Helgafell - 02.12.1943, Page 10

Helgafell - 02.12.1943, Page 10
392 HELGAFELL fram í ,,Öjeblikket“, því mikla safni af blaðagreinum og flugritum, sem eru síðustu rit hans og hatramar árásir á kristni vanans, þetta, að ,,þaS er nú einu sinni sisona, aS viS erum kristnir“. í þessum prédikunum og mörgum orSatiltækjum Kaj Munks má heyra óminn af hvössum hvatningarorSum Kierkegaards: ,,Trúin er ástríSa, til þess aS trúa þarf ástríSu", og ,, hugsjónirnar ber aS boSa, annars er kristindóm- urinn falskur í innsta eSli sínu“. Þær bera einnig blæ af þeim orSum Jesú, sem Kierkegaard benti svo kröftuglega á: ,,Ég er kominn til aS varpa eldi á jörSina". Þetta sézt á nokkrum dæmum úr prédikunum hans: ,,Já, segja menn viS mig, kirkjan er helgidómur. ÞaS á aS vera ró og tign yfir guSsþjónustunni. Ojæja, þaS er nú svo, því aS sú ró og tign á ekki aS fást meS þögn og lygi. Sú guSsþjónusta, sem óttast sannleikann, er Satans-þjónusta, og sannleikurinn er ekki rólegur og virSulegur og tignar- legur. Hann brýst um og bítur og slær. Sannleikurinn er ekki fyrir varkárt og rólegt fólk. ÞaS þarf ekki sannleika, heldur hægindastól. En hvaS þaS er meiningarlaust, aS krefjast varkárni af kirkjunni! Var Kristur varkár ? Voru píslarvottarnir varkárir ? Má ég þá heldur biSja um orS Jesú: Þér hrœsnarar og augnaþjónar og kalþaSar grajir. Þetta kallaSi hann þá, sem afvegaleiddu lýSinn í landi hans. Og Heródesi, sem flaSraSi upp um rómverska hervaldiS í Palestínu, sendi hann hæSniskveSju og kallaSi hann ref“. Þessi orS eru úr prédikuninni MeS sverði orðsins. Or annarri prédikun, Jóhannes og Jesús, tek ég þessi orS: ,,Til eru þeir menn, sem gera sér þaS í hugarlund, aS hægt sé aS raða sannleikanum niður. Þeim skjátlast. Sannleikurinn verður ekki lagður frá til geymslu. Hann er ekki til í öðru ástandi en lifandi. Af allri lýgi er dauður sannleikur hættulegastur. Einnig okkar á meðal eru til góðir menn, sem hafa þá brennandi trú á sannleikanum, aS hann sé til, til þess aS hann verði boðaður — aS hann sé einungis til, þegar hann er boSaður. Þeir trúa ekki á niðursoðinn sannleika“. Hispursleysi Kaj Munks heyrist glöggt í nýársprédikun hans, Kristur og Danmörk: ,,GuS krafðist baráttu af okkur. ViS brugðumst skipun hans, viS brugS- umst orði og ákvörðun sjálfra okkar. Menn eiga ekki aS hæða GuS meS því aS þakka honum fyrir þaS, aS fjandinn sér um sína. Eru þetta of sterk orS ? Nei. Sá, sem bregzt GuSi, felur sig forsjá djöfuls- ins. ViS erum núna þessi árin utangarðs viS köllun okkar og ákvörðun. Dan- mörk er undir reiði GuSs. Þessvegna líður okkur svona vel. ViS höfum skrópaS undan skyldum okkar. ViS látum öðrum blæða okk- ar vegna og fyrir okkar málstað. ViS höfum selt sál okkar illum anda undan-

x

Helgafell

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Helgafell
https://timarit.is/publication/1076

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.