Helgafell - 02.12.1943, Síða 21

Helgafell - 02.12.1943, Síða 21
LÖGSKILNAÐUR EÐA HRAÐSKILNAÐUR ? 403 þá mun Islandi hollast að þekkja sinn vitjunartíma. Islendingum er óþarít að gera sér nokkrar tálvonir um, að stórveldastyrjöld, sem háð verður hér í álfu, fari nokkru sinni framhjá landsteinum þeirra framvegis. Það er óhugsandi, að Engilsaxar telji sér það á nokkurn hátt til hagsbóta að halda við pólitísku cambandi milli Islands og Danmerkur eftir ófriðarlok, enda mega gagnast orð og gerðir þeirra sjálfra til þess að afsanna þá firru, sem nokkrir hinna óvitrustu og óprúttnustu hraðskilnaðarmenn hafa þó reynt að bera í munni undanfarið. Rétt er þó að geta þess, að ég veit ekki til að sú fábjánakenning hafi birzt á prenti, — jafnvel ekki í „Morgunblaðinu'*. Síðan um vorið 1940 hafa allir aðiljar, sem afskipti hafa haft af mál- efnum Islands, litið svo á sem landið væri algerlega óháð sambandslögun- um og sjálfstætt allra sinna gerða þeirra vegna. Danmörk var hertekin hinn 9. apríl, en nóttina eftir samþykkti alþingi, að ríkisstjórnin skyldi þeg- ar taka meðferð konungsvalds, utanríkismála og landhelgisgæzlu í sínar hendur ,,að svo stöddu“. Enginn gerðist til þess að andmæla þessari ráð- stöfun, hvorki utan lands né innan, enda var hún sjálfsögð og óumflýj- anleg. Hinn 10. maí hernámu Bretar landið gegn andmælum ríkisstjórn- arinnar, og hefur aldrei fyrr verið gengið svo hispurslaust í berhögg við sjálf- stæði landsins að forminu til. Bretar unnu það verk af því, að þeir töldu sér það lífsnauðsyn að hafa hönd yfir landinu, eftir að Þjóðverjar höfðu brotið Noreg undir sig. En þótt Bretar teldu sig neydda til þessa óyndisúrræðis, sýndu þeir um leið ótvírætt, að þeim var ekki í hug að lækka Island í sessi eða gera kost þess rýrari en hann hafði áður verið. Ásamt hernum sendu þeir hingað sendiherra og urðu þannig fyrstir til þess erlendra þjóða ,,að viðurkenna í verki, að sambandslögin hefðu misst gildi sitt“ (Bjarni Bene- diktsson). Á þennan hátt tóku Bretar af öll tvímæli um viðhorf sitt til sjálf- stæðismáls Islendinga. Ef það væri þeirra ætlun, að Island væri og ætti framvegis að vera ósjálfstæð eða hálfsjálfstæð útlenda, hefði þeim aldrei getað komið til hugar að stofna til slíks stjórnmálasambands við landið, sem nú gerðu þeir. Það eru fullvalda ríki, sem skiptast á sendiherrum. Hjá- lendur, útlendur og hálfríki njóta eigi slíks réttar. Þá lýstu Bretar því yfir, að þeir mundu eigi hafa nein afskipti af stjórn landsins og hverfa héðan á brott með her sinn eftir ófriðarlok. III. Brátt kom þó í ljós, að nokkrir Islendingar voru harðóánægðir með, að við létum ekkert til okkar taka, eftir að hernámið hafði farið fram. Ekki spratt sú óánægja ósjálfrátt upp meðal alþýðu manna, heldur kveiktu nokkr- ir pólitískir foringjar og foringjaefni hana upp. Ekki beindist þó þessi óánægja á móti hernáminu, svo að orð sé á gerandi, heldur á móti sambandinu við Danmörku, sem þá var komin undir járnhæl nazista, þótt ekki væru þeir
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84

x

Helgafell

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Helgafell
https://timarit.is/publication/1076

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.