Sveitarstjórnarmál


Sveitarstjórnarmál - 01.06.1995, Qupperneq 30

Sveitarstjórnarmál - 01.06.1995, Qupperneq 30
SOFN skjalasöfn. Samþykkt var að velja safninu stað á Egils- stöðum og kaupa þar húsnæði yfir það og oddvita heim- ilað að gera ráðstafanir í þeim efnum í samráði við sýslunefndarmenn. Jafnframt var oddvita falið að leita bindandi samkomulags við önnur lögsagnarumdæmi á svæðinu um stofnun safnsins. Umræður urðu miklar og lauk með því að samþykkt var munnleg tillaga oddvita um að fresta lokaákvörðun til 6. ágúst er sýslunefnd skyldi koma saman á aukafund. Á þeim fundi var samþykkt að stofna safnið og leita samstarfs við Norður-Múlasýslu og kaupstaðina. Einnig að leita eftir kaupum á húsi Pósts og síma (Kaupvangi 2) á Egilsstöðum, en það átti að verða til sölu innan tíð- ar. Engar fjárhagslegar skuldbindingar yrðu þó gerðar án samþykkis sýslunefndar. Árið 1972 gerðist Norður-Múlasýsla aðili að héraðs- skjalasafninu en kaupstaðimir neituðu, Neskaupstaður fyrst, „nema safnið verði hér“, sagði bæjarstjóri, síðan Seyðisfjarðarkaupstaður og Eskifjarðarkaupstaður, jafn- skjótt og hann fékk kaupstaðarréttindi. Fólk úr þessum kaupstöðum hefur þó jafnan notið sömu þjónustu og aðrir í safninu, jafnt varðandi afnot bóka sem skjala, og óneitanlega er það nokkuð andhælislegt að þrír fjöl- mennustu staðimir (aðrir en Egilsstaðir) í Múlasýslum skuli standa utan við stofnun sem helgast Múlaþingi öllu með þeim hætti sem héraðsskjalasafnið gerir. Skjöl eru þó að sjálfsögðu fá í safninu tilheyrandi þessum stöðum. Nú verður nokkurt hlé á skjalasafnsmálum og best að láta það afskiptalaust en sýslumar keyptu þó húsið. Árið 1974 tók safnmálið óvænta stefnu. Því barst bókagjöf, 4-5 þúsund bindi vandaðra bóka, langsamlega flestra í bandi. Þetta var dánargjöf þeirra hjóna, Halldórs Ásgrímssonar, fyrrum kaupfélagsstjóra á Borgarfirði og Vopnafirði og alþingismanns en síðar bankastjóra Bún- Halldór Ásgrimsson og Anna Guöný Guömundsdóttir, kona hans. aðarbankans á Egilsstöðum, og konu hans, Önnu Guð- nýjar Guðmundsdóttur, kennara og skólastjóra. Halldór var nýlátinn (1973) er þetta var en Anna Guðný á lífi. Frá henni barst gjafabréfið og þar skýrir hún frá því að þau hjónin hefðu „ákveðið að þessar bœkur yrðu gefnar eftir okkar dag til einhverrar mennta- eða menningar- stofnunar á Austurlandi ef við því (safninu) yrði tekið með eftirgreindum skilyrðum:" Skilyrðin vom fimm, m.a. þessi: „Safhinu verði tryg- gð árleg framlög til viðhalds þess og eflingar, t.d. 10% af áœtluðu verðmœti safnsins við afhendingu þess, og yrði það árlega framlag verðtryggt, þannig að það hœkkaði t.d. í hlutfalli við verð á bókum.“ I öðm lagi: „Þegar menntaskóli rís á Egilsstöðum fái sá skóli afnot afsafninu er forráðamenn skólans telja œskileg. “ Þetta bréf barst sýslufundi 1974. Um viðtökur gjafar- innar er bókað að sýslunefnd þættu skilyrði gefenda að vísu ekki sem aðgengilegust - en á hinn bóginn útilokað að hafna gjöfinni. Endanlega var samþykkt svohljóðandi tillaga frá oddvita sýslunefndar (formála sleppt): „Sýslunefnd Suður-Múlasýslu þakkar að sínu leyti hina stórmannlegu bókagjöf til Múlasýslna fráfrú Onnu G. Guðmundsdóttur og öðrum erfingjum Halldórs sál. As- grímssonar og þann sérstaka hlýhug sem gjöfinni fylgir. Fundurinn samþykkir að kjósa þriggja manna nefnd til að veita gjöfinni viðtöku og ganga frá nánara samkomu- lagi um skilyrði gjafarinnar við gefendur." I nefndina vora kosnir Valtýr Guðmundsson, Vilhjálmur Hjálmars- son og Hrafn Sveinbjamarson en í framkvæmdanefnd vegna skjalasafnsins Valtýr Guðmundsson sýslumaður og sýslunefndarmennimir Jón Kristjánsson, Egilsstaða- hreppi, og Jón Guðmundsson, Búðahreppi. Árið 1975 kaus sýslunefnd tvo menn í safnstjóm, þá Jón Kristjánsson og Ragnar H. Magnússon, sýslunefnd- 92
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Sveitarstjórnarmál

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sveitarstjórnarmál
https://timarit.is/publication/1063

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.