Helgafell - 02.12.1943, Síða 17

Helgafell - 02.12.1943, Síða 17
ÞÁTTASKIPTI 399 uppdubbaður til sundurgerðar, heldur iðinn og önnum hlaðinn oddamaður fimm manna stjórnarnefndar, er kæmi í stað ráðuneytis, og kysi hver lands- fjórðungur sinn mann í stjórnina, en höfuðborgin þann fimmta, og réði ein- faldur meirihluti kosningu. Stjórnarnefndina máetti kjósa til þriggja eða fjögra ára, en hún kysi sér sfðan forseta til eins árs í senn. Þá mætti einnig fara þá leið, að stjórnarnefndin yrði þjóðkjörin og forsetinn kjörinn sérstak- lega fyrir allt tímabilið, ef menn fella sig betur við það; en hitt er einfald- ara og óbrotnara. Hvor leiðin sem farin yrði, mundi núverandi ríkisstjóri eiga vísa kosningu, og gæti því þjóðin áfram notið góðs af reynslu hans og hyggindum. Löggjafar- og veitingarvald yrði framvegis hjá alþingi, en gefa þyrfti stjórnarnefndinni töluvert frjálsar hendur á ýmsum sviðum (svo sem í utanríkismálum), enda yrði með þessu móti raunverulega um fasta þjó8- stjórn að ræða. Ef horfið yrði að þessu eða líku fyrirkomulagi um stjórnarkjör, en vand- ræði alþingis um stjórnarmyndun gera umbætur í því efni aðkallandi, sýn- ist óþarfi í bili að hrófla við deildaskipun alþingis, eins og tillögur hafa kom- ið fram um. Hitt er annað mál, hvort alþingi er ekki of mörgum mönnum skipað og hvort ekki mætti bæta afköst þingsins og takmarka ringulreiðina með því að fækka þingmönnum. Eins og hér hagar til, virðist hæfilegt, að einn þingmaður kæmi á hverja 5000 íbúa (í Svisslandi, sem hér hefur verið tek- ið að nokkru til fyrirmyndar, eru 20000 íbúar að baki hverjum þjóðráðsmanni). Mundi þetta fækka þingmönnum niður í 24 eða þar um bil, og virðist það hæfileg tala og kappnóg byrði þjóðinni. — Hér skal ekki farið lengra út í þá sálma, enda var aðaltilgangurinn með línum þessum sá: í fyrsta lagi að grafast fyrir um, hvort ekki væri hugsan- legt, að komast mætti hjá að kljúfa þjóð, sem er sammála í aðalatriðum, um algert aukaatriði í mesta velferðarmáli hennar; í öðru lagi að mælast til þess, að málið yrði rætt við almenning í landinu og þjóðin höfð með í ráð- um, áður en gengið yrði til frekari framkvæmda. Mundi það vafalaust reyn- ast happasælla en að hrapa að aðgerðum, er leitt gætu til ófarnaðar, sem sigla mætti hjá, ef menn aðeins í þetta eina skipti væru fáanlegir til að leggja allan ofsa og þá ekki síður flokkadrátt til hliðar og láta hóf og brjóstvit ráða — eins og dæmi eru til í sögu íslendinga. Á alþingi hinu forna hafði hver lögréttumaður jafnan tvo menn tiltæka að ráðgast við. Ef óhentugt þykir á þessum tíma árs að ganga til nýrra kosn- inga eða fresta þingi, meðan þingmenn skryppu heim í kjördæmin og ræddu málin við kjósendur, mætti fara þá leið, að boða til nokkurs konar þjóð- fundar um málið. Hver hreppur í landinu gæti vafalaust með stuttum fyrir- vara sent einn eða tvo menn, en stærri bæjarfélög fleiri. Mætti þingi og stjórn verða að því hinn mesti stuðningur að ræða málin við alþýðu manna, einkurn ef þjóðin bæri heill til að láta ekki flokkafylgi ráða kjöri fundarmanna.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84

x

Helgafell

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Helgafell
https://timarit.is/publication/1076

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.