Sveitarstjórnarmál


Sveitarstjórnarmál - 01.06.1995, Side 50

Sveitarstjórnarmál - 01.06.1995, Side 50
ÝMISLEGT mjög háðar búverkum og árstíðum. Stjómarfundir frestuðust sums stað- ar lengi í vetur sem leið vegna ófærðar. Því reyndist heppilegra að miða atkvæðatekjurnar við hvert mál, þannig að búnaðarsamböndin fá í reikning sinn vegna hvers máls sem tekið er til afgreiðslu 3 atkvæði á hvert hundrað félagsmanna. Bún- aðarsamband með 102 félagsmenn fær því 3,06 atkvæði. Nú kann fyrsta mál sem tekið er fyrir að vera þannig vaxið að sumir láta sig það miklu varða. Til þess að geta látið slíka áherslu koma fram þegar í fyrsta málinu fá búnaðarsamböndin í upphafi 12 atkvæði á hvert hundr- að félagsmanna. Til þess að menn geti metið vægi þess máls sem er til afgreiðslu er búið að kynna þau tvö mál sem á eftir koma. Málið sem er til afgreiðslu þegar þetta er samið er skipan þings hinna nýju bændasamtaka. Miðað er við að atkvæðagreiðslu ljúki fyrir vor- annir. Til að skýra kosti aðferðar- innar lýsi ég afbrigðum málsins: Tillögur um skipan búnaðar- þings A) Sama skipan og samið var um við sameiningu Búnaðarfélags íslands og Stéttarsambands bænda. Þingið kýs stjórn sam- takanna. B) Sama skipan og samið var um við sameininguna. Stjóm sam- takanna kosin beinni kosningu bænda. C) Þingið skipað fulltrúum búnað- arsambanda. Það kýs stjóm sam- takanna. D) Þingið skipað fulltrúum búnað- arsambanda. Stjóm samtakanna kosin beinni kosningu bænda. E) Þingið skipað fulltrúum bú- greinafélaga. Það kýs stjórn samtakanna. F) Þingið skipað fulltrúum bú- greinafélaga. Stjóm samtakanna kosin beinni kosningu bænda. G) Þingið skipað fulltrúum búnað- arsambanda og búgreinafélaga, nokkurn veginn til helminga. Það kýs stjóm samtakanna. H) Þingið skipað fulltrúum búnað- arsambanda og búgreinafélaga, nokkurn veginn til helminga. Stjóm samtakanna kosin beinni kosningu bænda. I) Þingið skipað fulltrúum búnað- arsambanda og afurðastöðva (búgreinafélaga í greinum þar sem ekki eru almennar afurða- stöðvar), nokkurn veginn til helminga. Það kýs stjórn sam- takanna. J) Þingið skipað fulltrúum búnað- arsambanda og afurðastöðva (búgreinafélaga í greinum þar sem ekki eru almennar afurða- stöðvar), nokkurn veginn til helminga. Stjórn samtakanna kosin beinni kosningu bænda. Þama gefst mönnum kostur á að tjá býsna margt í einu, eins og sýnt verður með dæmi af búnaðarsam- bandi sem á 20 atkvæði í sjóði. Það metur afbrigði A mest og býður á það 8 atkvæði. Þar næst kemur af- brigði B sem það metur á 7 atkvæði og síðan afbrigði D á 6 atkvæði, en hin á enn færri atkvæði. Kostnaður búnaðarsambandsins, ef A fær mest fylgi, getur aldrei orðið meira en 8 atkvæði. Þess vegna er ástæðulaust að leggja saman atkvæði sem boðin em á einstök afbrigði. Skiljanlega hentar ekki að nota markaðsatkvæði á fundi eða þingi þar sem mál em afgreidd hratt hvert á fætur öðm, heldur á aðferðin við til að móta mál þegar svigrúm er til að meta vægi þess miðað við þau mál sem menn eiga von á að komi fram á næstunni. Aöferö til skoðanakönnun- ar í hendi hreppsnefndar Markaðsatkvæði virðast henta á vettvangi sveitarstjórna. Hrepps- nefnd nokkur hefur hug á að nota markaðsatkvæði til að kanna á víð- ari vettvangi viðbrögð við ólíkum úrræðum í málum áður en hún ályktar og ákveður sig. Hrepps- nefndin hlýtur að ráða því hvaða mál hún leggur fyrir. Við síðustu hreppsnefndarkosningar vom boðn- ir fram 3 listar með 7 aðalmönnum á hverjum. Hugmyndin er að þessir 21 verði vettvangurinn sem hrepps- nefnd snýr málinu til og að þeir fái hver fyrir sig atkvæði í hlutfalli við atkvæðatölu lista síns. Æskilegt er að mál sem þannig yrðu lögð fyrir yrðu tvö að hausti og tvö að vori. Það er trúlega mjög misjafnt eftir sveitarfélögum hvernig mál koma til greina. I starfi samtaka sveitar- félaga Samtök sveitarfélaga þurfa iðu- lega að gera upp á milli úrræða sem varða sveitarfélögin. Ætla má að þar geti markaðsatkvæði átt við til að komast að þeirri niðurstöðu sem menn geti best sætt sig við. Þá sýn- ist eiga við að vinna verkið fyrst á vegum kunnáttumanna, svo sem í heilbrigðismálum, fræðslumálum og umhverfismálum. Kunnáttu- mennirnir fengju það hlutverk að leggja fram kosti í hverju máli sem síðan yrðu lagðir fyrir sveitarfélög- in. Þetta má skýra frekar. Heilbrigðismálaráð starfa á vett- vangi læknishéraða. Dæmi um það er heilbrigðismálaráð Norðurlands- héraðs eystra. Þau eru skipuð full- trúum stofnana. Taka mætti upp mál þar sem heilbrigðismálaráðið vildi tengja saman framkvæmdir og raða þeim. Þar er margt sem togast á og slík mál eru stöðugt í endurskoðun. Skipan skólamála hlýtur að koma til endurskoðunar á næstunni. Það má ætla að gerist á vegum samtaka sveitarfélaga. Hér er að vísu ekki um að ræða samtök sem ákveða margt á þessum sviðum, en rökstutt álit þeirra kann að varða miklu. Með markaðsatkvæðum gefst tæki- færi til rökstuðnings sem felst í því að sýna hversu mikill þungi er lagð- ur á úrræðin sem til greina koma og þarf að gera upp á milli. Þá má nefna umhverfismál sem vel getur átt við að taka sameiginlegum tök- um. Vinnubrögðin yrðu þá að stjóm samtakanna setur niður fyrir sér við- eigandi mál, lætur kunnáttumenn út- færa afbrigði í hverju máli og leggur afbrigðin fyrir sveitarfélögin, en þau 1 1 2

x

Sveitarstjórnarmál

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sveitarstjórnarmál
https://timarit.is/publication/1063

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.