Helgafell - 02.12.1943, Page 34

Helgafell - 02.12.1943, Page 34
416 HELGAFELL málinu undir gerðardóm, svo sem sambandslögin Keimila báðum aðiljum. Hver eiga að verða ,,rök Islendinga” fyrir þeim dómi ? Hafa hraðskilnaðarmenn eða ríkisstjórnin kannað Kug Bretastjórnar um þetta mál ? Árið 1941 kölluðu Bretar það hið mesta óráð, að við legðum út í hraðskilnað! Sjá hinir framsýnu og margfróðu hraðskilnaðarmenn, hvernig ástandið verður í Evrópu, og þó einkanlega á Norðurlöndum, um vordaga 1944? Á þeim háskalegu tímum, sem við lifum, virðist það gert af mikilli léttúð að dagsetja stórviðburði fram í tímann. En til eru þeir hraðskilnaðarmenn, sem eigi munu þykjast vanbúnir að svara þeirri spurningu! Geta hraðskilnaðarmenn ekki hugsað sér, að ofsapólitík þeirra leiði til þess, að bæði Norðurlandaþjóðir, Bretar og Bandaríkjamenn taki að veita málefnum vorum nánari gætur en hingað til ? Hvað mundi blasa við augum útlendra manna, sem kæmu hingað til þess að rannsaka ástandið í heild sinni ? — Alþingi, þar sem fjórir pólitískir flokkar eiga að gegna þingstörfum, en hafa í þess stað vanað þingið, svo að það getur ekki getið af sér ríkisstjórn. Ríkisstjórn, sem Alþingi hefur vanað, — í einskonar hefndarskyni, að því er virðist, — svo að þeir nýtu menn, sem skipa hana, geta ekki notið sín nema að mjög litlu leyti. Dýrtíðarstórflóð, sem landsmenn hafa hvorki haft mátt né menningu til þess að hafa nokkurn hemil á, svo nú telja hinir vitrustu menn, að öllum atvinnumálum og fjárhagsmálum sé teflt í lífsháska. Stétta- rígur, sem stundum verður að fullkomnu stéttahatri, sem sumir hinna fölskva- lausustu föðurlandsvina (þ. e. hraðskilnaðarmenn) virðast heldur vilja glæða en svæfa o. s. frv. Ógöngur þær, sem við erum komnir í, eru þess eðlis, að æskilegt er, að menningarþjóðum þeim, sem standa oss næst, sé sem fæst kunnugt um þær. Sæmd okkar verður á mest, ef sem allra fæstir þekkja okkur. En engin leið er vissari en hraðskilnaðarleiðin til til þess að kasta háskalega björtu ljósi yfir það ófremdarástand, sem nú ríkir á Islandi. Skrifað síðast í nóvember 1943. Árm Pálsson.

x

Helgafell

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Helgafell
https://timarit.is/publication/1076

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.