Helgafell - 01.07.1943, Side 60
320
HELGAFELL
til cftirbreytni á viðsjárverðum tímum en for-
dæmi Lady Hamilton eða Marítt Antoinette,
þótt þær væru einnig miklir kvenkostir á sína
vísu. Að minnsta kosti læt ég lesendur mína
um að ráða fram úr því, hvorar væru líklegri
til þess að fá þakkarávörp utan úr heimi
fyrir hófsemi sína í umgengni við erlcnt
’.tulið.
* * *
Ég gat hér í upphafi kunningja míns, sem
tók sér mjög nærri, hvernig komið væri fyrir
íslenzkum bókmenntum. Við nánari íhugun
komumst við þó báðir að þeirri niðurstöðu,
að aldrei hefði verið gefið út jafn margt úrvals-
rita og einmitt nú. Eins víst er hitt, að ágæt-
ustu rit hafa aldrei átt sér fleiri lesendur hér
á landi. Að vísu er þess enn langt að bíða,
að beztu bókmenntatímarit vor eins og Jörð
og Helgafell fái þá útbreiðslu, sem þau eiga
skilið, og jafnvel ritstjóri Samtíðarinnar lætur
þess getið í síðasta hefti, að sig langi til að
fá marga nýja áskrifendur. Mér rann ril rifja
að lesa þetta, af því að ritstjórinn er vinur
minn, og ég veit, að hann hefði ekki haft
orð á þessu, ef honum væri ekki alvara. Hins
vegar spáir það enn góðu um framtíð ís-
lenzkra bókmennta, að síðasta Alþingi tók upp
hugmynd Halldórs K. Laxness um alþýðlegar
útgáfur fomrita vorra. Hefur þingið, til að
byrja með, gert ráðstöfun til þess að afla Njáls-
sögu nýrrar og aukinnar útbreiðslu og m. a.
heimilað nokkurn neytendastyrk til verðbóta
í því augnamiði. Eins og kunnugt er, voru það
núverandi þingmenn Rangæinga, sem höfðu
forgöngu í þessu máli, og þegar þess er gætt,
að þcir eru annars einhverjir hlédrægustu
menningarfrömuðir, sem sögur fara af, má
nærri geta, hvort aðrir þingmenn og hand-
gengnari prentuðu máli, muni láta sitt cftir
Lggja.