Helgafell - 02.12.1943, Page 36
Ég hrollsvitna af köldu við húmskuggans feikn
í hinztu glæðum frá dagsins báli,
er götunnar Ijósvitar gefa teikn
á grænu og rauðu tungumáli.
Hér haltrar ei Dauðinn með hóglátu fasi
hampandi Ijá og stundaglasi,
— glampandi málmur, hlymjandi hljóð,
glymjandi gler
og blóð
yfir brotkös af stáli og líkömum dauðum,
og götunnar blikvitar tjá sín teikn
á tungum grænum og rauðum--------------
Af hraðfeigri gleði og örþreyttri ást,
af andvökum ræflanna hef ég kynni,
og ég hlera, hvað múgurinn möglar í barm
á morgnana, á leið að vinnu sinni.
Forlátið yðar fótaskinni!
Ég er Malbikið, götunnar glitsvarta húð.
Undir gljáskóm og hjólbörðum þróast mín saga.
Ég er Myrkrið, sem bíður í þreyjandi þögn
undir þys yðar litklæddu daga!