Sveitarstjórnarmál - 01.06.1995, Page 52
HITAVEITUR
Réttlátara sölukerfi
Hitaveitu Rangæinga!
Ingvar Baldursson hitaveitustjóri
Forsaga
Hitaveita Rangæinga var stofnuð 13. nóvember 1981
af Rangárvallahreppi, Hvolhreppi og Holtahreppi. Veit-
an var tekin í notkun haustið 1982 og var vatnið tekið úr
borholu við Laugaland í Holtum. Veitan þjónar íbúum
Hellu, Hvolsvallar og nokkrum hluta Holta- og
Landsveitar. Fjöldi húsveitna er um 520.
í byrjun árs 1994 samþykkti stjóm Hitaveitu Rangæ-
inga að breyta sölukerfi hitaveitunnar. Tilgangurinn var
að jafna hitunarkostnað viðskiptamanna þannig að hver
um sig greiddi í sem réttustu hlutfalli við þá orku sem
hann fær afhenta úr vatninu.
Stjómendum veitunnar var löngu ljóst að mikill ójöfn-
uður ríkti milli einstakra viðskiptavina vegna þess að
þeir fengu misjafnlega heitt vatn en greiddu sama verð
fyrir hvert tonn. Þetta vandamál er raunar þekkt meðal
nær allra veitna landsins. Fram að þessu hafa hins vegar
ekki verið til nægilega góðar aðferðir til að bæta við-
skiptavinum upp varmatapið í dreifikerfinu. Eftir að
Hitaveita Akraness og Borgarfjarðar og RARIK fyrir
hitaveituna á Siglufirði tóku upp leiðréttingu vegna
vatnshita var ákveðið að taka upp sama kerfi hjá Hita-
veitu Rangæinga. Kerfið er hannað hjá WVS-verkfræði-
þjónustunni.
Bætt staða
Fyrstu rekstrarár veitunnar einkenndust af ýmsum fjár-
hagslegum og tæknilegum erfiðleikum. Komu þar til
nokkrir samverkandi þættir sem gerðu það að verkum að
taka varð afdrifaríkar ákvarðanir og oft óvinsælar ef
tryggja átti farsæla framtíð veitunnar.
Með samstöðu, markvissum ákvörðunum og stuðningi
stjómvalda hefur fjárhagsstaða veitunnar batnað veru-
lega, sjá 1. skýringarmynd.
Nú er svo komið að rekstraröryggi veitunnar hefur
stórbatnað og hún stendur tæknilega vel að vígi. Þá er
Kyndlstöð Hitaveitu Rangæ-
inga á Hvolsvelli sem reist
var sumariö 1988. Þangaö
er vatniö leitt frá Lauga-
landi. Dæling er alsjálfvirk
og hraöastýring sér um aö
stjórna dælingu á hag-
kvæmasta máta. Talsverð
kæling veröur á vatninu á
leiöinni frá Laugalandi aö
Hvolsvelli og er þaö hitaö
upp í 74'C áöur en þaö er
leitt inn á Hvolsvöll.
1 1 4