Sveitarstjórnarmál


Sveitarstjórnarmál - 01.06.1995, Side 35

Sveitarstjórnarmál - 01.06.1995, Side 35
NÁTTÚRUHAMFARIR I I um stöðum á mjög skömmum tíma, þar á meðal í Súða- víkurhlíð. Samkvæmt gögnum Veðurstofu íslands hefur aldrei í 40 ár verið jafn hvasst í jafn langan tíma í norð- an- og norðaustanátt. Vindhraði í Æðey mældist 11 vindstig kl. 6 um morguninn. Vindhraðametið á Hvera- völlum féll sömu nótt. Jón Gunnar Egilsson, starfsmað- ur snjóflóðavama Veðurstofunnar, segir í fréttariti Landsbjargar að snjóflóðið hafi byrjað efst í klettabelti fyrir ofan byggð- ina, að það hafi náð allt að 400 metra breidd og að 60-80 þúsund tonn af snjó hafi mnnið með 150 km/klst. hraða niður hlíðina og skollið á byggðinni. Tvö snjóflóð samanlagt ámóta stórt og þetta féllu að kvöldi sama dags úr Traðar- gili, nokkru innan við aðalbyggðina. Það eyðilagði nokkur hús sem höfðu verið rýmd. Þar varð því ekki manntjón. Víðar var hvasst og áköf snjókoma um svipað leyti. Snjóflóð féllu við ísafjörð 16. og 17. janúar og hinn 18. janúar féll snjóflóð á útihús við bæinn Grund í Reykhólasveit og varð manni að bana. Tvö íbúðarhús skemmdust á Flateyri sama dag. Erfiöar björgunaraögeröir Björgunaraðgerðir við aðstæður sem að framan er lýst voru erfiðar. Björgunar- sveitarmenn komu til Súðavíkur víða af Vestfjörðum og komu á staðinn með Fagranesi og fleiri skipum. Varðskipið Týr kom frá Reykjavík með 66 björgunarsveitarmenn, 10 lækna og hjúkrunarfræðinga og sérþjálfaðan flokk frá Slökkviliði Reykjavíkur. I kjölfarið kom skipið Engey með annað eins lið björgunarmanna og Múlafoss fór frá Skaga- strönd og var þrjá sólarhringa á leiðinni vestur. Öll A vettvangi 24. janúar. A myndinni eru, taliö frá vinstri, Póröur Skúlason, Heiöar Guöbrandsson, hreppsnefndarmaöur í Súöavíkurhreppi, Salvar Baldursson vara- hreppsnefndarmaöur, Friögeröur Baldvinsdóttir hreppsnefndarmaöur, Porsteinn Jóhannesson, forseti bæjarstjórnar á ísafiröi, Jón Gauti Jónsson sveitarstjóri, Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson og Kristján Pór Júlíusson, bæjarstjóri á ísafiröi. 9 7

x

Sveitarstjórnarmál

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sveitarstjórnarmál
https://timarit.is/publication/1063

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.