Sveitarstjórnarmál


Sveitarstjórnarmál - 01.06.1995, Síða 32

Sveitarstjórnarmál - 01.06.1995, Síða 32
SOFN Minjasafn Austurlands Guðrún Kristinsdóttir minjavörður Þegar sýslunefndir voru lagðar niður í Múlasýslum og stofnuð hér- aðsnefnd var aðildin að rekstri Minjasafns Austurlands endurskoð- uð. Það var álit héraðsnefndar- manna að eðlilegra væri að aðrir stæðu fyrir safninu. Þá var leitað til allra sveitarfélaga á svæði héraðs- nefndarinnar og hvatt til samstarfs um rekstur safnsins. Niðurstaðan varð sú að 11 sveitarfélög á Héraði og Borgarfirði ákváðu að ganga í byggðasamlag um safnið og tilnefn- ir hvert sveitarfélag mann í fulltrúa- ráð. Ur fulltrúaráðinu verður kosin stjórn Minjasafnsins og mun hún taka við af núverandi stjóm um leið og byggðasamlagið tekur við rekstri safnsins af hinum upphaflegu bak- hjörlum. Sveitarfélögin greiða til byggðasamlagsins eftir skatttekjum þannig að þau tekjuhærri greiða hlutfallslega meira. Stofndagur byggðasamlagsins hefur nú verið ákveðinn í apríl 1995. Þangað til er formaður stjóm- ar safnsins Gunnar Gunnarsson á Litla-Bakka íTunguhreppi. Stefnt er að því að ráða forstöðu- mann að safninu á næstunni og er það í raun fyrsti starfsmaður þess á 50 ára ferli. Meðal annarra verka forslöðumanns verður að skipu- leggja sýningar í nýja safnahúsinu, sem er líka fyrsta húsnæði safnsins sem svo getur heitið. I þessum fyrsta áfanga húsbygg- ingarinnar fær Minjasafnið stóran sýningarsal og fullkomna geymslu. Þar með opnast nýir möguleikar eins og skipuleg móttaka skólabama af öllu safnsvæðinu og breytilegar sýningar af mismunandi tilefnum, svo nefnt sé eitthvað af því sem snýr að safngestum. Varðveisluskil- yrði í safninu batna mjög og verður hægt að geyma dýrmæta safngripi á öruggan hátt. I næsta byggingará- fanga em skrifstofur og sýningarað- staða sem eykur enn á möguleikana. Til greina kæmi að opna þar lista- deild við Minjasafnið. Sem stendur er þó ekki útlit fyrir að ráðist verði í þann áfanga. Að sjálfsögðu er stefnt að miklu og góðu samstarfi hjá söfnunum þrem í húsinu og að þau verði forystusöfn hvert á sínu sviði. Minjasafnið tekur við húsnæði sínu á fyrri hluta árs 1995 og standa vonir til að hægt verði að opna hluta sýningarsalar næsta sumar. Guðrún Kristinsdóttir fornleifafrœðing- ur, fœdd 15. janúar 1956, hefur verið for- stöðumaður Safnastofnunar Austurlands frá árinu 1984. LAUNAMÁL Aðalfundur Launanefndar sveitarfélaga 1994 Aðalfundur Launanefndar sveitar- félaga var haldinn 14. október sl. Björn Jósef Amviðarson, bæjar- fulltrúi á Akureyri, formaður nefnd- arinnar, flutti skýrslu fráfarandi stjórnar. Hann skýrði frá því að nefndin hefði umboð frá 52 sveitar- félögum til þess að semja við 23 bæjarstarfsmannafélög. Einnig sem- ur nefndin við Félag leikskólakenn- ara, Félag íslenskra hljómlistar- manna, Landssamband slökkviliðs- manna og nokkur ASI-félög. Karl Bjömsson, bæjarstjóri á Sel- fossi, skýrði frá viðræðum nefndár- innar við Félag leikskólakennara um ábataskiptakerfi svipað og Reykjavíkurborg hefur samið um. Einnig fjallaði Karl um samræmt starfsmat á Suðurlandi þar sem hug- myndin er að steypa fjórum starfs- matsnefndum saman í eina. Umræður fóru síðan fram um þessi mál. I stjórn Launanefndar sveitarfé- laga til tveggja ára vom kjörin sem aðalmenn: Bjöm Jósef Amviðarson, bæjarfulltrúi á Akureyri, sem er for- maður, Karl Bjömsson, bæjarstjóri á Selfossi, varal'ormaður, Björn Þor- steinsson, framkvæmdastjóri lista- og menningarsviðs í Kópavogi, Ásta Sigfúsdóttir, bæjarfulltrúi á Egilsstöðum, og Ingimundur Sigur- pálsson, bæjarstjóri í Garðabæ. Sem varamenn vom kosin Gunn- ar Rafn Sigurbjömsson, bæjarritari í Hafnarfirði, Þórir Sveinsson, fjár- málastjóri á ísafirði, Karl Jörunds- son, starfsmannastjóri á Akureyri, Ólafur Hilmar Sverrisson, bæjar- stjóri í Stykkishólmi, og Jóhanna Reynisdóttir, sveitarstjóri Vatns- leysustrandarhrepps. Lúðvík Hjalti Jónsson, viðskipta- fræðingur á skrifstofu sambandsins, er starfsmaður launanefndarinnar. 94

x

Sveitarstjórnarmál

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sveitarstjórnarmál
https://timarit.is/publication/1063

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.