Sveitarstjórnarmál


Sveitarstjórnarmál - 01.06.1995, Side 54

Sveitarstjórnarmál - 01.06.1995, Side 54
HITAVEITUR fallslega mikla kælingu. Sjá má að verulegur jöfnuður hefur náðst í upphitunarkostnaði á milli notenda. Alger jöfnuður er óhugsandi vegna mismunandi neysluvenja eins og fyrr hefur verið nefnt. Upphitunarkostnaöurinn 1994 Þegar tekinn er saman úr söluskrám hitaveitunnar frá árinu 1994 greiddur upphitunarkostnaður allrar íbúðar- hitunar á Hellu og á Hvolsvelli kemur í ljós að meðal- kostnaður við upphitun 400 m’ húss var 53.888 kr. á ár- inu 1994 eða 4.491 kr. á mánuði. Tekjur hitaveitunnar Við að lækka gjaldskrána eins og gert var með fram- angreindum leiðréttingum var ljóst að tekjur veitunnar mundu lækka. Á 9. skýringarmynd er sýndur saman- burður á heildarafslætti veitunnar árið 1995 og þeim sem áætlaður var við upphaf leiðréttingarinnar. Sjá má að óverulegur mismunur kemur fram á milli áranna sem staðfestir að áætlanir um notkun fyrir og eftir leiðrétt- ingu hafa gengið eftir. Afsláttur vegna hitastigsleiðréttingarinnar á árinu 1994 var 11,4%. Að meðtalinni gjaldskrárlækkun í árs- byrjun 1994 nam heildarlækkun reikninga 6,8 milljón- um króna á sl. ári. Köldu húsin Ef bomar eru saman 3. og 4. skýringarmynd af dreif- ingu notkunar eftir afslátt og tilsvarandi myndir fyrir af- slátt, sem hér em þó ekki sýndar, kemur í ljós að fækkun VATNSNOTKUNÁHELLU hefur orðið í báðum bæjunum á notendum sem nota hlut- fallslega lítið vatn. Má áætla að hér sé um að ræða not- endur sem leyfa sér meiri vatnsnotkun eftir afsláttinn og fá þar af leiðandi betri hitun húsa sinna. Breytingar á heitavatnsnotkun Reynslan sýnir að heitavatnsnotkun breytist nokkuð hjá einstökum notendum á milli ára. Em breytingamar ýmist til hækkunar eða lækkunar og hafa að jafnaði eðli- legar skýringar. Þessar breytingar valda því að afsláttur getur breyst lít- illega á milli ára. Afsláttur getur jafnframt breyst vegna tilkomu nýrra viðskiptavina eða umtalsverðra breytinga í notkun nálægra notenda. Á árinu 1994 má sjá slíkar breytingar en eftir sem áður er meðalafsláttur ársins óbreyttur, sjá 9. skýringarmynd. Niðurstööur • Á undanfömum árum hefur fjárhagsstaða veitunnar batnað vemlega, sjá 1. skýringarmynd. • Á sama tíma hefur orðið nokkur raunlækkun á gjald- skrá veitunnar, sjá 2. skýringarmynd. • Umtalsverður jöfnuður hefur náðst í vatnsnotkun á milli bæjanna við jöfnun vatnshitans við bæjarmörkin, sjá 3. og 4. skýringarmynd. 1 1 6

x

Sveitarstjórnarmál

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sveitarstjórnarmál
https://timarit.is/publication/1063

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.