra og í ár urðu töluverðar umræður um söfnunar- stefnu sem til skamms tíma hefur verið lítt þekkt hugtak hér. Víða erlendis þurfa söfn hins vegar að framvísa ná- kvæmri „söfnunarstefnu“ til að eiga þess kost að fá op- inbera styrki. Hvaö er söfnunarstefna? Söfnunarstefna er skilgreining safns á sjálfu sér, á því hverju það safnar, hverju það safnar ekki og hvemig það hagar áherslum í söfnuninni. Söfnunarstefna íslenskra minjasafna hefur yfirleitt verið ein og sú sama. Það er að taka við því sem að þeim er rétt. Aðföng byggjast nánast einvörðungu á gjöfum. Hér verður að geta þess að fram á þessa öld keypti Þjóðminjasafn Islands töluvert af gripum og höfðu safnmenn þar því nokkuð að segja um forgangsatriði í söfnuninni. Nú em kaup safngripa hins vegar afar sjaldgæf. Söfnin of lík? Aðurnefnd stefna, þ.e. að þiggja allt til að styggja engan, hefur tvennt í för með sér. I fyrsta lagi em það oft sömu gripimir sem koma inn í söfnin um allt land. Söfnin verða m.ö.o. mjög lík. í öðru lagi er eins með þetta og margt annað að ef einn gefur t.d. skil- vindu kemur annar á eftir með sína þannig að safn eignast marga gripi sem eru eins. Þetta setur söfnin í nokkurn vanda. Þau sitja uppi með mörg eintök af sumum hlutum á meðan aðra vantar alveg og húsrúm er alls staðar takmarkað, að ekki sé talað um mannskap og að- stöðu til forvörslu. Fá íslensk söfn ráða yfir góðum geymslum. Erlendis hafa söfn víða heimild til grisjunar ef það er nauðsynlegt einhverra hluta vegna. Geymslu- pláss í safngeymslum, sem fullnægja nútíma kröfum, er nefnilega dýrt og má kallast bruðl að láta tilviljun ráða hvað þar er vistað. Meðvituð safnapólitík myndi einmitt beinast að því að skipta verkum á milli safna með það fyrir augum að fylla í sem flestar eyður í íslenskri safngripaflóru. Möguleiki á þessu í nútímanum helst í hendur við tölvuskráningu því án hennar er erfitt að fá yfirsýn yfir hvað yfirleitt er til og hvað menn vantar. Þetta er einkum brýnt hvað varðar móttöku á söfnum á fjöldaframleiddum hlutum frá þess- ari öld. Ætla allir að safna sömu hrærivélunum, þvottavélun- um og dráttarvélunum svo að eitthvað sé nefnt? Hverjir ætla að nálgast það sem vantar og hvemig? Safn er ekki aöeins sýning Og þá komum við að öðmm hlutverkum safna, þ.e. að gera því til góða sem tekið er við og sýna það. Sumir gætu haldið að með því einu að hrúga saman munum í hús og ráða einhvem til að „passa“ part úr degi verði til safn sem stendur undir nafni. Slíkt er misskilningur því að safn er ekki aðeins sýning muna þar sem einhver selur aðgang og lítur eftir að engu sé stolið. Menn verða að gera greinarmun á sýningu og safni. Sýning er hluti safns. Á safni eru gripir geymdir, sýndir og þeim er gert Hallgeröur Gísladóttlr. Sigrlður Siguröardóttir. 86

x

Sveitarstjórnarmál

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sveitarstjórnarmál
https://timarit.is/publication/1063

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.