Sveitarstjórnarmál


Sveitarstjórnarmál - 01.06.1995, Side 39

Sveitarstjórnarmál - 01.06.1995, Side 39
MÁLEFNI ALDRAÐRA í leikfimisal Glmlls. Á myndlnnl eru, taliö frá vinstri, Kristín Kristvarösdóttir, Svala Eyj- ólfsdóttir og Aagot Vilhjálmsson. Greinarhöfundur tók myndirnar nema myndina af Gimli. hér er m.a. til þess að koma þeim á framfæri þess opinbera og vera laus við áhyggjur af umönnun viðkom- andi einstaklings í heimahúsum. Þegar aldrað fólk sér fram á að það muni þurfa meiri þjónustu en unnt er að veita í heimahúsum fer það að reyna að komast inn á um- önnunarstofnun. Þegar möguleikar á því eru í sjónmáli gerir það ráðstaf- anir til þess að eignir þess og verð- mæti renni smám saman til erfingja. Síðan á ríkið eða sveitarfélagið að sjá um framfærslu þess. Oörugg heimilisaðstoð og heima- hjúkrun ýta undir þessa þróun. Gamalt fólk lifir lengur en áður og þarfnast umönnunar fremur en lækningar. Það vekur athygli þeirra sem koma inn á Hrafnistumar hjá DAS að þar hittir maður fyrir full- frískt fólk sem fer allra sinna ferða um bæinn og sumir aka sínum eigin bílum. Það rennir stoðum undir þá skoð- un að forráðamenn öldrunarstofnana færist undan því að taka þunga og kostnaðarsama einstaklinga inn, en taki fremur inn hressara fólk til þess að létta ímynd og andrúmsloft stofnunarinnar. Vistunarmatið hefur þó leitt til þess að færra frískt fólk fær inni á þessum stofnunum en áður. Margir aldraðir einstaklingar í Reykjavík búa nú „heima“ við þröngan kost og ófullnægjandi að- stæður, aðrir eru inni á lúxusstofn- unum þar sem skattgreiðendur reiða fram um sjö þúsund krónur á dag fyrir umönnun hvers vistmanns. Þegar hið opinbera stendur ekki undir því að gera öllum jafn hátt undir höfði í öldrunarþjónustunni þarf að taka alla þætti hennar til endurskoðunar og finna nýjar fjár- mögnunarleiðir. Það verður ekki við það unað að fólk sem fellur undir vistunarmatið og er í brýnni þörf fyrir pláss komist ekki að. III. Öldrunarlækninga- deildir I byrjun árs 1995 er aldur Reyk- víkinga sem hér segir: 70 ára og eldri 9.590 80 - - - 3.288 90 - - - 500 Öldrunarlækningadeildir í Reykjavíkurhéraði eru með 54 rúm á Borgarspítala og 54 á Landspítala eða samtals 108 rými. Dvalar- og hjúkrunarrými eru samtals 709. Tillögur starfshópsins aó forgangsröóun Tillögur starfshópsins að for- gangsröðun eru m.a. að efla heima- þjónustuna með kvöld-, helgar- og næturvöktum, starfsréttindanámi, fjölga stoðbýlum, styrkja heima- þjónustuhverfm og auka hjúkrunar- rými. Hvað snertir fyrirhugaðar hjúkr- unaríbúðir við Eir, þar sem ætlast er til þess að frískur aldraður einstakl- ingur annist þurfandi maka sinn með aðstoð hjúkrunarfólks frá Eir, er það að segja að reynslan hefur sýnt að við þær aðstæður eru innan skamms komnir tveir sjúklingar í stað eins. í lok skýrslunnar er tekið fram að starfshópurinn hafi fyrst og fremst talið það hlutverk sitt að leggja fram tillögur byggðar á faglegu mati um hvað brýnast sé að gera í málefnum aldraðra Reykvíkinga. Framhaldið ráðist síðan af ákvörðunum pólitískt kjörinna fulltrúa sem ákveði hve mikið fjármagn fari til þessa mála- flokks. Eins og ástandið er nú í atvinnu- og efnahagsmálum okkar, er það ekki líklegt að pólitískt kjömir full- trúar, hvaða stjómmálaflokks sem er, töfri fram aukið fjármagn til öldrunarþjónustunnar. Tillögur greinarhöfundar um forgangsrööun í öldrunarþjónustu Tillögur greinarhöfundar að for- gangsröðun í öldrunarþjónustu eru þessar: 1) Að gera könnun á þjónustuþörf 70 ára og eldri - úrtak: þeir sem búa heima, eru í þjónustuibúðum, á dag- heimilum, vistrýmum og hjúkmnar- rýmum. Byggja á niðurstöðum úr þeirri könnun og virða óskir aldraðra sjálfra um tilhögun öldmnarþjónust- unnar. 2) Til þess að mæta auknu um- fangi öldrunarþjónustunnar á kom- andi ámm þarf að hækka þjónustu- gjöldin á þeim sem em færir um að 1 O 1

x

Sveitarstjórnarmál

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sveitarstjórnarmál
https://timarit.is/publication/1063

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.