Helgafell - 02.12.1943, Side 60

Helgafell - 02.12.1943, Side 60
442 HELGAFELL að honum blöskri það, að fáeinir menn ger- ist quislingar gagnvart þjóð sinni. Það er önnur tegund manna, sem honum virðist ennþá fjær skapi, en það eru „ungir mennta- mcnn“, sem hann nefnir svo, og hann nær t. d. óvenjulegum reigingi í lítilsvirðinguna, þegar hann spyr cinn þeirra, sem hann til- nefnir, hvort hann haldi, „að hann sé þess umkominn að leiða þjóð sína á réttar brautir? Ég hcld að flestum verði á að brosa. .o. s. frv. Maður sá, sem prófessorinn „afgreiðir" á hagfræðingur, sem að allra dómi er meðal þennan virðulega hátt cr Klemens Tryggvason efnilegustu ungra menntamanna vorra. — Er þá nokkur furða, þótt maður með þessu and- lega viðhorfi láti sér fátt finnast um opin- ber afskipti þeirra manna, sem lagt hafa stund á jafn óveraldleg viðfangscfni eins og skáldskap? Tveir slíkra manna hafa gerzt sek- ir um að mynda sér skoðanir á einstökum atriðum skilnaðarmálsins, líklega vegna þcss, að þeir hafa álitið, að örlagarík vandamál þjóðar sinnar kæmi þcim einnig við. En auð- vitað eiga skáld ekkert að skipta sér af þeim! Skáldskapur og veruleiki eiga nefnilega ckki samleið í stjórnmáladeilum og styrjöldum, seg- ir dr. Alexander og ypptir öxlum. Þetta sjónarmið, að „skáldskapur og veru- leiki fari ekkj saman“ er að vísu hvorki nýtt né frumlegt og líklega ekki miklu yngra en t. d. einræði og afturhald. Að minnsta kosti hef ég ekki spurnir af neinum menntamanni meðal frjálsra þjóða á vorum tímum, sem gerzt hafi talsmaður þess, og flesár munu líta svo á, að ýmsir þeir eiginleikar, sem öðrum fremur gera menn að miklum skáldum, svo scm andleg djörfung, hugkvæmni og sannleiksást, ættu einnig að geta komið sér vel í stjórnmáiabaráttunni. Dr. Alexander veit líka ósköp vel, að fæstum þeirra manna, sem oss hafa orðið óþarfastir í opinberu lífi þjóð- arinnar, verður borið það á brýn, að þeir hafi verið hættulega mikil skáld, þótt ýmsir þeirra kunni fyrr og síðar að hafa getað hnoðað saman vísu. Á hinn bóginn hafa sum ágæt- ustu skáld vor, svo sem Hannes Hafstein, staðið framarlega meðal beztu og þörfustu stjórnmálamanna vorra. Flestar aðrar þjóðir munu hafa svipaða sögu að segja, og t. d. s.----- ------------------------ ^ OR VISNABÓKINNI v....- ------------------- ■ -y GRAFSKRIFT YFIR HUNDI Ég var hundur húsbóndans á Rein. Hver á þig, sem skoðar nú minn stein? ÚR GÖMLU BRÉFI Hvað sem annars er um mig, engin líður stundin svo, að ekki sé við þig sérhver þanki bundinn. Hitt mér leyndist langa tíð, ljúfan dyggðaríka, að þú hugsar ár og síð um þig sjálfa líka. MEYDÓMSMINNING — Barnfóstran hét Hanna. Hún bar mig upp í hlíð. Þá kom til okkar piltur og kyssti hana í gríð. Og Hanna kyssti piltinn. Ég hugsaði, ein á bala: „Þetta segi ég mömmu, þegar ég læri að talal" LANDRÁÐ „Af landráðum vex ekki vegsemd!" „Hve verður það sannað?" „Er landráðin hafa heppnazt, þá heita þau annað". (Þýtt og endursftgt).

x

Helgafell

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Helgafell
https://timarit.is/publication/1076

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.