Helgafell - 02.12.1943, Side 47

Helgafell - 02.12.1943, Side 47
SKÁLDIÐ Á LITLU-STRÖND 429 var illa við myrkravöld í náttúraiari, mannlífi, mannaverkum og manna- setningum. Hann skildi ungur og fann það alla ævi, hvað myrkur og kuldi voru mátt- ug völd í náttúrufari okkar lands og hversu þau völd hafa mótað það fá- breytta, smávaxna lifenda líf, sem landið hefur alið og eignazt, mótað og merkt sér þjóðarinnar líf og sögu hennar frá upphafi. Saga okkar var sagan af baráttu við myrkur og kulda, saga vanmáttar í tvísýnni baráttu. En það, að við höfum ekki misst alls, ekki týnzt, var því að þakka og því einu, að alla tíð loguðu vitar í myrkrinu. Þeir vitar voru fræði og iðkun andlegs lífs með landsmönnum. Og vitaverðirnir voru höfundar og leið- togar þessa andlega lífs. Það birtir og hlýnar í hugskoti manns við að hugsa um hlutverk vita- varðar: að lýsa fari manna, vísa því leið fram hjá slysunum, feigðinni, að standa sjálfur úti í myrkri og kulda. og rétta þar arm sinn fram til að hjálpa öðrum inn á ljóssins land. Jón unni ljósinu, hann unni þeim mætti, sem lætur myrkrið víkja frá sér og kuldann klökkna fyrir tilliti sínu. Hann unni ljósinu, sem hjálpar til að finna það, sem leitað er að og finna þarf, hjálpar manni að finna, hvað satt er og rétt, og birtir okkur fegurðina. Ást myrkfælins manns á ljósi í hendi, ást barnsins á ljósinu í hendi sinni, það var ást Jóns Stefánssonar á góðri bók. Því unni hann bókmennt- um og sérstaklega okkar eigin bók- menntum, fyrri og síðari tíma. Þar fannst honum, að ætti að leita og þar væri að finna mennt og mannþroska sér og öðrum til handa. Jón Stefánsson unni þeim ljósvit- um, sem varðað hafa og varða um okkar ,,þjóðlífsmeið“. í þeirra svæit, er vitana tendra, vildi hann mega koma með sitt smáblys í hendi. Sigjús Bjarnarson.

x

Helgafell

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Helgafell
https://timarit.is/publication/1076

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.